Frjáls verslun - 01.08.2005, Blaðsíða 170
Ó
, ó, ég sé hvert þetta stefnir!“ segir
Jack Welch þegar prófessorinn
kynnir gestinn með því að skír-
skota til þess hvernig sumir nái
því að verða varanleg fyrirmynd: allir sjái
fyrir sér Einstein með hárið í allar áttir þegar
vísindi beri á góma. „Og lítinn sköllóttan
kall þegar forstjórar eru annars
vegar,“ botnar Welch og hláturinn
kraumar í honum. Og mikið rétt,
hann er lágvaxinn og sköllóttur en
þessi tæplega sjötugi maður er eitil-
hress og sjaldan svars vant á sviðinu í
London School of Economics þar sem
hann situr fyrir svörum prófessorsins og
áheyrenda.
Hún tók við hann viðtal - þau urðu
elskendur Welch er á yfirreið um heiminn
til að kynna nýju bókina sína, „Winning“
- hvorki meira né minna - ásamt meðhöf-
undinum og eiginkonunni Suzy, sem hét
Wetlaufer þar til þau Jack rugluðu saman
reitum. Suzy, 45 ára, átti að baki glæstan
blaðamannaferil, síðast sem ritstjóri hins
virta Harward Business Review, þegar hún
hitti Welch til að taka viðtal við þennan ofur-
fræga fyrrum forstjóra General Electric.
Viðtalinu er eiginlega ekki lokið, þau urðu
elskendur, hún missti vinnuna og Welch
mátti þola skilnað í sviðsljósinu. Fyrrum eig-
inkonan, númer tvö í röðinni, dró hann í rétt-
inn fyrir snautlegan viðskilnað og rökstuddi
kröfur sínar með starfslokasamningi Welch
og GE sem var svo rausnarlegur að mörgum
ofbauð - líkt og tilstandið þegar Welch hætti
störfum. Welch lýsti því svo á sínum tíma
að hann hefði þurft að velja á milli þess að
hafna samningunum - sem hefði litið út eins
og hann hefði gert eitthvað rangt - eða fá á
sig græðgismyndina, sem hefur síðan fest við
hann. Að gefnu tilefni bendir Welch því á að
afrakstur bókarinnar fari í styrktarsjóð fyrir
námsmenn sem Welch-hjónin hafa stofnað.
150 þúsund dollara fyrir fyrirlesturinn
Welch hóf störf hjá GE 1960, þá nýútskrif-
aður með doktorspróf í efnaverkfræði, varð
forstjóri 1981 og næstu tuttugu árin. Þetta
voru glæstir tímar, GE margvalið virtasta
fyrirtæki heims og Welch fyrirmyndin mikla.
Núna eys hann af reynslunni, bæði sem
ráðgjafi nokkurra útvalinna fyrirtækja og
í fyrirlestrum, taxtinn ku vera 150 þúsund
dalir ef einhvern vantar fyrirlesara, og loks
er það „Winning“.
AÐ VINNA
Sjálfsævisaga viðskiptajöfursins Jack Welch kom út 2001 og þótti heldur þunn
- en með blaðamanninum og eiginkonunni Suzy Welch hefur hann nú skrifað harð-
snúna bók um stjórnunarreynslu sína. Sigrún Davíðsdóttir heyrði í honum í London.
MEÐ NÝRRI KONU!
TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
170 F R J Á L S V E R S L U N • 8 . T B L . 2 0 0 5
J A C K W E L C H