Víkurfréttir - 21.06.2012, Side 8
8 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Krossmóa 4 • 4. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 0000
„Mamma, þú ert facebook-fíkill!“ sagði eldri sonur minn einn daginn. Ég
var snögg í vörn og benti honum pent á að vinna mín væri nú einu sinni
þannig að ég þyrfti að vera mikið í tölvunni en ég
hefði fullkomna stjórn á þessu. „Mamma, í gær var
ég búin að kveðja þig 10 sinnum án þess að þú tækir
eftir því svo hljópstu á eftir mér þegar þú sást mig
út um eldhúsgluggann og öskraðir svo allt hverfið
heyrði: blesssssss elskan, heyrði þig ekki kveðja!
Nú kom stuðningur frá þeim yngri „stundum er ég
að segja þér eitthvað merkilegt og þú horfir á mig
með tómum augum, segir JÁ öðru hverju, gjóar svo
alltaf með öðru auganu á tölvuskjáinn (heldurðu að
ég taki ekki eftir því) og ég finn að þú veist ekkert
um hvað ég er að tala“. Þessu var ekki lokið – „svo erum við kannski að
horfa á einhverja mynd og þurfum að setja á pásu þegar þú segist ætla á
klósettið og svo skilur maður ekkert hvað þú ert lengi, heyrum „pikk, pikk,
pikk“ og hlátur í kjölfarið....þú komin á facebook að hlægja að status....
frá sjálfri þér“.
Stundum hef ég á tilfinningunni að ég ein og óstudd beri ábyrgð á hnignun
íslenska stofnsins – homo Islandius!! Þetta byrjaði allt vorið 2008 en þá ákvað
ég að fjárfesta í flatskjá. Hefði svo sem getað látið gamla túbusjónvarpið
sem jón vinur gaf mér duga lengur, en í einhverju kastinu var ég komin inn í
Rönning og búin að fjárfesta í 42 tommu tæki og heimabíói. Ég þarf kannski
ekki að hafa mörg orð um líðan mína þegar Geir bað Guð að blessa íslensku
þjóðina þar sem flatskjárinn var orðin táknmynd græðgisvæðingarinnar og
óráðssíunnar. Dró því gluggatjöldin fyrir þegar við fjölskyldan nutum þess að
horfa á hverja stórmyndina á fætur annarri í okkar eigin bíósal. Þetta átti bara
eftir að versna því mitt í þessu var ég farin að drekka kaffi latté og tilheyrði þar
með aumkunarverðum hópi sem gat ekki einu sinni skolað niður íslenskum
kaffisopa. Mér leið eins og landráðamanni þegar ég mætti ekki á Austurvöll
til að berja potta og pönnur og fæ reglulega á tilfinninguna að ég sé álitin
skoðanalaus með öllu þar sem ég finn ekki þörf á að úthrópa einstaklinga á
okkar ástkæra og ilhýra. Nýjasta dæmið um þá skömm sem ég hef kallað yfir
þjóðina er sú staðreynd að ég er ekki búin að kynna mér ítarlega einstaklingana
sex í forsetaframboðinu, veit eitthvað um þá alla en ekki mikið um neinn (nema
kannski einn!!).
Til að toppa þessa lágkúru er ég facebook-fíkill skv einhverjum skilgreiningum
(já og sonum mínum) – en í rannsókn sem ég fann á netinu kemur fram að:
ef þú átt yfir 800 vini, skiptir oft um forsíðumynd, samþykkir fólk inn á síðuna
sem þú þekkir ekki, ert alltaf að tjá þig og sækjast eftir athygli og reynir að selja
öðrum þá hugmynd að líf þitt sé ævintýralega skemmtilegt, eru miklar líkur á
að þú sért yfirborðskenndur, sjálfhverfur og meðalgreindur einstaklingur sem
átt ekkert líf!!
Þetta er ég í hnotskurn. Ég nota facebook mikið og það í allskonar yfirborðskennda
hluti. Ég hef gaman af því – elska að setja inn allskonar statusa og á 809 vini!!
Ég nýti miðilinn til að hvetja og sæki sjálf hvatningu þangað. Er alltaf að setja inn
myndir og skipti reglulega um forsíðumynd. Mér finnst lífið yfirleitt skemmtilegt,
stundum rétt þolanlegt og einstaka sinnum hund helvíti leiðinlegt. Er ég á gráu
svæði skv þessari rannsókn?... já svo sannarlega.
Ég fagna nýjungum og þeim breytingum sem þeim fylgja og tel eðlilegt að við
þurfum tíma til að aðlagast og ráða við alla tæknina sem stendur okkur til boða.
Ætla að halda áfram á facebook en geri mér grein fyrir að tæknin leysir aldrei af
hólmi „alvöru“ samskipti en getur klárlega kryddað þau. Elska flatskjáinn minn
og latté-ið og ætla aldrei til baka í túbu og uppáhellt.
Við syni mína langar mig að segja: ég ætla að hafa í huga hvernig samskiptum
mínum við tölvuna er háttað þegar fjölskyldan er saman komin, en á sama tíma
þætti mér vænt um að þið keyptuð heyrnartæki fyrir FIFA-leikmennina ykkar
því þeir heyra klárlega ekki í ykkur þar sem þið sitjið og öskrið úr ykkur lungun
þegar þeir klúðra hverjum leiknum á fætur öðrum!!
Er ekki kominn tími til að tengja, tengja.......
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa
Ég er meðalgreindur,
latté-lepjandi
facebook-fíkill!
Sólseturshátíð
í Garði!
ADDI ROKK TRÚBADOR
Föstudag og laugardag frá kl. 23.00
20 ára aldurstakmark
Kahúsið opið allan daginn
Girnilegir réttir af matseðli
Við tökum vel á móti þér
182 útskrifaðir frá Keili
Keilir útskrifaði 182 nemendur við hátíðlega athöfn
í Andrews Theater sl. föstudag
en þá hafa alls 1.250 fengið
brautskráningu frá Keili frá
stofnun skólans.
90 nemendur útskrifuðust frá
Háskólabrú og þar af höfðu 30
þeirra lokið Menntastoðum sem
grunni að Háskólabrú. 70 ÍAK
einkaþjálfarar fengu brautskráningu
og 21 nemandi úr flugtengdu
námi. Valdimar Guðmundsson og
Björgvin Baldursson fluttu þrenn
lög við athöfnina og enduðu á
laginu „Vegir liggja til allra átta“
sem átti svo sannarlega vel við.
Hjálmar Árnason, framkvæmda
stjóri hélt hátíðarræðu í tilefni
dagsins og vék hann m.a. að
spurningunni um gildi menntunar.
Hvað kunnið þið núna? spurði
hann útskrifaða. Á þar ekki við
það sem stendur á skírteini ykkar.
Smiður telst ekki alvöru smiður
þó hann fái moðinn í hendur.
Hvernig hann notar verkfærin
dæmir gæði hans sem smiðs.
Þannig má segja að margir þeirra
einstaklinga sem sagðir eru hafa
keyrt samfélag okkar í kaf hampi
fallegum prófskírteinum. Notuðu
þeir menntun sína til góðs? Viljum
við fólk með slíka menntun? Frekar
viljum við fólk eins og ykkur sem
kann að setja sér göfug markmið og
er tilbúið að fylgja þeim eftir. Þess
vegna er þetta ykkar hátíð.
Verðlaun voru veitt fyrir framúr
skarandi náms árangur. Hildur
Hrólfsdóttir dúxaði úr ÍAK einka
þjálfun með 9,63 í meðaleinkunn,
Kristjana Þórarinsdóttir hlaut í 9,02
úr Háskólabrú, Sigurður Jónsson
með 8,83 úr flugumferðarstjórn,
Árni Snær Brynjólfsson 8,81 ATPL
og Líney Þóra Bryndísardóttir með
9,23 úr flugþjónustu.
Kristjana Þórarinsdóttir
var efst í Háskólabrú.
Einkaþjálfarar
voru með
skemmtiatriði á
útskriftinni.
Hér má sjá hluta af stórum hópi einkaþjálfara sem útskrifuðust.