Víkurfréttir - 21.06.2012, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Við hétum því vinkonurnar fyrir nokkrum árum að
fara í alvöru gönguferðir annað
hvert ár,“ segir Kristín Jóna
Hilmarsdóttir, göngugarpur úr
Reykjanesbæ sem fyrir réttri viku
lagði upp í gönguferð með fimm
vinkonum sínum frá Hornvík á
Vestfjörðum til Eystri Hornvíkur
rétt við Höfn í Hornafirði. Gangan
er rúmir 600 kílómetrar og tekur
um fimm vikur. Hópurinn kallar
sig Sexurnar horn í horn og þær
má finna á Facebook.
Kristín Jóna segir að þær hafi oft
rætt um að fara þessa leið, því hún
hafi aldrei verið gengin áður svo
vitað sé. Reyndar var annar hópur
göngugarpa að ljúka við leiðina
þegar þær vinkonurnar voru að
byrja gönguna en sá hópur hóf
förina þar sem þær enda og fór yfir
jökul, þannig að leiðin er ekki alveg
sú sama.
Nokkrar hindranir eru á leiðinni.
T.a.m. Skjálfandafljót en þar þarf
að taka hálfs dags útúrdúr til að
fara yfir á brú. Eiginmaður einnar í
ferðinni er mikill útivistarmaður og
hefur sett gönguleiðina inn á GPS-
tæki og þar er nákvæm áætlun um
dagleiðir og hvar skuli fara. Þá hafa
þær ávallt um þrjár leiðir að velja,
allt eftir veðri og aðstæðum.
Síðast þegar Kristín Jóna fór í
langferð um Ísland þá gengu þær
þrjár vinkonur frá Reykjanesi og
að Fonti á Langanesi. Á þeirri
gönguleið bættust þrjár vinkonur
í hópinn síðustu vikuna. Nú eru
þessar sex vinkonur að „krossa“
Ísland en ætlunin er að reisa vörðu
á miðju landinu þegar þær fara yfir
þá gönguleið þar sem þær voru
síðast á ferð fyrir tveimur árum.
Göngugarparnir munu bera með
sér vistir í ferðinni en á nokkrum
stöðum í ferðinni fá þær nýjar
vistir. Þá bera þær með sér eitt
sex manna tjald sem þær sofa í
um nætur. Tjaldið er sérstaklega
flutt inn til fararinnar en bílaleigan
Geysir styrkti þær með því að
leggja til tjaldið. Það er sérstaklega
hannað til svona farar og eru m.a.
göngustafir notaðir til að halda því
uppi. Þær munu einnig nýta sér
skála sem eru á leiðinni og hafa
pantað gistingu í nokkrum slíkum
á leiðinni yfir landið.
Þegar þetta viðtal birtist þá er
erfiðasti hluti leiðarinnar að baki
en Vestfirðirnir eru erfiðastir fyrir
fótinn. Þar er talsverð fjallganga
og einnig var þar nokkur snjór
enn á gönguleiðinni. Í dag er
hópurinn í Hólmavík að taka
vistir. Á þjóðhátíðardaginn fengu
þær kjötsúpu og ætluðu að fá
sér hamborgara og franskar í
Hólmavík.
Undirbúningur fyrir þetta ferðalag
hefur verið langur. Þær hittast
reglulega og labba og hafa einnig
verið í hreyfingu í allan vetur.
Kristín Jóna sagði sig vera í sínu
besta formi um ævina. Hún sagði
það erfiðasta við svona göngu vera
þyngdina sem þær bera á bakinu og
að reyna að sleppa við að fá blöðrur.
Það er hins vegar óhjákvæmilegt.
Hún sagði að síðasta ganga yfir
Ísland hafi verið mikill lærdómur.
Nú kunni þær að meðhöndla
blöðrur, sprengja þær og teipa.
„Þetta er bara gaman. Við
vöknum hressar á morgnana og
erum að labba allan daginn. Við
tökum tillit til hinna í ferðinni og
hvílum á tveggja tíma fresti. Við
borðum vel. Maturinn er ekkert
spennandi, orkustangir, þurrmatur
og Herbalife. Þá borðum við einnig
harðfisk og hrökkkex með sýrópi.
Það þarf að vera létt að bera matinn
og þann þarf að gefa okkur kraft“.
Þrátt fyrir einhæft og óspennandi
fæði mestan hluta fararinnar þá
eru gulrætur inn á milli. Þannig
var kærkomið að fá kjötsúpuna í
Ófeigsfirði og tilhlökkun að komast
í sjoppufæðið á Hólmavík. Þá
verður tekið á móti gönguhópnum
á nokkrum stöðum og slegið upp
smá veislum. Þannig er búið að
skipuleggja grillveislu í Laugafelli
og þannig mætti áfram telja.
Gengið verður alla daga og áætlað
að ferðinni ljúki um miðjan júlí í
Eystri Hornvík nærri Höfn.
Nokkrir aðilar hafa styrkt þær
til fararinnar. Geysir lagði til
tjaldið, 66°Norður leggur þeim til
regnfatnað, Herbalife styrkti þær
í mat og Bláa lónið lagði þeim til
húðkrem til fararinnar, enda getur
verið gott að mýkja og næra húðina
á svona löngu ferðalagi.
›› Kristín Jóna Hilmarsdóttir og fimm vinkonur hennar leggja land undir fót:
Ganga Ísland horn í horn
„kærkomið að
fá kjötsúpuna
í Ófeigsfirði
og tilhlökkun
að komast í
sjoppufæðið á
Hólmavík“
Undirbúningur skiptir miklu
máli fyrir svona ferð.
Mikilvægt er að
prófa tjöldin.