Víkurfréttir - 12.06.2008, Side 4
4 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 24. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
á þvottavélum og þurrkurum
Steinar Ragnarsson
sími: 8486109
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og sonur,
Þórður Þórðarson, Danni,
áður til heimilis í Keflavík og á Álftanesi,
andaðist á Holstebro Sygehus fimmtudaginn 29. maí.
Minningarathöfn fer fram í Garðakirkju
föstudaginn 13. júní kl. 14.00.
Guðmundur Þorkell Þórðarson,
Elenora Ósk Þórðardóttir, David Trevor Park,
Jón Þór Ágústsson,
Alexandra Ósk Guðmundsdóttir,
Embrek Snær Arnarsson,
Heimir Berg Guðmundsson,
Kári Trevor Park,
Þórður Kr. Jóhannesson.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, kom í heim-
sókn á Keflavíkurflugvöll í vikunni þar sem
hann kynnti sér starf Þróunarfélags Kefla-
víkurflugvallar og Keilis. Auk þess leit hann
við hjá frönsku flugsveitinni sem hefur verið
hér við æfingar og sinnt lofthelgisvörnum
síðustu vikur.
Sama dag reyndi einmitt á sveitina þegar hún
var send í veg fyrir tvær rússneskar flugvélar
sem komu inn í lofthelgina.
Geir sagði í viðtali við Víkurfréttir að sú aðgerð
hafi gengið vel. „Aðalatriðið er hins vegar það
að hér er verið að byggja upp þekkingu og
reynslu sem mun þjóna öllu Atlantshafsbanda-
laginu því að öryggi einnar þjóðar skiptir máli
fyrir öryggi allra hinna.“
Aðspurður hvort Frakkarnir væru nú komnir
í stað Kanans sagði Geir að ekki væri beint
hægt að segja það. „En þetta loftrýmiseftirlit
sem NATO hefur tekið að sér er að okkar dómi
mjög mikilvægt og framhald af þeirri starfsemi
sem Bandaríkjamenn voru hér með, en það
sýnir það jafnframt að það er mat bandalagsins
að það er full ástæða til að halda úti slíku eftir-
liti og að engin ein þjóð sé utan við slíkt.“
Geir sagði að lokum að Frökkunum hafi líkað
svo vel hér á landi að ákveðið hafi verið að
framlengja dvöl þeirra um eina viku.
Forsætisráðherra á ferðinni:
Heimsótti Kefla-
víkurflugvöll
Meirihlutinn í bæjarstjórn
Sandgerðis sat undir harðri
gagnrýni minnihlutans á
síðasta bæjarstjórnarfundi
þegar fjallað var um þátttöku
sveitarfélagins í Fasteign og
þá sér í lagi vegna viðbygg-
ing ar við grunn skól ann.
Minnihlutinn telur að í ljósi
veikrar stöðu Fasteignar á
lánamarkaði sé nauðsynlegt
að öll þátttaka Sandgerðis-
bæjar í félaginu verði tekin
til endurskoðunar.
Minnihlutinn í bæjarstjórn
átelur Eignarhaldfélagið Fast-
eign fyrir að bjóða ekki út
framkvæmdir við Grunnskól-
ann í Sandgerði upp á rúmlega
800 milljónir króna. Þá segir
minnihlutinn meirihlutann
vera kominn í vandræði með
þátttöku sinni í Fasteign, sam-
kvæmt því sem kemur fram í
bókunum frá fundinum.
Á fundinum kom til umræðu
lántaka Sandgerðisbæjar vegna
framkvæmda við grunnskól-
ann. Eins og komið hefur fram
í fréttum hyggst sveitarfélagið
taka lán hjá Lánasjóði sveitar-
félaga þar sem erfitt er fyrir
Fasteign að nálgast lánsfé eins
og ástandið er á fjármálamörk-
uðum um þessar mundir.
Í greinargerð sem bæjarstjóri
lagði fram segir m.a. að talið
hafi verið rétt að Sandgerðis-
bær sækti um umrætt lán þar
sem annað gæti orðið til þess
að seinka framkvæmdum við
grunnskólann. Í framhaldi
af greinargerðinni var lögð
fram tillaga um að taka 400
milljóna króna lán hjá Lána-
sjóði sveitarfélaga með veði í
tekjum sveitarfélagsins.
Minnihlutinn lagði fram breyt-
ingartillögu þar sem lagt var til
að framkvæmdin yrði sett inn
í Fasteignafélag Sandgerðis en
framseldist ekki til Fasteignar
hf. Sú breytingartillaga var
felld. Til laga meirihlutans
var samþykkt með atvæðum
meirihlutans en minnihlutinn
greiddi atkvæði á móti.
Sandgerði:
Enn tekist á um Fasteign
139kr/pk.
SÚKKULAÐIBITAR - 200 GR.
Capri
40%
afsláttur
469kr/kg.
Verð áður 782 kr/kg
KJÚKLINGUR - FERSKUR
Ísfugl
1.854kr/kg.
Verð áður 2.648 kr/kg.
LAMBALÆRISNEIÐAR - KRYDDAÐAR
Goða
31%
afsláttur
1.299kr/kg.
Verð áður 2.168 kr/kg
LAMBALÆRI - M/KRYDDJURTUM
Goða
40%
afsláttur
1.289kr/kg.
Verð áður 1.867 kr/kg.
GRÍSAHNAKKASNEIÐAR PIRI PIRI
Goða
31%
afsláttur
40%
afsláttur
199kr/stk.
Verð áður 249 kr/stk.
TÓMATSSÓSA
Hunt´s
725kr/kg.
Verð áður 1.209 kr/kg.
MEXÍKÓ GRILLPYLSUR
Goða
Um
br
ot
: A
ug
lýs
in
ga
st
of
a
Ví
ku
rfr
ét
ta
Hö
nn
un
:
-örugglega ódýrt!
Kefl avík • Breiðholt • Húsavík • www.kasko.is • verð birt með fyrirvara um prentvillur • Gildir 12. júní til 15. júní eða meðan birgðir endast
Spennandi helgartilboð