Franskir dagar - 01.07.2013, Síða 27
Tante Anne.
dreng og tvíbura-
dætur með Ragn-
heiði konu sinni.
Þegar Gunnar fædd-
ist var afi var orðinn
44 ára og amma 37
ára.
Hún amma varð
blind um sextugt,
hún hafði verið
með sykursýki frá
því að hún var 26
ára gömul og þurfti
að sprauta sig með
insúlíni. A eldavélinni í læknishúsinu var alltaf
pottur með ný soðnum sprautum og nálum og
tilbúið fýrir næstu sprautu, þetta var ekki eins
og í dag, einnota og hárfínar nálar.
Þegar þau komu til landsins átti búslóðin að
íýlgja, en hún kom ekki fyrr en fimm árum seinna
eftir stríð þannig að þau komu sér upp annarri
búslóð og kom það ekki að sök þar sem læknis-
húsið var það stórt að allt komst þetta vel fyrir.
Eftir þeirra dag fékk ég forláta lyfjavigt, sem gerð
var úr hornum, úr apótekinu, sem ég lét Albert
Eiríksson hafa á saihið Fransmenn á íslandi á
Fáskrúðsfirði.
Ég á svo sterka minningu af ömmu inni í stáss-
stofunni. Þar átti amma plötuspilara og spilaði
alltaf klassískar plötur með lögum eftir Beet-
hoven, Bach og fleiri. Þetta er eins og málverk
í huga mér.
Amma lést árið 1974 en afi 1976. Hún varð
því ekki nema 67 ára gömul. Afi lét af störfum
1972 og þau fluttu í hús sem þau höfðu byggt í
Kópavogi. Afi fór bara einu
sinni í frí öll þau ár sem hann
starfaði sem héraðslæknir -
en amma reyndi að fara öll
sumur eftir stríðið í sumarfrí
til Danmerkur.
Eg vildi óska að ég hefði
haft þann þroska og áhuga
að skrifa lífssögu ömmu.
En það gerði ég ekki, en get
ímyndað mér að stundum
hafi hún látið hugann reika
heim til Kaupmannahafnar,
sveitsemrsins og þess h'fsstíls
sem hún ólst upp við. Hins
vegar finnst mér þetta alvöru
ástarsaga. Ung kona sem er
uppalin nánast á Strikinu,
menntaður læknir og einhleyp, tekur að sér tvö
börn mannsins síns og elur þau upp. Fáskrúðs-
fjörður er ekki líkur Borgundarhólmi né Kaup-
mannahöfn, en það er greinilegt að þar leið frú
Lim vel.
Henni gleymi ég aldrei.
wsa/gigmm
Víi
ÍÉ
Birna Sigurðardóttir höfundur greinarinnar með Tante Anne
kökuna sem er enn pann dag í dag í miklu uppáhaldi hjá
jjölskyldunni.
Tante Anne
190 g púðursykur
100 g smjör (smjörlíki)
2egg
250 g hveiti
1 tsk. matarsódi
1 tsk. kanill
1 1/2 dl mjólk
Smyrjið deigi á ofnplötu (smjörpappír undir)
Bakið við 175 °C í 15 mín.
Látið kökuna kólna og skerið í þrennt.
Setjið hefðbundið smjörkrem á milli laga.
Glassúr
5 msk. smjör (smjörlíki)
5 msk. flórsykur
5 msk. kakó
5 msk. rjómi
Setjið allt í pott, hrærið og hitið að suðu.
Smyrjið glassúr á alla kökuna og stráið rönd af
kökuskrauti ofan á.
Lita, Gunnar og Haraldur.
Amma sagði alltaf að besti tími hennar hafi verið
þegar þau afi fóm saman til Kúlusúk á Græn-
landi að vinna í eitt ár sem læknar áður en þau
fluttu á Fáskrúðsfjörð.
Amma og afi eignuðust dreng saman, Gunnar,
sem er fæddur 1944 og hann á þrjú börn, einn
gæsina inn á Gestsstöðum og fór reglulega til
að pota í hana og kom með tilmæli um hvaða
fræ eða bygg ætti að gefa henni. Þannig að ég
ólst upp við afigæs á jólum, fyhta með eplum.
Þetta þekktu ekki margir í þá daga. Amma bjó
til lifrarpaté, karrýsíld, marineraða sfld og þetta
ásamt heimabökuðu brauði bar hún á borð um
kvöldmatarleytið ásamt afgöngum frá því í há-
deginu. Ris a la mande var óþekkt hér og sósuna
sem var borin með, bjó hún til úr rifsberjum úr
garðinum. Amma bakaði h'ka oft köku sem hét
„Tante Anne“ og ég held að margir Fáskrúðs-
firðingar hafi fengið uppskriftina á þeim tíma
(sjá uppskrift hér til hhðar).
Eins og ég hef sagt var amma mjög reglusöm.
Það átti enginn að brjóta reglur og heldur ekki
hún. Hún reykti fjórar tyrkneskar sígarettur yfir
daginn, hvorki meira né minna. Síðustu sígarettu
dagsins reykti hún eftir kvöldmat og þá átti hún
það til að fá sér púrtvínsglas og það var einungis
drukkið eitt glas, hvorki meira né minna. Þá
sagði hún alltaf: „Det er dejligt..."
Skipulag ömmu var engu líkt, bæjarbúar stilltu
klukkuna sína þegar amma og afi fóru í sinn
daglega göngutúr.
Innréttingin í apótekinu var eins og í þessum
gömlu apótekum um land aht. Lyfin voru geymd
í hvítum og brúnum krukkum í hillum sem
náðu upp í loft og þessi sérstaka lykt sem var í
Læknishúsinu, sem var sambland af magamixtúru
og ilminum úr eldhúsi ömmu. Það er sorglegt tfl
þess að hugsa að öhum þessum innréttingum og
tækjum skuh hafa verið hent á haugana þegar
þau fluttu frá Fáskrúðsfirði og læknishúsinu
var breytt.
27