Frjáls verslun - 01.08.2005, Page 22
FRÉTTIR
22 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5
Me› KB Tekjuvernd er bili› brúa› sem myndast milli núverandi rá›stöfunartekna flinna
og grei›slna sem flú átt rétt á ver›ir flú fyrir launamissi af völdum sjúkdóma, örorku
e›a andláts. fiú fær› yfirs‡n yfir flá tryggingavernd sem flú n‡tur í dag og vísbendingar
um frekari tryggingaflörf. fiannig getur flú komi› í veg fyrir a› flú sért vantrygg›/ur
e›a oftrygg›/ur.
KB Tekjuvernd au›veldar flér einnig a› ákvar›a starfslok flín á einfaldan hátt.
KB Tekjuvernd er hagkvæm vernd sem dregur úr launamissi sem kann a› ver›a
vegna sjúkdóma, örorku, andláts e›a starfsloka.
Kanna›u máli›
!
Bóka›u fund h
já rá›gjafa á w
ww.kbbanki.is
,
í síma 444 700
0 e›a í næsta ú
tibúi KB banka
.
Vi› reiknum út
KB Tekjuvernd
mi›a› vi›
flínar a›stæ›u
r.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
KB Líftryggingar hf., Sóltúni 26, 105 Reykjavík
Allar persónutryggingar í KB Tekjuvernd koma frá KB lífi
B
enedikt Olgeirsson og
Reimar Pétursson hafa verið
ráðnir í nýjar stöður fram-
kvæmdastjóra hjá Atorku Group.
Þá hefur Guðný Rósa Þorvarðar-
dóttir verið ráðin framkvæmda-
stjóri Parlogis hf. (hét áður Lyfja-
dreifing) sem Atorka Group á.
Benedikt verður framkvæmda-
stjóri umbreytingaverkefna hjá
Atorku Group. Hann er verkfræð-
ingur frá Háskóla Íslands og lauk
meistaraprófi frá University of
Washington í Seattle árið 1987.
Hann hefur undanfarið eitt og
hálft ár verið framkvæmdastjóri
Parlogis.
Reimar Pétursson er fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar
hjá Atorku Group. Hann stjórnar
fjárfestingu Atorku Group og
starfar auk þess að stefnumótun
og rekstri félagsins. Hann er
lögfræðingur frá Háskóla Íslands
og stundaði nám í fjármála- og
viðskiptatengdri lögfræði við Col-
umbia University í New York og
útskrifaðist þaðan með meistara-
próf í lögfræði árið 2003.
Guðný Rósa Þorvarðardóttir,
framkvæmdastjóri Parlogis, er
viðskiptafræðingur og starfaði
sem markaðs- og innkaupastjóri
Skeljungs frá 1996 til 2005. Hún
hefur frá því í apríl sl. verið mark-
aðsstjóri Parlogis.
Nýir framkvæmdastjórar Atorku Group
Reimar Pétursson.Benedikt Olgeirsson. Guðný Rósa Þorvarðardóttir.
E
lfur Logadóttir, sem er í meistaranámi í
lögum við Háskólann í Reykjavík, vann
að mestu listann yfir 300 stærstu fyrir-
tæki landsins fyrir Frjálsa verslun í sumar.
Bókin er 8. tbl. Frjálsrar verslunar.
Elfur er viðskiptafræðingur frá Háskól-
anum í Reykjavík og með BA próf í lögfræði
frá sama skóla. Upplýsingasöfnunin við 300
stærstu hófst snemma í sumar og henni
lauk ekki fyrr en í lok september. Þótt list-
inn gangi undir heitinu 300 stærstu eru yfir
400 fyrirtæki og stofnanir nefnd í bókinni.
Frjáls verslun þakkar Elfi fyrir samstarfið
í sumar sem og þeim fyrirtækjum sem
sendu inn upplýsingar.
-Ritstj. Elfur Logadóttir.
ELFUR VANN 300 STÆRSTU