Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.06.2008, Page 21

Víkurfréttir - 12.06.2008, Page 21
Þann 15. júní næstkomandi á Sveitarfélagið Garður 100 ára afmæli og af því tilefni fögnum við Garðbúar og höldum hátíð. Laugardaginn 14. júní verða opnaðar sýningar víðs vegar um bæinn og síðan á sjálfan afmælis- daginn, þann 15. júní kl. 14:00, hefst hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni í Garði. Allir eru velkomnir og vonumst við til að sem flestir brottfluttir Garðbúar og aðrir gestir sjái sér fært að sækja okkur heim. 08 -0 08 7 H en na r h át ig n Dagskrá afmælishátíðarinnar helgina 14.-15. júní Nú fögnum við og höldum hátíð Garður 100 ára Allir velkomnir Laugardagurinn 14. júní Í tilefni af afmælinu verða opnanir á eftirfarandi sýningum: Kl. 10:00 Auðarstofa, Gerðavegi 1 - Handverkssýning eldri borgara. Opin til kl. 17:00. Kl. 11:00 Byggðasafnið á Garðskaga - Ljósmyndasýning með gömlum myndum úr Garðinum. Opin til kl. 17:00. Kl. 13:00 Bæjarskrifstofur - Sýning á málverkum eftir Gunnar Örn myndlistarmann. Opin til kl. 17:00. Kl. 14:00 Gerðaskóli - Sýning á saumuðum myndverkum Guðrúnar Guðmundsdóttur frá Garðhúsum. Verkin eru unnin með hliðsjón af teikningum og lýsingum úr íslenskum og erlendum handritum frá 14., 15. og 16. öld. Opin til kl. 17:00. Kl. 15:00 Sæborg - Sýning á portrettmyndum eftir Braga Einarsson myndlistarmann. Opin til kl. 17:00. Kl. 16:00 Gauksstaðir, vinnustofa - Sýning á verkum myndlistar- mannanna Ágústu Malmquist og Ara Svavarssonar. Opin til kl. 18:00. Sunnudagurinn 15. júní Kl. 09:00 Guðsþjónusta að Útskálum. Kl. 10:00 Hátíðarfundur bæjarstjórnar á bæjarskrifstofunni. Afhjúpun lágmynda af heiðursborgurum Garðs. Kl. 11:00 Listaverkið Skynjun eftir Ragnhildi Stefánsdóttur afhjúpað við innkomu í bæinn. Kl. 14:00 Hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni. Söngsveitin Víkingar syngja. Forseti bæjarstjórnar setur hátíðina. Ávarp forseta Íslands. Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari syngur. Ávarp bæjarstjóra. Frumflutningur á tónverki eftir Áka Ásgeirsson tónlistarmann sem samið er fyrir bæinn á 100 ára afmælisári. Ávarp ráðherra. Hátíðarlok. Gestum boðið upp á kaffi og meðlæti. Að lokinni hátíðardagskrá verða sýningar opnar til kl.20:00.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.