Frjáls verslun - 01.08.2005, Blaðsíða 25
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5 25
N
ýherji hf. hefur undir-
ritað samning um kaup á
danska SAP ráðgjafar- og
hugbúnaðarfyrirtækinu AppliCon
A/S. Fyrirtækið er einn stærsti
samstarfsaðili SAP í Danmörku
og eitt af öflugri SAP ráðgjafar-
fyrirtækjum þar í landi. Kaupin
eru í samræmi við stefnu
Nýherja að auka starfsemi fyrir-
tækisins erlendis á sviði hug-
búnaðarþjónustu og upplýsinga-
tækni.
Í frétt frá Nýherja segir að
AppliCon A/S hafi verið stofnað
árið 1998 og hafi á að skipa
um 50 mjög reyndum SAP ráð-
gjöfum, sem eru í fremstu röð á
danska markaðnum. Fyrirtækið
býr yfir víðtækri SAP þekkingu
og langri starfsreynslu ráðgjafa
sinna.
Í fyrra útnefndi danska tíma-
ritið Computerworld AppliCon
A/S hæfasta fyrirtækið á sviði
innleiðingar upplýsingakerfa.
Það hefur verið í örum vexti
og skilað hagnaði frá upphafi.
Fyrirtækið vinnur nú að upp-
setningu SAP hugbúnaðar hjá
ýmsum stórum dönskum fyrir-
tækjum.
Öflugt teymi stjórnenda
starfar hjá AppliCon A/S,
og verða engar breytingar
gerðar á stjórnendahópnum.
Framkvæmdastjóri félagsins í
Danmörku er Martin Nørballe,
en hann starfaði áður sem yfir-
maður ráðgjafardeildar SAP í
Danmörku. Aðrir lykilstjórnendur
eru Christian Bruun, yfirmaður
ráðgjafarsviðs, Jacob Mørk, fjár-
málastjóri félagsins og Per Falk
Jensen sölustjóri.
Kristján Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs
Nýherja, tekur við nýju starfi
framkvæmdastjóra AppliCon
ehf. og mun stýra uppbyggingu
félagsins hér á landi. Hinrik A.
Hansen, deildarstjóri SAP hug-
búnaðarlausna Nýherja, tekur
við nýju starfi sem framkvæmda-
stjóri erlendra markaða og mun
leiða markaðssókn og rekstur
AppliCon á nýjum erlendum
mörkuðum.
Rekstri og þjónustu AppliCon
verður stýrt mjög sjálfstætt
af stjórnendum í hverju landi.
Sameiginleg markaðsstarfsemi
og virkjun samlegðaráhrifa
verður hins vegar á ábyrgð fram-
kvæmdastjórnar sem þeir Hinrik
A. Hansen, Martin Nørballe,
Christian Bruun og Kristján
Jóhannsson skipa, undir forystu
Kristjáns.
FRÉTTIR
• AppliCon ehf. verður
stofnað um hugbúnaðar-
þjónustu Nýherja hér á
landi.
• Allir lykilstjórnendur
AppliCon A/S starfa
áfram hjá félaginu.
• Áform um frekari
uppbyggingu starfsem-
innar í nágrannalöndunum
undir nafni AppliCon.
• Eitt af stærri sérhæfðum
SAP hugbúnaðarhúsum á
Norðurlöndum.
• Áætluð velta sameigin-
legs félags er 1.500
milljónir króna árið 2005.
• Mörg sóknarfæri á ört
vaxandi markaði.
Nýherji kaupir AppliCon í Danmörku
Í fremri röð frá vinstri: Kristján Jóhannsson, framkvæmdastjóri AppliCon ehf., Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, Benedikt Jóhannesson,
stjórnarformaður Nýherja, Jacob Mørk, fjármálastjóri félagsins AppliCon A/S og Martin Nørballe, framkvæmdastjóri AppliCon A/S. Í aftari röð
frá vinstri: Friðrik Snorrason, markaðsstjóri Nýherja, Hinrik A. Hansen, deildarstjóri SAP hugbúnaðarlausna Nýherja, Steen Kofoed, ráðgjafi
og hluthafi í AppliCon A/S, Christian Bruun, yfirmaður ráðgjafasviðs AppliCon A/S, og Lars Dolmer Hansen, deildarstjóri hjá AppliCon A/S.Baldur kynnti skipuritið á NASA