Víkurfréttir - 12.06.2008, Side 39
39ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU Í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR
Slæmt tap á heimavelli
Annað stigamótið á Kaup-
þingsmótaröðinni fór fram
á Hólmsvelli í Leirunni um
síðastliðna helgi.
Erfiðar aðstæður voru á fyrri
keppnisdegi í mótinu en þá
var gerði mikið hvassviðri
með mikilli úrkomu og voru
skor kylfinga því eftir því.
Það var annað veður sem tók
á móti kylfingum á öðrum
keppnisdegi því þá gerði blíð-
skaparblíðu og náðu margir
kylfingar að sýna sínar bestu
hliðar. Það var engu að síður
he i mama ð u r i n n Ól af u r
Hreinn Jóhannesson úr GS
sem sigraði á mótinu en hann
lék hringina tvo á samtals 147
höggum eða þremur höggum
yfir pari. Davíð Már Vilhjálms-
son GKj varð í öðru sæti, einu
höggi á eftir Ólafi. Björgvin
Sigurbergsson GK varð svo í
þriðja sæti. Þetta er fyrsti sig-
urinn hjá Ólafi á Kaupþings-
mótaröðinni en Ólafur varð
afi í síðustu viku og hefur því
svifið á sannkölluðu sæluskýi
eftir sigurinn á sunnudaginn.
„Þetta er virkilega góð tilfinn-
ing og mjög gaman að hafa
unnið,” sagði Ólafur Hreinn
en segist þó ekki ætla að
breyta skipulagi sínu fyrir
sumarið þrátt fyrir sigurinn.
„Þessi sigur breytir litlu fyrir
mig því ég er að kenna hjá GS
en ég fer sennilega á Íslands-
mótið í Vestmannaeyjum og
það er í raun eina mótið sem
ég tek þátt í á Kaupþingsmóta-
röðinni fyrir utan þetta um
helgina,” sagði Ólafur.
„Ég var ánægður með seinni
hringinn fyrir utan eina
holu, ég var að spila mjög jafnt
golf þó að ég hafi ekkert verið
að setja of mikið af púttum
í fyrir utan kannski í lokin
þegar ég þurfti á því að halda
þó að þau hafi ekki verið löng.
Heilt yfir er ég sáttur og þetta
var jafnt golf hjá mér. Það
gekk mjög vel á fyrri deginum
og ég reyndi að spila af skyn-
semi og vera ekkert að æsa sig.
Ég vissi ekkert hver staðan var
fyrir síðustu holuna en ég var
nokkuð viss um að ég þyrfti
fugl til að halda þessu vakandi
og það tókst.”
Það voru mjög erfiðar að-
stæður til golfiðkunar á fyrri
hringnum en Ólafur segir að
það hafi verið gaman að takast
á við veðrið. „Það var mjög
gaman að spila fyrri hringinn
í veðrinu og ég hef talað við
mjög marga sem höfðu mjög
gaman af því að spila í þessu
veðri og eiga við vindinn. Við
erum á strandvelli og það á
að vera aðeins vindur og ef að
menn vilja ekki spila í svona
veðri þá eiga þeir bara að vera
heima hjá sér.”
Í kvennaflokki varð það Ásta
Birna Magnúsdóttir úr GK
sem fagnaði sigri. Ragna Björk
Ólafsdóttir varð í öðru sæti og
Ragnhildur Sigurðardóttir í
því þriðja.
Helena Sverrisdóttir og
María Ben Erlingsdóttir,
landsliðskonur í körfuknatt-
leik munu dagana 20.-22.
júní næstkomandi standa
að körfuboltabúðum fyrir
stelpur á aldrinum 10-15 ára.
Búðirnar fara fram að Ás-
völlum í Hafnarfirði.
Helena sagði í samtali við
Víkurfréttir að þessi hug-
mynd að stelpubúðum hefði
verið nokkurn tíma í vinnslu
hjá henni og Maríu. Helena
sagði einnig að reynt yrði að
hafa búðirnar persónulegar
þar sem hún og María munu
m.a. deila reynslu sinni af ferl-
inum með iðkendum búðanna
en í vetur léku þær báðar á
sínu fyrsta ári með banda-
rískum háskólaliðum. Eins
og flestir vita er það töluvert
stærra í sniðum en íslenskar
körfuknattleikskonur eiga að
þekkja hér heimafyrir.
,,Við erum búnar að vera að
ákveða þetta í vetur og þegar
við spjölluðum við fólk þá
leist því vel á þessa hugmynd.
Okkur langaði að hafa körfu-
boltabúðir aðeins fyrir stelpur
því það var ekki hægt þegar
við vorum yngri. Okkur
langar að stelpurnar upplifi al-
vöru körfuboltabúðir sem eru
í svipuðum stíl og í Bandaríkj-
unum. Við höfum farið í körfu-
boltabúðir í Bandaríkjunum
og prógrammið sem við erum
með er mjög svipað og þarna
úti. Við ætlum að reyna að
hafa þetta meira persónulegra
og vera mikið með leikmönn-
unum og hafa kvöldvökur þar
sem við deilum okkar reynslu
á körfubolta-ferlinum með
stelpunum.”
Skráning í körfuboltabúðirnar
fer fram á netfanginu
stelpubudir@visir.is
AMÍ mótið hefst í dag
Ólafur Jóhannesson
varð afi á dögunum og
fagnaði sínum fyrsta
sigri á Kaupþings-
mótaröðinni.
Ólafur fagnaði fyrsta sigrinum og barnabarninu
Alvöru körfuboltabúðir
í bandarískum stíl
Kef lav í kurstú l kur máttu
sætta sig við slæmt tap, 1-9,
gegn Íslandsmeisturum Vals á
heimavelli sínum um helgina.
Mark Keflvíkinga skoraði Björg
Ásta Þórðardóttir, en eftir tapið
eru þær í 6. sæti deildarinnar
með fimm stig.
Þær mæta botnliði HK/Víkings
í 6. umferð Landsbankadeildar
kvenna í kvöld. Leikurinn fer
fram í Kópavogi.
A l d u r s f l o k k a m e i s t a r a m ó t
Íslands í sundi fer fram í
Sundmiðstöðinni í Keflavík um
helgina, en það eru sunddeildir
UMFN og Kef lav í kur s em
sjá um framkvæmd mótsins.
Mótið hefst í dag og lýkur með lokahófi á
sunnudagskvöld.
Þetta er í annað skiptið á þremur árum sem mótið
er haldið í Reykjanesbæ, en Hafnfirðingar þurftu
að gefa mótið frá sér þar sem nýja sundlaugin
þeirra er ekki tilbúin.
Eðvarð Þór Eðvarðsson, þjálfari ÍRB, sagði í
viðtali við Víkurfréttir að allur undirbúningur
væri kominn á fullt og allt stefndi í
spennandi og skemmtilegt mót.
ÍRB hefur unnið fjóra AMÍ titla
í röð, en hvernig líst Eðvarði á
möguleikana á þeim fimmta?
„Við rennum svolítið blint í sjóinn
með þetta að þessu sinni því það er búið að breyta
uppsetningu mótsins dálítið. Það er búið að fjölga
aldurshópum og auka stigagjöf þannig að það
eru nokkrir hlutir sem erfitt er að spá um, en við
ætlum okkur ekkert annað en sigur.“
Ægisliðar, stærstu keppinautar ÍRB, koma til leiks
með marga keppendur og verður spennandi að
sjá hvernig fer.