Víkurfréttir - 12.06.2008, Side 25
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 12. JÚNÍ 2008 25STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Hvað er eftirminnilegast frá þínu starfi
sem bæjarstjóri/sveitarstjóri í Garði?
Sigurður Jónsson
Ég myndi segja að það eftirminnilegasta og
stærsta átakið á sínum tíma hafi verið skömmu
eftir að ég byrjaði, þegar ákvörðunin um að
byggja íþróttamiðstöðina í Garði var tekin. Fyrir
það var engin sundlaug í bænum og bara lítill leikfimisalur í
skólanum þannig að það var engin aðstaða til sundkennslu
eða íþrótta.
Það var þess vegna mikil bylting í þjónustu og aðstöðu í
bænum og eiginlega byrjunin á þeirri miklu uppbyggingu
sem varð. Svo þegar þetta fór að skila sér fóru lóðirnar að
renna út og íbúum fór að fjölga.
Ellert Eiríksson
Þegar ég hugsa til baka finnst mér það standa
upp úr hvað íbúar Gerðahrepps voru heil-
steyptir og mikil sjálfsbjargarviðleitni í öllum.
Miklir einstaklingshyggjumenn, en ákaflega
traustir og fylgnir sér.
Það er erfitt að taka til einhverjar bryggjur eða skóla, en
þegar ég lít til baka leið mér mjög vel í Garðinum og var
mjög ánægður að hafa tekið þá ákvörðun að fara til þeirra og
vera sveitarstjóri hjá þeim þessi átta ár.
Einn af burðarásunum í at-
vinnulífi Garðsins er fisk-
vinnslan Nesfiskur, en þar
starfa um 200 manns á sjó
og í landi.
Bergþór Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði í viðtali
við Víkurfréttir að fyrirtækið,
sem hefur starfað í Garði í
rúma þrjá áratugi, hafi verið
í hægum en öruggum vexti
alla tíð.
Þó höfuðstöðvar fyrirtækis-
ins séu í Garði er engum afla
landað þar, heldur er hann
fluttur þangað, m.a. frá Sand-
gerði og víðar að. Bergþór
segir að það þurfi ekki að
skjóta skökku við.
„Þetta er bara þannig að við
byrjuðum í Garðinum og
héldum svo bara áfram þar
eftir því sem fyrirtækið stækk-
aði. Þetta vex þarna og það
má segja að við séum hluti
af bænum og bærinn hluti af
okkur.“
Ekki er laust við að hremm-
ingar hafi skekið sjávarútveg-
inn eins og svo mörg önnur
svið efnahags lífs ins. Fjár-
magnskreppa og niðurskurður
aflaheimilda hafa orðið til
þess að mörg fyrirtæki hafa
orðið að draga saman seglin,
en Bergþór segir að Nesfiskur
muni reyna að halda sínu
striki.
„Þessar skerðingar eru miklar
hjá okkur og það er spurn-
ing hvað maður þolir mikið
af slíku áður en maður fer að
draga saman í skipastofninum.
Við höfum ekki fækkað, en
Bjarni Thor:
Lærði betur að
meta æskuslóðirnar
Bassasöngvarinn
Bjarni Thor er al-
inn upp í Garði
o g s ný r a f t u r
heim á forn ar
slóðir og kemur
fram á afmælishátíðinni.
Hvernig var að alast upp í Garð-
inum?
Maður hafði auðvitað mikið
frelsi þegar maður ólst þarna
upp. Við vorum úti alla daga
og öll kvöld að leika okkur í
fjörunni, uppi í móanum uppi
í heiði og kynntist þar náttúr-
Nesfiskur:
Bærinn hluti af okkur
unni. Þannig hafði Garðurinn
og hefur enn mikið upp á að
bjóða fyrir börn.
Hvernig líturðu á Garðinn í dag?
Ég hef búið erlendis mikið
undanfarin ár og fór í raun að
læra að meta fegurð staðarins
betur eftir að ég flutti út. Þessa
víðáttu og fjallasýn.
Hvað munt þú syngja fyrir gesti
á afmælishátíðinni?
Ég stefni á að hafa pró-
grammið aðgengilegt fyrir
þann fjölbreytta áhorfenda-
hóp sem þarna verður. Þetta
verður íslenskt og erlent efni.
Bland í poka.
heldur fjölgað. Ef það verða
hins vegar meiri skerðingar
þurfa einhverjar breytingar að
verða.“
Bergþór vill að lokum óska
öllum bæjarbúum til ham-
ingju með aldarafmælið, segir
að það sé afar gaman að vera
hluti af samfélaginu í Garði á
þessum merku tímamótum.