Víkurfréttir - 21.06.2012, Side 17
17VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 21. júNí 2012
með MA gráðu í kvikmyndagerð.
Strax eftir skóla fór hann að vinna
við gerð sjónvarpsauglýsinga og
tónlistarmyndbanda. Hann hefur
einnig gert heimildarmyndir og
kynningarmyndir. Þá hefur hann
unnið að kvikmyndum með öðrum
en alltaf langað til að gera sína eigin
kvikmynd. Hann er nú að láta þann
draum verða að veruleika.
En hvernig er að taka upp kvik
myndir á Íslandi, þar sem það er
glampandi sól og góðviðri annan
daginn en súld hinn daginn?
Marteinn er fljótur að svara því.
Hann er fastagestur á veður.is og
leitar uppi drungalega tökudaga, ef
það eru útitökur. Síðan er farið í það
að athuga hverjir komast. Sumir
komast í dag, aðrir á morgun,
þannig að við getum verið að taka
upp samtalssenur þar sem leikari
„A“ er að tala í dag, en það sem
mótleikarinn segir getur verið tekið
upp á morgun eða hinn.
Til stendur að klára Zombie Island
í haust til að koma myndinni
inn á svokallaðar Horror Fest
kvikmyndahátíðir sem eru í
október. Þannig hátíðir eru haldnar
víða t.d. í Edinborg, Toronto og
New York. Þá er einnig stór hátíð
í Suður-Kóreu þar sem markaður
fyrir svona myndir er gríðarstór.
Hér heima á Íslandi er áætlað að
frumsýna myndina í Keflavík þann
12. desember eða 12.12.12.
Forsetakosningar 30. júní 2012
Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Sandgerðisbæjar í Vörðunni,
Miðnestorgi frá 20. júní fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar.
Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki.
Kjörstaður opnar kl. 9:00 og lokar kl. 22:00.
Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899 6317
Kjörstjórn Sandgerðisbæjar.
Frá tökum myndarinnar.