Franskir dagar - 01.07.2013, Blaðsíða 7

Franskir dagar - 01.07.2013, Blaðsíða 7
( fta/tiáh otagwv ^jejjotvoyjta/icaíj Þorri SU402. Valur SU 400 og Þuríður SU 401. Valur 8-9 tonn og Þuríður aðeins stœrri. Trillurnar voru báðar seldar norður t land. og erlend lán. Mönnum blöskrar í dag 5-10% verðbólga en á árunum um og upp úr 1980 var hún 30-50% og náði sögulegu hámarki, 80%, árið 1983. Sæbjörgin var seld 1987, Þorri var seldur 1990 en Guðmundur Kristinn var til þar til Pólarsíld hætti allri vinnslu. Stóra loðnuævintýrið var svo á 8. áratugnum. Þá var tekið á móti loðnu í frystingu. „Þá hafði ég hæstu laun sem ég hef haft. Hún var hand- flokkuð. Borgað var fyrir kxLóið. V ið tíndum þrjár eitt tonn á sólarhring, en Stjáni Garðars sló okkur við. Hann sagði í gríni að það væri fyrir að við notuðum aðra höndina, en hann var harmon- ikkuleikari og gat notað báðar hendur aðskilið. Þetta var nánast eins og sfldarsöltun, 20-30 manns við band. Sama kerfið var notað, síldarhausinn hafði farið niður um gat, nú fór hængurinn niður um gatið.“ A seinni síldarárunum upp úr 1980 byrjuðu sfld- veiðarnar ekki fyrr en í október. Mikil veiði var inni á firðinum og allir sem vettlingi gátu valdið fengu vinnu. Oft var gefið frí í grunnskólanum til að taka á móti tunnum, salta eða annað. Á árunum 1980 - 1990 var mjög mikið saltað og ár eftir ár var Pólarsíld meðal stærstu söltunar- stöðva landsins og eitt árið voru saltaðar rúmar 26 þúsund tunnur eða um 13% af heildarsöltun á landinu. Hver hafði sitt ákveðna svæði við færibandið og eitthvað var um að karlmenn söltuðu, þeir voru sumir mjög fljótir. Oft var það þannig að konur skáru en karlar söltuðu í tunnurnar. Eitthvað var um að krakkarnir stæðu á tunnulokum og settu síldina í tunnur. Helga er alin upp við að sjá alltaf út á sjóinn og því voru mikil viðbrigði þegar mötuneyti Pólar- síldar var flutt í Álfabrekkuna. „Þá byrjaði ég að reykja, 42 ára gömul,“ segir Helga og bætir við að góðir söltunardagar þóttu þegar saltað var í yfir þúsund tunnur. Oft voru slegin söltunarmet og Helga bakaði þá rjómatertu og fór með á planið til að fagna. Síðasta árið sem er saltað var 1992. Síldarútvegs- nefnd sá um sölu á sfldinni fyrir allar söltunar- stöðvarnar. 70-80% af framleiðslunni fór til Sov- étríkjanna og restin til Norðurlandanna en þegar Sovétríkin féllu, féll salan á síldinni. Á fyrri árunum voru notuð 20 kg af salti í hverja tunnu sem minnkaði umtalsvert á seinni árunum. Uppúr 1980 minnkaði saltmagnið í 7 kg og þá var síldin ekki hausskorin. Þá var hætt að raða í tunnurnar og kom krafa um að geyma tunnurnar í kældri geymslu. Stóra skemman var byggð 1985 í þeim tilgangi. Fyrstu árin kom saltið í stórum fraktskipum en fór seinna að koma í stórum sekkjum. Tunnurnar komu á vörubflum ýmist frá Reykja- vík eða frá Siglufirði þar sem Síldarútvegsnefnd starfrækti verksmiðju. A árunum sem Már, bróðir Bergs var bankastjóri á Fáskrúðsfirði mátti Bergur ekki eiga viðskipti við útibú bankans á Fáskrúðsfirði. Helga keyrði því til Eskifjarðar til að fá þar peninga. „Að telja peningana í umslög starfsfólks var mikið vanda- verk, þeir duglegustu fengu væn umslög," segir Helga sem setti peningana í umslög og skellti þeim síðan undir lærin til að pressa þau. Þegar Már hætti í bankanum og Hreinn Hermannsson Fyrri söltunarárin voru tunnumargeymdar úti,pá voru bara notaðar trétunnur. 1966 var mest saltað áfyrri síldarárunum. 26púsund tunnur voru saltaðar eitt árið,pá 13% af heildarajlanum á landinu. 7

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.