Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 22
22 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 24. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR Það er alltaf gaman að fylgj- ast með ungu fólki sem lætur sig málin varða og gefur af sér til samfélagsins. Laufey Erlendsdóttir er ung kona með ábyrgðarhlutverk sem forseti bæjarstjórnar í Garð- inum, grunnskólakennari og fjögurra barna móðir. Hún hefur búið í Garðinum með eiginmanni sínum Birni Vil- helmssyni síðan 1999. Reykjavíkurmær sæl í Garðinum Við hittumst á glæsilegum bæjarskrifstofum Garðs og komum okkur vel fyrir í fund- arherberginu þar sem Laufey ræður ríkjum á fundum sem forseti bæjarstjórnar. Laufey er fædd 1972, hún ólst upp í Breiðholtinu og gekk í skóla með yfir 1500 nem- endum. Hún á einn bróður sem er 3 árum yngri en hún. „Það var mjög gott að alast upp í Reykjavík og það er tölu- verður munur á skólanum sem við systkinin gengum í og þeim sem börnin mín ganga í. Hér þekkja allir alla og nem- endafjöldinn er um 250.“ Áður en Laufey flutti í Garð- inn var hún byrjuð að kenna við Gerðaskóla og bauð upp á leikfimi fyrir konur í íþrótta- miðstöðinni. Hún var því búin að kynnast mörgum bæjar- búum áður en hún flutti í Garð- inn, heimabæ eiginmannsins. Laufey segir að það hafi verið mjög notalegt að flytja í bæj- arfélagið vel hafi verið tekið á móti sér og hún hafi verið fljót að aðlagast. „Það er gott að búa í Garðinum og ég gæti ekki hugsað mér annað í dag.“ Það hlýtur að þurfa skipulag við að reka heimili með sex manna fjölskyldu, vinna fulla vinnu og vera í pólítik og nefnd- arstörfum? „Jú, við hjónin þurfum að vera skipulögð og skiptumst á að gæta bús og barna þegar mikið er um fundarsetur og önnur störf. Við erum bæði í nefndarstörfum.“ Björn er meðal annars núverandi for- maður íþrótta- og æskulýðs- nefndar og gjaldkeri unglinga- ráðs Knattspyrnudeildar Víðis. Það er kostur að vinna í svona litlu bæjarfélagi hvort sem það er í skólanum eða á bæjar- skrifstofunum. „Það tekur svo stuttan tíma að skjótast á milli staða. Ég þarf bara fimm mín- útur í að skjótast heiman frá mér til að sækja fundi á bæjar- skrifstofunum. Börnin stunda íþróttir og eru í tónlistarnámi og við sækjum flestalla þjón- ustu hér. Dóttir mín er í tónlist- arskólanum í Garði en þarf að sækja tíma í Reykjanesbæ eins og er og æfir fimleika með Keflavík. Elsti sonurinn spilar með lúðrasveit í Reykjanesbæ sem er hluti af samstarfi milli tónlistarskólanna. Tómstund- unum fylgir auka akstur sem krefst skipulagningar.“ Pólitískur bakgrunnur Margir stjórnmálamenn hafa á menntaskólaárum verið for- menn nemendafélaga skóla sinna. Laufey er einn af þeim en hún var formaður nem- endafélags Kvennaskólans í Reykjavík. Í Kvennaskólanum öðlaðist hún dýrmæta reynslu og áhuga á fé lagsstörfum. „Pólitískur áhugi minn hefur verið til staðar en aukist með árunum eftir að ég flutti í Garð- inn. Ég hef unnið að bæjar- málum frá kosningunum 2002 þá var ég í 6. sæti fyrir H-list- ann og sat í æskulýðsnefnd það kjörtímabil.“ Í Bæjarstjórnarkosningunum 2006 urðu stjórnarskipti í Garðinum, nýr listi tók við. Auk Laufeyjar sitja nú í bæj- arstjórn frá N-listanum þær Oddný Harðardóttir, Brynja Kristjánsdóttir og Særún Rósa Ástþórsdóttir. „Það er gaman að segja frá því að á mínum fyrsta bæjar- stjórnafundi var ég forseti bæj- arstjórnar.“ Laufey byrjaði bæj- arstjórnaferil sinn með stæl. Hún var ekki með mikla póli- tíska reynslu þegar hún var komin í bæjarstjórn og orðin forseti bæjarstjórnar. Laufey situr nú í sameinaðri nefnd bygginga- og skipulagsnefndar og húsanefndar íþróttamið- stöðvarinnar, sem hún gegndi áður formennsku í. Hún er einnig í stjórn Dvalarheimila aldraðra á Suðurnesjum. Fjölskylduvænn bær Hvað finnst Lauf eyju hafa staðið upp úr eftir að nýr meiri- hluti tók við? „Það hefur verið ánægjulegt að vera þátttakandi í þeirri upp- byggingu sem á sér stað hér í Garðinum. Við höfum fegrað og bætt umhverfi okkar, bætt þjónustu við einstæða for- eldra með lækkun á leikskóla- gjöldum, veitt 50% systkinaaf- slátt í tónlistarskólanum svo eitthvað sé nefnt.“ Skólastefna Sveitarfélagsins Garðs nær yfir grunn-, leik- og tónlistarskólann sem og æskulýðsstarf. Hún var gefin út í mars 2008. Laufey er mjög ánægð með hvernig til tókst með skólastefnu sveitarfélags- ins. Í Garðinum er glæsilegt íþrótta- hús, sundlaug og lyftingasalur. Vel er stutt við Knattspyrnu- deild Víðis sem og aðrar tóm- stundir. Knattspyrnudeildin hefur fínan knattspyrnuvöll, vallarhús og gott æfingasvæði. Bæjarstjórnin úthlutaði Skáta- félaginu aðstöðu í samkomu- húsinu og eru þeir að vinna gott starf. „Bæjarstjórnin hefur nýlega samþykkt að gera stórkost- legar endurbætur á aðstöðu við sundlaugina. Við erum að kaupa sundlaugarrennibraut ásamt því að fegra og bæta umhverfið við miðstöðina. Ég sem íþróttakennari og áhuga- manneskja um íþrótta- og tóm- stundamál, er rosalega ánægð með þjónustuna í íþrótta- og æskulýðsmálum. Það hefur verið aukið framboð íþrótta og tómstunda fyrir börn og unglinga. Það voru t.d. haldin körfuboltanámskeið, boðið uppá frjálsar íþróttir og kofa- byggð í samvinnu við skátana. Minn persónulegi draumur er að stofnuð verði frjáls- íþróttadeild hér í Garði,“ segir Laufey. Álverið Umhverfið hér á Suðurnesj- unum er að breytast mjög mikið með tilkomu háskóla- svæðisins á vallarsvæðinu og fjölgun íbúa á Suðurnesjum. Nú eru framkvæmdir hafnar við álver í Helguvík og hvað finnst Laufeyju um þær fram- kvæmdir? „Með til komu ál vers ins í Helguvík höfum við skynjað mikinn áhuga bæjarbúa. Ég persónulega fagna því að ál- verið sé að verða að veruleika. Það eykur fjölbreytni starfa á svæðinu bæði fyrir menntað og ómenntað fólk. Það eru enn margir einstaklingar í tímabundnum störfum eftir að herinn fór. Það verða mörg störf við álverið sem krefjast menntunar sem er námshvetj- andi fyrir íbúa svæðisins.“ Afmælishátíðin Í júní eru mikil hátíðarhöld í Garðinum, bæjarfélagið fagnar 100 ára afmæli og verður af- mælisdagurinn haldinn hátíð- legur 15. júní með formlegri dagskrá í íþróttamiðstöðinni og sýningum um allan bæ. 17. júní fara Garðbúar aftur í spariföt og fagna þjóðhátíðar- deginum með hefðbundnum hætti. Sólseturshátíðin verður 25.-27. júní en hún er farin að skipa fastan sess í bæjarlíf- inu. Heimamenn og gestir fjöl- menna við Garðskagavitann og taka þátt í skemmtidagskrá og eiga góðar stundir í fögru umhverfi. „Við höfum verið að halda upp á afmælið allt árið með uppá- komum í hverjum mánuði en 15. júní verður glæsileg hátíð- ardagskrá í íþróttamiðstöðinni sem við erum mjög stolt af og hvet ég brottflutta Garðbúa og aðra til að heimsækja okkur á afmælisdaginn og samfagna þessum merku tímamótum.“ segir Laufey Erlendsdóttir að lokum. Aldrei lognmolla Laufey Erlendsdóttir er fjögurra barna móðir og forseti bæjarstjórnar í Garði. Laufey ásamt Oddnýju Harðardóttur bæjarstjóra. VF-mynd/IngaSæm Vilhelm Bergmann 11 ára, Atli Viktor 4, Aðal- heiður Lind 9 ára og Björn Aron 7 ára með mömmu sinni á góðum degi við Garðskagavita. VF-mynd/IngaSæm Laufey við ræðupúlt bæjarstjórnar. VF-mynd/IngaSæm

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.