Franskir dagar - 01.07.2013, Qupperneq 12
Texti:Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
Mynd er úr einkasafni
( Jham/iií cJaawts
j^jesjouttj^ancaú
Ættarmót
niðja hjónanna fráTanga
Jóns Davíðssonar (1875-1954) og
Jóhönnu Hólmfríðar Kristjánsdóttur (1888-1971)
Jón var fæddur í Miklagarði í Eyjafirði. Gagn-
fræðingur frá Möðruvöllum og kennari frá Flens-
borgarskóla árið 1895. Verslunar-og afgreiðslu-
störf voru aðalstörf hans. Einnig gegndi hann
ýmsum félags- og trúnaðarstörfum á Fáskrúðs-
firði. Hann var lengi hreppsnefndarmaður og
hreppstjóri, var formaður skólanefndar mörg ár,
og í sóknarnefnd, sáttanefndarmaður, sat í stjórn
Sparisjóðsins o.fl.
Hann var verslunarstjóri við verslun Tuliniusar
áTanga Fáskrúðsfirði 1902 og síðar hjá Hinum
sameinuðu íslensku verslunum á meðan fyrir-
tækið starfaði í húsinu. Þá eignaðist hann versl-
unina og rak hana uns Kaupfélagið keypti eignina
árið 1933 og fjölskyldan fiutti á Sunnuhvol.
Jóhanna Hólmfríður Kristjánsdóttir var fædd
á Gunnólfsvík á Langanesi og ólst þar upp og
einnig á Seyðisfirði. Hún var um tvítugt við nám
í Húsmæðraskólanum í Reykjavík þegar hún
var valin í hóp þeirra sem voru í þjónustu hjá
Hannesi Hafstein ráðherra við konungskomuna
1907 þegar Friðrik VIII heimsótti Island. Fyrir
íslendinga var konungskoman stór stund og
mikil framkvæmd. Haldnar voru daglegar stórar
veislur með meiri viðhöfn en sést hafði í landinu.
Þessi lífsreynsla hefiir haft sín áhrif á unga konu
og þótti Jóhanna einstök húsmóðir og fær við
allt heimilishald eins og heimili þeirra hjóna bar
glöggt vitni um en þar var gjarnan gestkvæmt
og mannmargt.
Þau Jóhanna ogjón eignuðust fjögur börn, sem
öll voru fædd á Tanga; Þorvaldur f. 1908, Sig-
ríður f. 1910, Margrét f. 1914 og Berta Andrea
f. 1924. Niðjar þessara systkina halda sitt fyrsta
ættarmót nú um Franska daga á Fáskrúðsfirði og
er búist við góðri þátttöku, en niðjahópurinn er
dreifður um landið og teygir sig til Færeyja þar
sem ein systranna bjó.
12