Víkurfréttir - 21.06.2012, Síða 2
2 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Innbrot í fyrirtæki
í Reykjanesbæ
Brotist var inn í fyrirtæki í Reykjanesbæ aðfaranótt
sunnudags. Rúða hafði verið
brotin á norðurhlið hússins og
voru ummerki um að þar hefði
verið farið inn. Athugun leiddi í
ljós að verðmæt Apple tölva var
horfin, en ekki hafði verið hreyft
við öðru innandyra. Öryggiskerfi
í fyrirtækinu hafði farið í gang
skömmu eftir miðnætti og var þá
hringt eftir aðstoð lögreglu, sem
vinnur nú að rannsókn málsins.
Steypumótum
og olíu stolið
Tilkynnt var til lögreglunnar á Suðurnesjum um stuld
á steypumótum um helgina.
Þegar flytja átti mótin milli
staða kom í ljós að hluti þeirra
var horfinn, svo og klemmur,
stoðir og ýmislegt fleira. Þá
var tilkynnt um stuld á olíu af
vinnutækjum á vinnusvæði við
Reykjanesvirkjun. Olíunni var
stolið af beltagröfu og tveimur
öðrum vinnutækjum þar. Ekki
er ljóst um hve mikið magn var
að ræða. Málið er í rannsókn.
Ölvaður í
hraðakstri á
torfæruhjóli
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið akstur
karlmanns á fertugsaldri sem ók
torfæruhjóli langt yfir leyfilegum
hraða á Sandgerðisvegi. Mældist
hjólið vera á 122 kílómetra hraða
þar sem leyfilegur hámarkshraði
er 90 km á klukkustund.
Maðurinn bar einkenni ölvunar
og var því handtekinn og færður
á lögreglustöð. Þar var hann
sviptur ökuréttindum. Tíu
ökumenn til viðbótar reyndust
aka yfir leyfilegum hámarkshraða
við umferðareftirlit lögregl-
unnar um helgina.
›› FRÉTTIR ‹‹
LÖGREGLU
Skemmdarvargur olli milljóna tjóni á tug bílaleigubíla í Innri
Njarðvík í liðinni viku. Bílarnir
voru rispaðir og dældaðir, speglar
og rúður brotnar og þá var
mannasaur atað á bíla.
Aðkoman að bílaleigubílunum var
vægast sagt ógeðsleg en inni á milli
bílanna hafði skemmdarvargurinn
leyst niður um sig buxurnar og
skitið í nærbuxur sínar. Saurnum
hafði svo verið makað og kastað
í bíla.
Skemmdar verkin á bí lunum
hafa að öllum líkindum verið
unnin á tímabilinu 20:30 til 22:00
á fimmtudagskvöldið 14. júní.
Rannsóknardeild lögreglunnar
var kölluð til þegar málið kom
upp en nú er biðlað til vegfarenda
sem voru á ferðinni við gömlu
Gokart-brautina í Innri Njarðvík
á þessum tíma en bílaleigan er í
húsi við brautina og bílarnir sem
voru skemmdir stóðu allir á, eða
við gömlu Gokart-brautina.
Eigendur bílaleigunnar segja tjónið
bagalegt. Vont sé að missa svo
marga bíla úr leigunni nú þegar
vertíðin sé að byrja.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á
vettvangi skemmdarverkanna.
Skemmdi tug bílaleigubíla
og ataði mannasaur
Um helgina 21.-24. júní fer fram Sólseturshátíðin í
Garðinum. Sólseturshátíðin
hefur undanfarin ár fest sig í
sessi sem hátíð fjölskyldunnar.
Hátíðarhöldin fara fram á
Garðskaga en þar er góð aðstaða
fyrir tjaldbúa, tjaldvagna og
húsbíla. Snyrting, rennandi vatn
og rafmagn er til staðar. Sólsetrið
á Garðskaga er einstök sjón og
tímasetning hátíðarinnar er vel
við hæfi þar sem Sumarsólstöður
eru nýafstaðnar og sólsetrið gyllir
hafið á meðan Garðbúar og gestir
þeirra syngja og gleðjast við
varðeldinn.
Sjá má dagskrá hátíðarinnar í
auglýsingu í blaðinu og einnig
á svgardur.is. Hátíðarhöldum
Ferskra vinda lýkur sömu helgi
með tónleikum hinnar bresku
og heimsþekktu Nicolette og
bandarísku tónlistarkonunni
Deborah Charles.
Sólseturshátíð
í Garðinum