Frjáls verslun - 01.08.2005, Blaðsíða 166
166 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5
300STÆRSTU
BERGSTEINN EINARSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI SETS
Hvað hefur komið þér mest á óvart í viðskiptalífinu á árinu?
Hversu mikill hagnaður bankanna er miðað við árangur ríkisins af
sama rekstri á árum áður undir forystu stjórnmálamanna. Sá hag-
naður er kominn langt fram úr því sem venjulegt fólk skilur, sem þarf
hins vegar alls ekki að vera neikvætt.
Mun afkoma fyrirtækis þíns verða betri í ár en í fyrra?
Afkoman verður betri vegna tekjuauka af miklum framkvæmdum á
sviði orku-, stóriðju- og byggingaframkvæmda.
Hvað hefur einkennt rekstur fyrirtækis þíns á þessu ári og
mun það ná settum markmiðum? Helsta viðfangsefni okkar er
að halda í við aukna eftirspurn eftir vörum okkar, á tímum minnkandi
framboðs vinnuafls. Flutningur á hluta framleiðslu okkar til annarra
landa er jafnvel tímabær af þeim sökum. Við það bætist truflun af illa
ígrunduðu foreldraorlofi, sem kom á versta tíma. Foreldraorlofið hefur
getið af sér óróa og hreyfingu á vinnumarkaði, mikla misnotkun,
skattsvik og svarta atvinnuþátttöku. Stjórnmálamenn eru algjörlega
úr tengslum við raunveruleikann í þessu máli og vita ekkert hvað er
að gerast. Þeir munu hins vegar verða síðastir til að viðurkenna að
framkvæmdin sé að flestu leyti misheppnuð.
Telur þú að aðstæður í efnahagslífinu batni eða versni á árinu
2005? Það þarf að lægja ölduna eitthvað og ná áttum ef við eigum
ekki að fara kollsteypu í efnahags- og gengismálum. Aðalatriðið er
að lenda hagkerfinu á réttan hátt hægt og rólega og byrja strax.
Telur þú að verð á íslenskum hlutabréfamarkaði haldi áfram
að hækka? Ákveðið jafnvægi hlýtur að komast á og áhrif innlenda
hluta efnahagskerfisins eru stöðugt að verða léttvægari. Þannig
ættu sveiflur að minnka með tíð og tíma með vaxandi heimsvæðingu
íslensks atvinnulífs.
GEIR GUNNARSSON,
FRAMKVÆMDASTJÓRI BERNHARÐS
Hvað hefur komið þér mest á óvart í viðskiptalífinu á árinu?
Mér hefur helst komið á óvart hve óhemju sterkt íslenska efnahag-
skerfið er, raunar mun sterkara en ég hafði talið. Staða krónunnar
er mun sterkari en allar spár gerðu ráð fyrir, kaupmáttur launa hefur
aukist meira en vænta mátti og atvinnuleysi er ekki til. Vextir eru
líkir því sem gerist í viðskiptalöndum okkar.
Mun afkoma fyrirtækis þíns verða betri í ár en í fyrra?
Afkoma fyrirtækisins er betri í ár en hún var í fyrra og hygg að sú sé
raunin í allri bílgreininni.
Hvað hefur einkennt rekstur fyrirtækis þíns á þessu ári og mun
það ná settum markmiðum? Mikill innflutningur og eftirspurn eftir
bifreiðum er sömuleiðis mikill. Við höfum farið fram úr þeim áætl-
unum sem við gerðum fyrir árið.
Telur þú að aðstæður í efnahagslífinu batni eða versni á árinu
2006? Eins og landið liggur í dag bendir ekkert til annars en hér
muni áfram ríkja góðar aðstæður í efnahagslífinu. Hagvöxtur verður
svipaður og hann hefur verið á líðandi ári. Gengi krónunnar gæti þó
gefið lítillega eftir. Ég tel þó víst að bílainnflutningur muni dragast
lítillega saman.
Telur þú að verð á íslenskum hlutabréfamarkaði haldi áfram
að hækka? Hér hefur verið mikið framboð af lausafé sem menn
hafa þurft að festa. Væntingar hafa verið miklar og þetta allt hefur
hækkað hlutabréfaverð – sem nú er farið að leita að jafnvægispunkti
sem er eitthvað neðar er nú er.
Velta: 792 milljónir
Hagn. f. skatta: 26 milljónir
Eigið fé: 169 milljónir
Velta: 2,1 milljarðar
STÆRSTA STÆRSTA
„Íslenska efnahagskerfið er raunar mun
sterkara en ég hafði talið.“
- Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri Bernharðs.
112200
„Foreldraorlofið hefur getið af sér ... mikla
misnotkun, skattsvik og svarta atvinnuþátttöku.“
-Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Sets hf. á Selfossi