Víkurfréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 20
20 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 24. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR
������������� ����������
�������� ������
Bréfið sem loksins
var sent
„Ég byrjaði upp úr 1980 að
safna gömlu dóti. Þetta var
svona blanda af áhugamáli og
hugsjón. Lengi vel hafði ég ætlað
mér að senda hreppsnefnd bréf
um það hvort það væri sniðug
hugmynd að koma upp byggða-
safni í Garði. Var fyrir löngu bú-
inn að skrifa bréfið en sendi það
aldrei frá mér.
Síðan er það 1992 á 100 ára af-
mæli Gerðaskóla að fram kom
hugmynd að halda sögusýn-
ingu í skólanum. Ég var beð-
inn um að koma með eitthvað
af því dóti sem ég var búinn
að safna sem ég og gerði. Fólk
sýndi þessum gömlu munum
mikinn áhuga og hvatti mig til
að halda þessu áfram. Þá tók ég
ákvörðun um að senda bréfið
góða. Hreppsnefndin tók mjög
vel í erindið og skipaði nefnd
til að vinna í málinu, “ segir Ás-
geir þegar hann er spurður að
því hver hafi verið kveikjan að
stofnun byggðasafnsins.
Sívaxandi aðsókn
Ásgeir er inntur eftir því hvort
hann eigi einhverja uppáhalds
muni á safninu.
„Gamall trérennibekkur var
með fyrstu mununum sem
ég fékk, merkisgripur sem
var í notkun hér Garðinum
í áratugi. Þegar við stækk-
uðum safnið 2005 fengum
við hingað sexæring frá árinu
1887 og sem gamall sjómaður
fannst mér mikill fengur í
þess um báti enda einn af
merkilegri gripum safnsins,“
svarar Ásgeir. Hann seg ir
sérstöðu safnins þó felast í
vélasafni Guðna Ingimundar-
sonar. Yfir 60 vélar af ýmsum
gerðum eru í safninu, nær
allar gangfærar. Sú elsta er frá
árinu 1920.
Ásgeir segir muni stöðugt ber-
ast til safnsins sem gerir það
að verkum að húsakostur er
orðinn þröngur. Samt sé ekki
mikið af munum í geymslum
utan safnins eins og er.
„Það er í raun stórmerkilegt
að ekki stærra byggðarlag en
þetta skuli búa yfir svona veg-
legu byggðasafni. Ég neita því
ekki að ég er afar stoltur og
montinn yfir því að þetta skuli
hafa verið gert. Safnið nýtur sí-
vaxandi vinsælda og aðsóknin
hefur margfaldast á þessum
árum.“
Minnisvarðar um forna
atvinnuhætti
Meðfram allri strandlengjunni
á Garðskaga má hvarvetna sjá
ummerki um horfna atvinnu-
hætti. Útræði var mikið frá
Garði og víða voru varir og
lendingar sem margar hverjar
hafa verkið merktar. Guð-
mundur Garðarsson, skipstjóri
á heiðurinn að því verki. Þá er
eru einhver af gömlu sjóhús-
unum enn uppistandandi. Að
sögn Ásgeirs eru þessar varir
og lendingar eigi færri en 29
talsins meðfram strandlengj-
unni frá Lambastöðum inn
að Hólmsbergi og hefur hann
verið að taka saman heimildir
um þetta.
„Ég tel mikilvægt að koma
þessari sögu af strandmenn-
ingunni hérna vel á kortið og
gera hana vel sýnilega og að-
gengilega fyrir ferðamenn. Í
því skyni væri t.d. alveg upp-
lagt að gera göngustíg með-
fram ströndinni. Menningar-
og sögutengd ferðamennska
er mjög að ryðja sér til rúms
og þar liggja tækifæri fyrir
okkur því hér í Garði er saga
við hvert fótmál,“ sagði Ásgeir
Hjálmarsson.
Saga við
hvert fótmál
Ásgeir Hjálmarsson, forstöðu-
maður Byggðasafnins:
Byggðasafnið á Garðskaga var fyrst opnað almenningi í nóvember 1995 í gömlum
útihúsum á Garðskaga. Á tíu ára afmæli safnsins var tekið í notkun nýtt 700 fermetra
safnahús með kaffiteríu á efri hæð. Margt merkilegra muna úr byggðasögu Garðs-
ins er að finna á safninu sem nýtur sívaxandi vinsælda, segir Ásgeir Hjálmarsson,
forstöðumaður safnins frá upphafi og eini starfsmaður þess. Ásgeir var á sínum tíma
helsti hvatamaðurinn að því að koma safninu á legg.
HEIÐURSBORG-
ARAR GARÐS
Fyrsti heiðursborgari var Björn Finnbogason, f. 3. apríl
1903, d. 13. september 1989.
Björn sat í hreppsnefnd Gerðahrepps 1934-1974 og var
oddviti Gerðahrepps 1938-1974. Hann sat einnig í stjórn
Sambands íslenskra sveitarfélaga. Björn rak verslun í
Gerðum, Garði 1937-1979. Björn Finnbogason var
sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1963
og gerður að heiðursborgara Gerðahrepps 1974.
Núlifandi heiðursborgari Garðs er Sólveig Sigrún Odds-
dóttir, f. 11. október 1916.
Sigrún sat í hreppsnefnd Gerðahrepps 1962-1966 og 1970-
1978. Hún var gæslumaður Barnastúkunnar Siðsemdar í
30 ár, formaður Kvenfélagsins Gefnar í 21 ár og söng með
kirkjukór Útskálakirkju í 40 ár.
Sigrún Oddsdóttir var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu árið 2002 og gerð að heiðursborgara Gerða-
hrepps 2001.
Þessi ungi gestur byggðasafnins hafði meiri áhuga
á snúningseiginleikum póstkortarekkans fremur en
safngripunum. Á bak við hann er sexæringur, einn af
merkilegri gripum safnins. VF-mynd: elg.
Ásgeir Hjálmarsson