Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 28

Víkurfréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 28
28 HANDHAFI MENNINGARVERÐLAUNA REYKJANESBÆJAR 2007VÍKURFRÉTTIR I 24. TÖLUBLAÐ I 29. ÁRGANGUR Njarðvíkurskóla var slitið við hátíðlega athöfn þann 5. júní og var það gleðistund fyrir stjórnendur, kennara og aðra starfsmenn skólans, þar sem nemendur fengu margar við- urkenningar fyrir glæsilegar einkunnir. Má þar nefna að 10 nemendur skólans voru með raðeinkunn 99 í sam- ræmdu prófi í stærðfræði og 9 voru með raðeinkunn 99 í samræmdu náttúrufræði- prófi. Marg ir nem end ur hlutu einnig verðlaun fyrir frábær verk og vinnu í val- greinunum, eins og mátti sjá á vorsýningu skólans. Meðal þeirra nemenda sem hlutu verðlaun og viðurkenn- ingar voru: Adrianna Mari- anna, Hnís um, og Adri an Krzyztof, Kríum, fyrir fram- úrskarandi ástundun. Björk Gunnarsdóttir, Heiðlóum, fyrir hæstu einkunn í íslensku og stærðfræði á samræmdu prófi. Ása Böðvarsdóttir, Heiðlóum, fyrir hæstu einkunn í stærð- fræði á samræmdu prófi. Elvar Ingi Róbertsson, Þröstum, fyrir hæstu einkunn í stærðfræði á samræmdu prófi. Er skemmti- legt að segja frá því að þessir þrír nemendur voru jafnir og fengu allir einkunnina 10. Bjarki Brynjólfsson, 10. AB, fyrir bestan námsárangur í skólaeinkunn í árgangi. Ólafur Helgi Jónsson, 10. AB, fyrir góðan námsárangur í heimilis- fræði. Elísabet Bragadóttir, 10. SD, fyrir góðan námsárangur í textílmennt. Ólína Ómars- dóttir, 10. SD, fyrir góðan náms- árangur í skrautskrift. Ívar Eg- ilsson, 8. HK, og Særún Sæv- arsdóttir, 10. AB, fyrir góðan námsárangur í valgreininni tákn með tali. Daníel Bjarni Sæ- mundsson, 10. AH, fyrir góðan námsárangur í valgreininni listir, kerta- og pappírsgerð. Andri Fannar Freysson, 10. AB, fyrir mjög góðan árangur í íþróttum. Styrmir Gauti Fjeld- sted, 10. AB, fyrir góðan ár- angur í samfélagsfræði. Bjarki Brynjólfsson, 10. AB, fyrir vinnu við félagsstörf skólans. Bjarki Brynjólfsson, 10. AB, fyrir góðan árangur í dönsku á sam ræmdu prófi. Alma Dögg Helgadóttir, 10. AB, fyrir góðan árangur í stærðfræði á samræmdu prófi. Birgitta Linda Björnsdóttir, 10. SD, fyrir hæstu einkunn í ensku á samræmdu prófi. Valur Freyr Ástuson, 10. AB, fyrir góðan árangur á samræmdu prófi og Þorgerður Anja Snæbjörns- dóttir fyrir hæstu einkunn í íslensku á samræmdu prófi. Auk þessara viðurkenninga voru veittar viðurkenningar til fyrirmyndarnemenda og nem- enda í umhverfisráði skólans og Höfrungar og 7. ÞBI voru útnefndir fyrirmyndarbekkir. Myllubakkaskóla var slitið í síðustu viku og að venju voru veittar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu og námsárangur. Verðlaunahafar í 10. bekk voru sem hér segir: Enska: Ragnhildur Rós Þrast- ardóttir. Viðurkenning Pennans fyrir góðan námsárangur á loka- prófi: Hanna Ósk Ólafsdóttir. Íslenska: Hanna Ósk Ólafs- dóttir. Náttúrufræði: Þorsteinn Logi Karlsson. Samfélagsfræði: Andri Steinn Harðarson. Danska: Hanna Ósk Ólafs- dóttir. Viðurkenningu Innrömmunar Suðurnesja fyrir góðan náms- árangur í list- og verkgreina- vali: Sóley Ingunn Svanbergs- dóttir. Viðurkenningar vegna náms í dagskóla í FS samhliða námi í Myllubakkaskóla: Hera Sól Harðardóttir og Hanna Ósk Ólafsdóttir. Þá voru einnig veitt verðlaun úr minningarsjóði Vilhjálms Ketilssonar og mætti Sigrún Ólafsdóttir, ekkja Vilhjálms, á skólaslitin ásamt dóttur þeirra, Völu Rún, og sonarsyni, Ás- geiri Elvari Garðarssyni, til að afhenda verðlaunin. Auk þess fékk skólinn peningagjöf að upphæð kr. 100.000 úr minn- inarsjóðinum og fjölskyldan færði skólanum málverk af byggingunni sem var málað af Stefáni Jónssyni. Viðurkenningu sjóðsins fyrir skrift hlaut Sóley Ingunn Svan- bergsdóttir, viðurkenningu fyrir góðan námsárangur á samræmdum prófum hlaut Þorsteinn Logi Karlsson og fyr ir góðan námsárangur í stærðfræði hlaut Andrea Björg Jónsdóttir í 9. bekk, en hún tók samræmt próf í stærð- fræði. Myllubakkaskóli: Vegleg verðlaun úr minningarsjóði Vilhjálms Heiðarskóla var slitið við há- tíðlega athöfn í síðustu viku og voru fjölmörg verðlaun og viðurkenningar veittar fyrir góða frammistöðu. Í 10. bekk fengu eftirfarandi verðlaun: Íslenska: Berglind Gréta Krist- jánsdóttir. Enska og danska: Alexsandra Bernharð Guðmundsdóttir. Stærðfræði, náttúrufræði og samfélagsfræði: Berglind Gréta Kristjánsdóttir. Íþróttir og sund: Karen Guðna- dóttir og Viktor Smári Haf- steinsson. Gler: Sandra Guðný Víðisdóttir og Sigrún Ósk Magnúsdóttir. Matreiðsla: Bojan Ljubicic. Skartgripagerð: Eyjólfur Sverr- isson. Myndlist: Alexandra Bernharð Guðmundsdóttir. Góð störf í nem enda ráði: Kristín Rán Júlíusdóttir og Hildur María Sveinsdóttir. Prúðmennska og góð fyrir- mynd: Magnús Þór Magnús- son og Pálmar Sigurpálsson. Fyr ir áhuga og virkni í að koma fram á hin um ýmsu skemmtunum og viðburðum: Kristín Rán Júlíusdóttir. Heiðarskóli: Skemmtilegum vetri lokið Njarðvíkurskóli: Verðlaunuð fyrir glæsilega frammistöðu Vinsamlega athugið að skólaslitum hjá öðrum skólum á Suðurnesjum verður gerð góð skil í næsta blaði Víkurfrétta. Útskriftarhópur Myllubakkaskóla. Steinar Jóhannsson, Brynja Árna- dóttir, Sigrún B. Ólafsdóttir, Vala Rún Vilhjálmsdóttir og Ásgeir Elvar Garðarsson með málverkið sem skólinn fékk að gjöf.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.