Víkurfréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 17
Garð ur inn
100 ára
Íbúar í Garði hafa að undanförnu verið að undirbúa dagskrá næstu helgar í tilefni aldarafmælis sveitarfélagsins. Þessara tímamóta
verður minnst með ýmsum hætti á afmælisárinu öllu, ekki eingöngu um næstu helgi þegar efnt er til veglegrar dagskrár af þesssu
tilefni. Nánar er fjallað um Garð og afmælið á næstu blaðsíðum.
Þessar dömur voru að undirbúa handverkssýningu í gamla vitavarðarhúsinu núna í vikunni en gáfu sér tíma til að brosa til ljósmyndar-
ans. Stúlkan á myndinni er Ingibjörg Sól Jónsdóttir og stendur við hlið langömmu sinnar, Sigríðar Stephensen og með þeim á myndinni
er Ásdís Guðbrandsdóttir. VF-mynd: Ellert Grétarsson.
Stofn un Gerða hrepps fyr ir 100 árum
Árið 1872 gaf danska rík is stjórn in út til skip un
um nýja skip an sveit ar stjórn ar á Ís landi.
Sam kvæmt henni skyldi kjósa hrepps nefnd
í hverj um hreppi og hver hrepps nefnd vera
skip uð þrem ur, fimm eða sjö full trú um eft ir
stærð hrepp anna.
Kosn inga rétt og kjör gengi höfðu all ir bú andi
karl menn í hrepp un um sem náð höfðu 25 ára
aldri, höfðu óflekk að mann orð, voru fjár síns
ráð andi og stóðu ekki í skuld við hrepp inn
vegna þeg ins sveit ar styrks.
Árið 1886 var svo kom ið að hrepps nefnd
í Rosmhvala nes hreppi sem skip uð var fimm
mönn um, taldi sig vart valda verk efn um
sín um leng ur og fór þess á leit að hreppn um
yrði skipt í tvennt og næði innri hlut inn yfir
Kefla vík, Leiru og Garð inn að mörk um Út skála
og Kirkju bóls hverf is. Þetta sveit ar fé lag skyldi
halda nafn inu Rosmhvala nes hrepp ur. Ytri hlut-
inn sem næði að landa merkj um Staf ness við
Ósa botna, skyldi hljóta nafn ið Mið nes hrepp ur.
Þetta var sam þykkt og hélst óbreytt í 22 ár en
þá hafði þétt býli í Kefla vík vax ið enn frek ar og
íbú ar þar töldu það henta sér bet ur að ann ast
eig in mál sjálf ir án af skipta og sam vinnu þeirra
í Garði og Leiru.
Þann 15. júní 1908 var Gerða hrepp ur stofn að ur
og náði frá Garð skaga að landa merkj um Kefla-
vík ur land eign ar. Íbú ar í hin um nýja Gerða hreppi
voru alls 557 og heim ili í hreppn um 104. Í dag
100 árum síð ar eru íbú ar í Sveit ar fé lag inu Garði
alls 1511 og heim ili um 450 tals ins.
Texti unnin úr heimild: Jón Þ. Þór, Gerðahreppur
90 ára, útg. Gerðahreppur 1998.
Samantekt Oddný Guðbjörg Harðardóttir,
bæjarstjóri.
Ungir sem aldnir taka þátt
í afmælishátíðinni