Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 44

Iðnaðarmál - 01.06.1967, Blaðsíða 44
fé, sem ákveðið er við stofnun, alveg eins og ótvírætt á við um hlutafjár- auka síðar. Hitt skilyrðið varðar það eigið fjármagn, sem er í félaginu á tiltekn- um tíma, annað en nafnvirði hluta- fjár. Utgáfa bréfanna skal byggð „á raunverulegum verðmætum í sjóðum, öðrum en skattfrjálsum varasjóði, eða öðrum eignum félagsins, er verið hafa í eigu þess minnst þrjú ár . . Orðalag er þarna ekki alls kostar skýrt. Talað er um raunveruleg verð- mæti í sjóðum eða í öðrum eignum félagsins. Hér mun vera átt við allan varasjóð félagsins, annan en „skatt- frjálsan“ varasjóð, bæði sýnilegan varasjóð og dulinn varasjóð. Sá sýni- legi varasjóður, sem hér er um að ræða, er yfirleitt færður upp í reikn- ingum hlutafélags undir heitinu „höf- uðstóll“. Þetta fjármagn er e. t. v. það, sem átt er við í reglugerð með orðunum: raunveruleg verðmæti í sjóðum. En hugsanlegt er, að eignir félags séu í heild ofmetnar, og væri þá naumast hægt að tala um raun- veruleg verðmæti. Hins vegar er svo dulinn varasjóður, þ. e. varasjóður, sem ekki er sýndur á efnahagsreikn- ingi, með því að einhverjar eignir hafa verið vanmetnar. Það er e. t. v. þetta fjármagn, sem haft er í huga í orðunum: verðmæti í öðrum eignum félagsins. Reglugerðin kveður ekki nánar á um það, hvernig hinn duldi varasjóður skuli metinn. Um það, hvernig „rétt“ sé að meta hann, geta vafalaust verið skiptar skoðanir. í reikningum fyrirtækis getur t. d. staðið fasteign, sem er virt á aðeins lítinn hluta brunabótavirðis eða á- ætlaðs söluvirðis. Þarna er því greini- lega um að ræða dulinn varasjóð, sem svarar til mismunar á „raunveru- legu“ virði og bókfærðu virði. En söluvirði getur í þessu tilviki verið mun lægra en brunabótavirði fast- eignarinnar. Stjórnendur félags þurfa þó ekki að tvístíga vegna óvissu um, hvernig meta megi fjármuni í sam- bandi við útgáfu jöfnunarbréfa. Þeir geta leitað álits ríkisskattstjóra. Hin- ar vanmetnu eignir, sem verið hefðu í eigu félagsins í a. m. k. 3 ár, gætu og verið alls konar önnur framleiðslu- tæki, svo sem skip, vélar og tæki. A slíkum tækjum fer hins vegar ekki fram reglubundið opinbert mat, hlið- stætt brunabótamati. Þeim reglum, sem nú hefur verið lýst, skal nú beitt við lausn raunhæfs verkefnis. Spurt er, hve mikið af jöfn- unarbréfum fyrirtæki nokkurt megi gefa út á árinu 1967. Fyrirtækið var stofnað árið 1955 með 2,0 m. kr. hlutafé, og var það allt greitt á árinu. Síðan hefur hlutafé félagsins ekki verið aukið. Nú hefur hækkunarvísi- tala fyrir inngreiðslur árið 1955 gild- ið 305. Samkvæmt því geta útgefin jöfnunarbréf hæst numið 4,1 m. kr. (2,0 m. kr. X 2,05) og hlutaféð allt því hæst orðið 6,1 m. kr. eftir aukn- inguna. Þá er næst að kanna, hvort varasjóðir félagsins, aðrir en „skatt- frjáls“ varasjóður, hafi verið nægi- legir til að standa undir slíkri aukn- ingu. Við þurfum þá fyrst að líta á efnahagsreikning fyrirtækisins í árslok 1963. Efnahagsreikningur í árslok 1963 (millj. kr.) F jármunir: F jármagn: Fasteign 5,0 Skuldir ... 6,0 Vélar 3,0 Hlutafé ... 2,0 Veltufj ármunir . . 4,0 „Skattfrjáls“ varasjóður . . . ... 1,5 Höfuðstóll ... 2,5 12,0 12,0 Ef fasteign og vélar væru fullmetin samkv. ákvæðum reglug., eins og hún er túlkuð af ríkisskattstj óra, kæmi ekki til greina að gefa út jöfnunar- bréf fyrir hærra nafnvirði en 2,5 m. kr., enda hefði sá höfuðstóll ekki lækkað, t. d. vegna taprekstrar, á næstu þrem árum (réttara sagt: til þess tíma á fjórða árinu, er útgáfa jöfnunarbréfa skyldi fara fram, en í reynd mun eingöngu litið á efna- hagsstöðuna eins og hún er um ára- mót) og ekki myndazt viðurkenndur dulinn varasjóður á þessum þrem ár- um, t. d. með því að vélar hefðu verið afskrifaðar sérstaklega mikið (t. d. vegna notkunar heimildar samkv. B- lið 28. gr. reglug.). Á þessum þrem árum gæti brunabótamat fasteignar og viðeigandi virðingarverð véla hafa hækkað vegna almennra verðhækk- ana, en þær hækkanir mundu ekki þoka hámarkinu frá 2,5 m. kr. Segjum nú hins vegar, að bruna- bótamat fasteignarinnar hafi í árslok 1963 verið 10,0 m. kr., en allt annað óbreytt frá því, sem getið hefur verið. Þá hefði verið í fyrirtækinu dulinn varasjóður að fjárhæð 5,0 m. kr. og þess vegna hægt, eigin fjárins vegna, að gefa út jöfnunarbréf að fjárhæð 7.5 m. kr. (höfuðst. 2,5 -j- dulinn varasj. 5,0). Eins og áður segir, eru það þrengri takmörkin, sem eru ráð- andi. Þess vegna yrði ekki hægt að gefa út bréf fyrir hærri upphæð en 4,1 m. kr. Eigið féð nýttist ekki til fulls. Hér hæfir að fara örfáum orðum um bókanir í sambandi við útgáfu jöfnunarbréfa. Sú fjárhæð, sem jöfn- unarbréfunum nemur, er bókuð í kredithlið hlutafjárreiknings, þ. e. kemur til viðbótar hlutafé, sem fyrir er. Debetbókunin getur orðið í höf- uðstólsreikning, svo langt sem liann nær, en í umræddu sýnishorni vantar 1.6 m. kr. á að höfuðstóllinn nægi. í þessu tilviki væri sjálfsagt að færa þennan mismun til hækkunar á bók- færðu virði fasteignarinnar. Það kæmi bókhaldslega jafnvel til greina að setja alla debetbókunina á fast- eignina (fasteignareikningur færi þá upp í 9,1 m. kr.). Þessi síðari háttur gæti virzt skapa betri möguleika til arðgreiðslna í framtíðinni. Höfuð- stóllinn stæði óskertur, og hægt væri 114 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.