Víkurfréttir - 21.06.2012, Síða 14
14 FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Landsbankinn veitti í vikunni f imm mil ljónir króna í
umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði
Landsbankans. Veittir voru 14
styrkir, sex að upphæð 500 þúsund
krónur hver og átta að fjárhæð 250
þúsund krónur. Tómas Knútsson
og Blái herinn voru í þeim hópi.
Ríflega 130 umsóknir bárust
sjóðnum að þessu sinni. Þetta er
í annað sinn sem Landsbankinn
v e i t i r u m h v e r f i s s t y r k i ú r
Samfélagssjóði bankans.
Umhverfisstyrkjunum er ætlað
að styðja við verkefni á sviði
umhverfismála og náttúruverndar
og dómnefnd leitast við að velja
metnaðarfull verkefni sem hafa
skýra þýðingu fyrir íslenska
náttúru og vistkerfið. Þessir styrkir
byggja á stefnu Landsbankans um
samfélagslega ábyrgð þar sem fram
kemur m.a. að bankinn hyggist flétta
umverfismálum, efnahagsmálum
og samfélagsmálum saman við
rekstur sinn.
Eftirtaldir aðilar á Suðurnesjum
h l u t u u m h v e r f i s s t y r k i ú r
Samfélagssjóði bankans að þessu
sinni:
500 þúsund króna styrkir:
Blái herinn – Hreinn ávinningur
Blái herinn hlýtur styrk fyrir
verkefnið „Hreinn ávinningur“
sem nýta á til að kenna komandi
kynslóðum að ganga vel um
náttúruna og stuðla að betri vitund
um umhverfið.
250 þúsund króna styrkir:
Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs
– Sjálfbær þróun á Suðurnesjum.
Gróður fyrir fólk í Landnámi
Ingólfs hlýtur styrk til að stuðla að
sjálfbærri þróun á Suðurnesjum
með því að nýta lífrænan úrgang til
uppgræðslu á svæðinu.
Blái herinn fékk hæsta
umhverfisstyrkinn
hjá Landsbankanum
Örlítil væta um hádegisbilið á þjóðhátíðardaginn kom ekki í veg fyrir að íbúar Reykjanesbæjar legðu leið sína í Skrúðgarðinn í bænum til þess að halda upp á afmæli lýðveldisins. Veður var með besta móti þegar
dagskráin hófst og var bjart yfir fólki á öllum aldri í skrúðgöngunni sem gengin var frá Keflavíkurkirkju að
Skrúðgarðinum.
Ýmis skemmtiatriði voru í boði og var íslenski fáninn dreginn að húni í skrúðgarðinum eins og venja er. Það
gerði fyrrum skólastjóri Njarðvíkurskóla, Gylfi Guðmundsson að þessu sinni. Eyjólfur Eysteinsson formaður
Félags eldri borgara á Suðurnesjum hélt ræðu og Karlakór Keflavíkur söng m.a. fyrir gesti ásamt því að fjöldi
skemmtikrafta kom fram.
Gylfi dró fánann að
húni í Reykjanesbæ
Fjallkonan var nýstúdentinn Andrea Björg
Jónsdóttir úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja
FORSETAKOSNINGAR
LAUGARDAGINN 30. JÚNÍ 2012
Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar,
frá miðvikudeginum 20. júní fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.
Kosið er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað.
Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs fer fram á skrifstofu sýslumannsins,
að Víkurbraut 25, neðri hæð. Aðeins er opið virka daga sem hér segir:
Alla virka daga til og með 22. júní frá kl. 8:30 til 13:00.
Dagana 25 .- 29. júní frá kl. 8:30 til 17:00.
Kjörstjórn Grindavíkurbæjar
Sa m k v æ m t ný ú t k o m i n n i skýrslu Vinnumálastofnunar
um stöðuna á vinnumarkaði í
maí 2012 þá mældist atvinnuleysi
á S u ð u r n e s j u n u m 9 , 4 % í
maímánuði – 8,6% meðal karla og
10,5% meðal kvenna. Atvinnuleysi
á landsvísu mælist 5,6%.
12,1% atvinnuleysi mældist
á Suðurnesjum í maí 2011 en
þá voru á Suðurnesjum 1410 á
atvinnuleysisskrá í lok mánaðar
en nú eru 1085 atvinnulausir á
Suðurnesjum í lok mánaðar og hafa
ekki færri verið á atvinnuleysisskrá
hér síðan í desember 2008.
Ekki verið færri á
atvinnuleysisskrá
síðan 2008
Eyjólfur
Eysteinsson flutti
ræðu dagsins.
Gylfi dró
fánann að húni
með aðstoð
skátanna.