Frjáls verslun - 01.08.2005, Page 19
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5 19
FRÉTTIR
���������� �� �� ��������� ��������������
������������� ���� ��������� �������������
�������������
J
afnréttismál eru ekki einvörð-
ungu mál kvenna, heldur
beggja kynja,“ segir Margrét
Kristmannsdóttir í Pfaff, formaður
Félags kvenna í atvinnurekstri.
Fjölmenni var á morgunverðar-
fundi FKA og Viðskiptaráðs á
dögunum þar sem velt er upp
þeirri spurningu hvort auka mætti
hagnað fyrirtækja með því að
bæði kynin kæmu í ríkari mæli
að stjórnun þeirra. Framsögu-
menn á fundinum voru Lisa Levey
frá Catalyst í Bandaríkjunum og
Þóranna Jónsdóttir stjórnendaráð-
gjafi hjá Kaliber Consulting.
„Allar rannsóknir sýna að
aðkoma beggja kynja að stjórn
fyrirtækja skilar betri afkomu.
Kynin vega hvort annað upp.
Fram hjá þessari staðreynd, sem
æ fleiri rannsóknir styðja, geta
engir ábyrgir stjórnendur litið,“
segir Margrét.
Fimm karlar, sem allir eru í
lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi,
voru þátttakendur í pallborðsum-
ræðum á fundinum. Fram kom
í máli þeirra að meðal þess
sem skorti í stjórnunarháttum
kvenna væri meira af því sem
kalla mætti bardagaeðli. Því voru
fundarkonur ósammála, en þær
voru 140 en karlarnir sem fund-
inn sátu ekki nema um 20, að
meðtöldum þeim sem tóku þátt í
pallboðsumræðum.
Þóranna Jónsdóttir ráðgjafi kynnti rannsókn sem sýnir að jöfn
aðkoma kynja að stjórnun bætir afkomu.
Jafnrétti eykur hagnað
Kappar úr forystusveit atvinnulífsins sátu fyrir svörum. Frá vinstri talið: Steinn Logi Björnsson, Ari Edwald,
Erlendur Hjaltason, Jón Karl Ólafsson og Hreggviður Jónsson.