Franskir dagar - 01.07.2013, Síða 3
Söngskemmtun í kirkjunni
föstudaginn 26. júlí kl. 18 og 20*
/
Eins og undanfarin ár verður söngskemmtun í Fáskrúðsfjarðarkirkju á Frönskum
dögum.Aðþessu sinni kemurfram söngkvartett, skipaðurþeim Garðari Thór Cortes,
Gissuri Páli Gissurarsyni, Bergþóri Pálssyni og Viðari Gunnarssyni. Jóhann G. Jó-
hannsson leikur ápíanó.
Söngvararnir eru vel þekktir og margreyndir af óperusviði og tónleikapöllum hér heima og erlendis,
píanóleikarinn býr að langri og margvíslegri reynslu sem tónlistarstjóri og útsetjari.
Leitað verður fanga jafnt í eldri tónlist sem yngri, innlendri sem erlendri, dægurflugum jafnt sem
sígildum verkum.
l/k>
s^ÖtABðWó^>'
Félagarnir einsetja sér að hafa metnað og fagmennsku í fýrirrúmi, en láta tónlistarflutninginn litast af
léttleika, smekkvísi, hæfilegum gáska og gleði. Söngskemmtun sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Forsala er hjá Alberti í síma 864 2728.
*Ekkert hlé er á seinni tónleikunum ogpvípassar að fara heint af peim og á setningu Franskra daga.
3