Frjáls verslun - 01.08.2005, Page 129
F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5 129
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
MYND: GEIR ÓLAFSSON
Starfsemi ÍSAM sífellt fjölþættari með
innflutningi, eigin framleiðslu og rekstri
veitingahúsa. Góður gangur í rekstri.FJÖLBREYTNI ER OKKAR STYRKUR
Egill Ágústsson,
framkvæmdastjóri
Íslensk ameríska.
A
llar áætlanir sem við hjá ÍSAM
gerðum fyrir árið ganga upp. Salan
er umfram væntingar eftir fyrstu
mánuði ársins og þeir næstu líta
þokkalega út. Varðandi næsta
ár erum við hóflega bjartsýn, búumst að
minnsta kosti ekki við jafnmiklum vexti og í
ár,“ segir Egill Ágústsson, framkvæmdastjóri
ÍSAM. Starfsemi fyrirtækisins hefur breyst á
undanförnum árum frá því að vera fjölþætt
innflutningsverslun í að starfrækja jafnframt
nokkur framleiðslufyrirtæki og veitinga-
staði. ÍSAM rekur nú Ora, Mylluna, Frón
og Kexsmiðjuna á Akureyri - jafnframt því
að starfrækja - ásamt fleirum - veitingastaði
undir merkjum Burger King og Friday´s.
Því til viðbótar er Allied Domeque sem er
sérhæft fyrirtæki í innflutningi áfengis og í
helmingseigu ÍSAM.
Vinsælir veitingastaðir „Íslensku vörurnar
standa sig almennt mjög vel, þrátt fyrir
mikla samkeppni við erlendar vörur,“ segir
Egill. „Okkar helsti styrkur eru gæði fram-
leiðslunnar, fjölbreytileiki og hraði til að
mæta síbreytilegum aðstæðum á markaði.
Við höfum kynnt fjölda nýjunga undanfarið
og þær standa undir vexti okkar rekstrar á
árinu.“
Um starfsemi veitingastaðanna segir Egill
að Burger King hafi aðeins starfað hér á
landi í tvö ár en á þeim tíma hafi vinsældir og
velta staðanna sífellt verið að aukast. „Velta
Fridays´s hefur aukist verulega á árinu. Það
hefur sýnt sig að uppbygging öflugs rekstrar
í þessum geira tekur nokkurn tíma, en að
fenginni þeirri reynslu sem við höfum aflað
okkur er ástæða til bjartsýni.“
Erlend þekking nýtist vel Reynslan af því
að vera jöfnum höndum í innflutningi, fram-
leiðslustarfsemi og rekstri vetingastaða er
góð, að sögn Egils.„Ora, Myllan, Frón og
Kexsmiðjan parast einkar vel við innflutn-
inginn. Við höfum aflað okkur mikillar
reynslu af samstarfi við stærstu fyrirtæki
heimsins á sviði neytendavöru, eins og
Procter og Gamble, svo dæmi sé tekið,
sem við höfum nýtt við sölu og markaðs-
setningu okkar eigin vörumerkja. Hvað veit-
ingareksturinn varðar erum við hjá ÍSAM
með þrjá fríska meðeigendur sem hver um
sig gegnir ákveðnu hlutverki í samstarfinu.
Það fyrirkomulag gefst vel og samstaðan í
hópnum er góð.“
Útflutningur hjá Ora er erfiður eins og
hjá öðrum um þessar mundir vegna hás
gengis krónunnar, segir Egill Ágústsson.
„Við höfum flutt úr töluvert af sjávarfangi
eins og kavíar og fiskibollum en höfum
ekki fengið það verð sem við þurfum vegna
hás gengis krónunnar. Annars hefur stærsta
vandamál okkar á þessu ári verið að manna
verksmiðjurnar. Spennan á vinnumarkaði
innanlands er mikil og ekki hlaupið að því
að fá fólk til starfa. En sem betur fer höfum
við samt fastan kjarna af tryggu og öflugu
starfsfólki sem hefur leyst úr þessum vanda
með okkur.“
Ef menn sinna sínu vel Hér á landi sem og
erlendis er þróunin sú að matvörukeðjunum
fækkar og þær sem áfram starfa stækka.
„Þessi þróun hefur orðið okkur hvatning
til að fara út í fjölbreyttari rekstur, aukna
hagræðingu og enn frekari vélvæðingu til
að mæta kröfum um lægra verð, meiri fag-
mennsku og aukin gæði. Ef menn sinna sínu
vel er engin ástæða til að óttast framtíðina.
Íslensk framleiðslufyrirtæki njóta almennt
mikilla vinsælda hjá neytendum og þau sem
hafa lifað af harða samkeppni undanfarinna
ára ættu að hafa svigrúm til að dafna. Þó
ber að fara varlega á næstu árum, ná góðum
tökum á þeim rekstri sem menn stunda áður
en farið er í ný verkefni. Vera samt alltaf
opinn fyrir skynsamlegum tækifærum sem
kunna að bjóðast.“
NR. 72 Á AÐALLISTA