Víkurfréttir - 21.06.2012, Side 15
15VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012
Berglind Ásgeirsdóttir er í eldhúsinu þessa vikuna en hún
deilir hér skemmtilegri uppskrift
með lesendum Víkurfrétta.
Berglind lumar á girnilegri
uppskrift af heimatilbúnum
hamborgurum sem eru góðir
á grillið. Berglind er þrítug og
starfar sem yfirmaður vinnuskóla
Reykjanesbæjar en hún er einnig
garðyrkjufræðingur hjá bænum.
Hvernig verður sumarið hjá þér?
„Eins og hefðbundið er fyrir
flesta garðyrkjufræðinga eru næg
verkefni allt sumarið, en Vinnuskóli
Reykjanesbæjar mun eiga stóran
part, enda ótrúlega gaman að vinna
með unglingum. Stefnan er svo að
nota helgarnar til að skoða meira
af landinu okkar og njóta þess að
vera úti í góða veðrinu með dóttur
minni.“
Berlindi þykir mjög gaman að elda
og baka, samt meira að baka en
að elda og kannski þá sérstaklega
að skreyta kökur. „Ég viðurkenni
það samt fúslega að ég elda mjög
sjaldan fyrir okkur tvær, en ef það
eru fleiri í mat þá eldar maður
eitthvað gott. Ég og dóttir mín
erum svo heppnar að búa nálægt
hótel Mömmu/Ömmu og förum
oft þangað í mat.“
Elskar kartöflumús
Hvað eldarðu oftast?
„Allt með kjúklingi býst ég við. Mér
finnst kjúklingur voða góður og svo
er auðvelt að finna eitthvað hollt
og gott með honum. Mexikóskur
matur er líka í miklu uppáhaldi.
Einnig allt sem er borið fram með
kartöflumús, ég elska kartöflumús í
hvaða búningi sem er.“
Hefurðu gaman af því að stússast
í eldhúsinu?
„Já ég hef gaman af því, sérstaklega
þegar ég stússast í stærra eldhúsi
en mínu eigin. Það er ótrúlegt
hvað það hefur mikil áhrif á
eldamennskuna að hafa nóg pláss
í kringum sig. Framtíðarplan er
sem sagt að eignast stórt eldhús.
Einnig er mjög gaman að lesa
matreiðslubækur og horfa á
matreiðsluþætti. Það er ótrúlegt
hvað hægt er að innbyrða af mat á
þann hátt, án þess að fitna.“
„Þar sem mamma mín er snillingur
í eldhúsinu og enginn sem gerir
betri hamborgara en hún, þó svo
að ég reyni mikið, þá ákvað ég að
fá hana með mér í þetta verkefni.
Við mæðgurnar förum reyndar
ekki mikið eftir uppskrift, enda
hún þaulvön og ég hermikráka.
Við tókum okkur nú samt til og
græjuðum saman þessa uppskrift
af uppáhalds hamborgurunum á
heimilinu.“
Grillborgari að hætti mömmu
Í Eldhúsinu
500 gr hakk
3 stk gulrætur
2 stk sellerileggir
1 laukur
3 hvítlauksrif
½ mexikó ostur
1 lúka spínat
½ sæt kartafla
4 tsk reykt paprika
3 dl hveitikím
4 tsk krydd salt (t.d. Season All)
1 tsk svartur pipar
Gott að bæta við ferskum eða
þurrkuðum chilli pipar fyrir þá
sem vilja.
G r æ n m e t i ð r i f i ð n i ð u r í
matvinnsluvél og öllu blandað vel
saman. Mótar sæmilega kúlu eftir
því hvaða stærð borgara óskað er
eftir. Leggur hana á „mellemblad“
eða klipptan smjörpappír og fletur
létt út með flötum fingrum. Gott
er að taka hníf og saxa létt ofan
á borgarann til að jafna þykkt og
gera huggulegt munstur.
Borgararnir grillaðir, ásamt brauði
og borið fram með niðurskornu
grænmeti og sósum. Einnig er
frábært að bjóða upp á steikta
sveppi, egg og beikon til að skella
á milli. Það er svona fullorðins.
Hvítlauksjukk
Dós af sýrðum rjóma blandað
saman við hvítlauk, 2-3 væn rif og
smá salt. Einum poka af rifnum
mosarella osti blandað saman
við. Þetta er algjör snilld út á
grillaðar kartöflur og auðvitað á
hamborgarann.
Berglind ásamt móður sinni Ólöfu Jónsdóttur
og sú stutta heitir Ólöf Rós Davíðsdóttir
Mommy burger - um 15 - 20 stk eftir stærð
Gylfi dró fánann að
húni í Reykjanesbæ