Franskir dagar - 01.07.2013, Blaðsíða 8
(/jkamÁW cáujwv
tók við um 1980 fluttust viðskiptin til Lands-
bankans á Fáskrúðsfirði.
Stefán, einn eigandi Pólarsíldar, kom í heimsókn
á sumrin og var afar þægilegur í öllu samstarfi.
Þegar Stefán lést um 1986 keypti Bergur hlut
hans af erfmgjunum. Á sama tíma keypti hann
hlut Más út.
Bergur og Helga hófu að byggja sér hús árið 1969
er þau nefndu Garðsá og fluttu inn fyrir jólin ‘70.
Ekki náðist að nýta hluta af kjallaranum vegna
leka frá klöpp undir húsinu. Sigurður Einarsson
frá Odda teiknaði húsið. Góðlátlegt grín var
gert að fjölda klósetta í húsinu en þau eru fjögur.
Sennilega fýrsta húsið á Búðum sem hafði sér
baðherbergi inn af hjónaherberginu.
Heimamenn komu og hjálpuðu til við bygginguna
eins og algengt var á þeim árum en yfirsmiður
var Sölvi Olason.
Margir lærðu á bíl hjá Bergi, hann byrjaði að
kenna á bíl fyrsta söltunarsumarið. Það fór enginn
í próf frá Bergi fyrr en hann gat bakkað niður
Staðarskarðið, eða þá bakkað frá Oddeyri suður
að Sævarenda. Ástæða þess að hann lagði mikla
áherslu á að fólk kynni að bakka var sú að eitt
sinn voru Bergur og Helga á ferð upp á Breið-
dalsheiði, þar var vegurinn svo þröngur að ekki
var hægt að mætast. Efst í brekkunni mættu þau
konu sem ekki bakkaði til baka þó stutt væri.
Heldur bakkaði Bergur alla leiðina niður til að
geta mætt konunni. Þannig kom þessi siður til
að þurfa að bakka langar leiðir.
ENDALOK OG NÝTT UPPHAF
Upp úr 1990 fór að halla undan fæti. Vandamálið
var ekki skortur á síld heldur að ekki var hægt
að selja til Rússlands. 1993 fór Bergur og óskaði
eftir gjaldþrotaskiptum án þess að kröfuhafar
hefðu farið fram á gjaldþrot. Héraðsdómarinn á
Egilsstöðum sagði honum að fara heim og hugsa
máfið en Bergur sá hins vegar ekki framtíð fyrir
fyrirtækið og sagði: „Eg vil heldur fara út úr þessu
sem aumingi en þjófur.”Þeir sem töpuðu á gjald-
þrotinu voru aðallega opinberir sjóðir.
Síðustu árin á Pólarsíld sátu Helga og Bergur uppi
með allmikið magn af sfld, þá byrjaði Bergur að
selja sfld í Kolaportinu. Helga marineraði fyrir
austan og Bergur keyrði suður á föstudögum
til að selja.
Árið 1994 fluttu Helga og Bergur alfarin í Kópa-
voginn, þau héldu áfram að marinera sfld og selja
allt þar til Bergur varð bráðkvaddur í júní 1998.
Eftir það vann Helga við gangavörslu og þrif í
Kópavogsskóla þar til hún lét af störfum vegna
aldurs 2007.
Tilboð um Franska daga.
Frönsk lauksúpa
Hamborgaratilboð • Pizzatilboð
Pylsutilboð • Réttur dagsins
Áprentaðirboliro.fl.
SÖLUSKÁLI S.J. FASKRUÐSFIRÐI & 475 1490
SKYNDIBITASTAÐUR OG BENSÍNSTÖÐ VIÐ ÞJÓÐVEGINN OPNUNARTÍMI KL. 9-22 ALLA DAGA
8