Víkurfréttir - 12.06.2008, Side 13
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 12. JÚNÍ 2008 13STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
ÞJÓNUSTUSTJÓRI
Í REYKJANESBÆ
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Þar sem tryggingar
snúast um fólk
Vátryggingafélag Íslands, VÍS, leitar að þjónustustjóra á skrifstofu
félagsins í Reykjanesbæ. Starf þjónustustjóra felst í því að veita
skrifstofunni í Reykjanesbæ forstöðu og hafa umsjón með rekstri
hennar. Þjónustustjóri sér m.a. um að veita viðskiptavinum
úrvalsþjónustu og ráðgjöf um tryggingavernd, afgreiðslu tjóna auk
þess að sjá um sölumál og innheimtu á svæðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla á sviði vátrygginga eða af annarri
fjármálastarfsemi er kostur
Reynsla af stjórnunarstörfum æskileg
Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði
Skipulagshæfni og nákvæmni í starfi
Umsóknum skal skilað á heimasíðu VÍS, vis.is, í síðasta lagi föstudaginn
13. júní.
Nánari upplýsingar veitir Rúnar Guðjónsson, runar@vis.is.
Í samræmi við stefnu VÍS um jafnréttismál eru konur, jafnt sem karlar,
hvattar til að sækja um starfið.
VÍS er nútímalegt þjónustufyrirtæki
með 43 þjónustuskrifstofur víðsvegar
um landið. Markmið VÍS er að vera
alltaf í fremstu röð tryggingafélaga á
Íslandi og er ánægja starfsfólks og
viðskiptavina lykilatriði í velgengni
félagsins. Hjá VÍS starfar framúrskar-
andi hópur einstaklinga sem saman
myndar sterka liðsheild. Mikil áhersla er
lögð á að skapa starfsfólki gott starfs-
umhverfi og aðstöðu til að veita
viðskiptavinum góða þjónustu. VÍS vill
fela starfsfólki störf við hæfi, þannig að
hæfileikar þess og frumkvæði fái notið
sín við áhugaverð og krefjandi verkefni.
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 vis.is