Víkurfréttir - 21.06.2012, Page 24
Toppurinn á Tilverunni
Ég fékk loksins tækifæri á því að efna loforðið mitt frá því í fyrra. Að bjóða heim. Útlendingi. Þessi líka fádæma ljúfi
piltur sem þáði boðið. Dugði ekki dagur eða vika. Mánuður
eða ekkert. Vertu velkominn minn kæri. Nóg að gera að sýna
honum herlegheitin. Landið mitt Ísland tekur vel á móti öllum.
Einstök náttúra og hrjóstrug. Hljótum að fá eins og eitt stykki
eldgos til að standa undir væntingum. Hann sagði að það mætti
alveg sleppa því. Hafði aldrei stigið upp í flugvél á ævinni.
Foreldrarnir ekki heldur. Ætluðu að geyma það í bili. Spenningurinn því
mikill fyrir litla fjölskyldu á Norður-Spáni að senda örverpið til eldfjallaeyju í
ballarhafi. Byrjuðu að pakka fyrir hann mörgum vikum fyrir brottför. Sendu
hann með nesti með sér. Og til okkar líka.
Honum þykir fullbjart á nóttunni. Sefur þó eins og ungabarn. Rólegt og þægilegt í Njarðvíkunum. Sérstaklega eftir að loftrýmisgæslunni lauk.
Langar að skoða höfuðborgina og mannlífið. Bíður spenntur eftir því að komast í
Bláa lónið. Það þekkja það allir. Svo segir hann. En frúin hafði önnur áform fyrir
hann. Út í sveit með drenginn. Pantaði sumarhús hjá verslunarmannafélaginu og
fékk úthlutað á Flúðum. Best að bjóða honum gullna hringinn fyrst. Suðurlandið
fullt af tækifærum. Fengum hann varla í burtu frá Seljalandsfossi. Sund og heitir
pottar í algjöru uppáhaldi. Lofaði almættið með útbreiddan faðm þegar hann
prófaði pottinn í sumarhúsinu. Fannst það toppurinn á tilverunni. Á miðnætti
í miðnætursól og birtu. Það sem okkur finnst einhvern veginn svo sjálfsagt, á
hann ekki til orð yfir. Ísland er einstaklega rómantískt.
Veðrið hjálpar til við upplifunina. Hann vaknar að morgni í sól og blíðu. Hitinn nálægt 18 gráðum. Um hádegið dregur fyrir sólu og fer að blása.
Skýin einstaklega dimm og fyrr en varir dynja haglélin á pallinum. Vara í korter.
Í eftirmiðdaginn dettur allt í dúnalogn og flugurnar fara á kreik. Fuglalífið tekur
undir með tónelsku ívafi. Grillað íslenskt lambakjöt og spænskt rauðvín mettar
sísvangan sveitapiltinn. Vill jógúrt í eftirrétt. Heimtar að fá að vera lengur.
Framlengir í hálfan mánuð í viðbót.
Þjóðhátíðardagurinn heillaði líka. Sjá allt fjörið. Sendur á bílnum í bæinn og við hjónin skilin eftir. Í sveppabænum. Líður eins og í stofufangelsi.
Komumst ekki lönd né strönd. Bíllaus. Reimaði á mig skóna í morgun og fór í
göngutúr. Frjáls eins og fuglinn.
vf.is
Fimmtudagurinn 21. júní 2012 • 25. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
VEITINGASALAN Í LEIRU
ER OPIN ALLA DAGA
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
Í HÁDEGINU
ALLA DAGA
SÚPA DAGSINS OG
FERSKUR FISKUR
KAFFIVEITINGAR,
HAMBORGARAR,
SAMLOKUR OG FLEIRA
GÓÐGÆTI.
OPIÐ ALLA DAGA FRAM
Á KVÖLD FYRIR FÉLAGA Í
GS OG AÐRA.
Laugardagur 23. júní
Sunnudagur 24. júní
Kl.10:00-12:00 Sólseturshátíðarmót hjá 6 . drengja á Víðisvellinum.
Kl.10:00 Sólseturshátíðarhlaup við Íþróttamiðstöðina í Garði. Boðið verður upp á
3 km og 10 km hlaup. Skráning í Íþróttahúsi Garðs eða á solseturshlaup@gmail.com.
Kl.14:00 Hátíðin sett á hátíðarsvæðinu út á Garðskaga
Sólborg Guðbrandsdóttir
Melkorka Rós Hjartardóttir
Area of Style
Sveppi og Villi
Atriði frá Vinnuskóla Garðs
Leikir út á svæðinu á vegum Knattspyrnufélagsins Víðis
Froðubolti - Hestaferðir fyrir börnin (teymt undir börnum)
Karmellukast úr þyrlu (fer eir veðri) - Hoppukastali
Kl.20:30-23:30 Kvölddagskrá hefst á hátíðarsvæðinu út á Garðskaga
Léttsveit Tónlistarskóla Keavíkur
Nicolette söngkona
Línudans
Blár Opal
Hljómsveitin Valdimar
Hljómsveitin Bógus
Valgeir Guðjónsson
Varðeldur
Kl.17:00 Tónleikar í Miðgarði, sal Gerðaskóla
Nicolette og Deborah Charles (aðgangur ókeypis)
Fimmtudagur 21. júní
Föstudagur 22. júní
Garðurinn settur í hátíðarbúning og mælt með að íbúar skreyti hús sín og götur og
taki þannig virkan þátt í að gera hátíðina og Garðinn sem glæsilegastan. Sérstök
skreytinganefnd veitir verðlaun fyrir best skreytta húsið og götu bæjarins.
Kl.10:00-12:00 Gerðaskóli
Töfranámskeið fyrir krakka í skólanum með Einari Mikael (frítt)
Einar Mikael kennir grunnatriðin í töfrabrögðum (fyrir grunnskólakrakka)
Kl.20:00-22:00 Ganga frá Unu-húsi út að Garðskaga með Herði Gíslasyni.
Hörður fer yr helstu kennileiti á gönguslóðum.
Kl.15:00-17:00 Gerðaskóli
Leikir og ör með Gauju, Brynju og Evu fyrir alla krakka.
Knattspyrnufélagið Víðir gefur öllum hressum krökkum svala og prins póló.
Kl.18:00-20:00
Götugrill í hverfum bæjarins, nefndin mælir með að hvern hittist á ákveðnum
stöðum og götur (rauða hverð, gula hverð, græna hverð og appelsínugula
hverð) grilli saman. Hermann Ingi mætir í hverfagrillin og kannar stemninguna
og tekur nokkur lög.
Kl.20:00 Hermann Ingi fer fyrir skrúðgöngu frá Bæjarskrifstofunni út á Víðisvöll,
þar sem Víðir tekur á móti liði Grundararðar. Leikurinn hefst kl. 20:30
(Víðir keppir síðan á Grundarrði við þá á þeirra bæjarhátíð)
Kl.22:00-24:00 Blakmót út á Garðskaga. Allir hvattir til að vera með lið.
Þátttökugjald er 500 kr. á leikmann, greiðist á staðnum.
(skráning á solsetursblakmot2012@gmail.com)
Kl.23:00 Kvöldmessa í Útskálakirkju.
Sölutjöld verða á svæðinu. Yngri okkar Víðis verða með ýmislegt góðgæti til
sölu á svæðinu, m.a. Candy oss, Krap-ís, Ka, Kakó o..
10. bekkur Gerðaskóla verður með hamborgara og pylsusölu
M.. Víðis verður með heita súpu til sölu.
Listviðburðir Ferskra vinda alla helgina sjá nánar á svgardur.is eða á fresh-winds.com
...\isn-93\götukort-litur--i93.dgn 9.1.2009 08:55:39
...\isn-93\götukort-litur--i93.dgn 9.1.2009 08:55:39
...\isn-93\götukort-litur--i93.dgn 9.1.2009 08:54:48
...\isn-93\götukort-litur--i93.dgn 9.1.2009 08:55:39
Rauða grillið
Gula grillið Græna grillið
Appelsínugula grillið
Jón Ragnar Ástþórsson formaður Víðis setur hátíðina
Bryn Ballet
Leikskólabörn frá Gefnarborg
Kl.17:00 Sjósund í Garðhúsavík
Einar Mikael töframaður frumsýnir stórkostlegt atriði
Forsetaframbjóðendur
á Suðurnesjum
Forsetaframbjóðendurnir Þóra Arnórsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson voru á ferðinni á Suðurnesjum nýlega. Þau komu bæði
við á hinum ýmsu vinnustöðum og spjölluðu við fólk og svöruðu
spurningum. Meðfylgjandi mynd af Þóru var tekin á Nesvöllum en
af Ólafi Ragnari og Dorrit í húsakynnum Miðstöðvar símenntunar á
Suðurnesjum. Videoviðtöl við þau bæði má finna á vef Víkurfrétta.