Víkurfréttir - 04.10.2012, Blaðsíða 12
fimmtudagurinn 4. október 2012 • VÍKURFRÉTTIR12
Stelpan mín hún Sigurbjörg getur verið frekar
ýtin, en hún fékk mig til þess að byrja á þessu,“
segir Gunnar en hann hafði eitthvað vílað því
fyrir sér þar sem hann var nánast ósyndur. „Ég
var einn af þessum óþekktaröngum í gamla
daga sem nennti aldrei í sund, þannig að ég
kunni ekki að synda fyrr en fyrir ári síðan.
Til þess að geta verið með í þríþraut þá þarf
maður að geta synt,“ segir Gunnar en hann
er duglegur að synda núorðið enda er dóttir
hans fyrrum afreksmaður í sundi og styður vel
við bakið á þeim gamla. Gunnar hefur verið í
ýmsu í gegnum tíðina og að eigin sögn hefur
hann snert á flestum í þróttum.
Íþróttaferill Gunnars er orðinn æði langur
en hann hófst í körfuboltanum með Njarðvík
uppi á Keflavíkurflugvelli. Gunnar er marg-
faldur Íslandsmeistari í körfubolta í svoköll-
uðum „old boys“ flokki en hann er enn að
mæta á æfingar bæði í körfunni og fótbolt-
anum sem hann hefur lengi lagt stund á. Það
tæki líklega of mikið pláss að rita niður allar
þær íþróttir sem Gunnar hefur lagt fyrir sig en
hann hefur verið í nánast öllu nema sundi. „Ég
hef verið nánast í öllu nema sundi, verið alger
alæta á alla hreyfingu,“ en þar er Gunnar ekki
að ýkja, hann hefur verið í boltaíþróttunum,
hlaupi, tennis, badminton, stundað fjallgöngur
og svo var hann öflugur í júdó.
Varð Íslandsmeistari í júdó
Júdóferillinn var blómlegur en Gunnar krækti
sér þar í Íslandsmeistaratitil. „Ég byrjaði í júdó
um þrítugt. Æfði eins og skepna í rúmt ár og
varð Íslandsmeistari í 73 kg flokknum. Það var
varla hægt að vera á fullu í júdóinu en maður
var með fjölskyldu og að vinna mikið á þeim
tíma. Við konan ákváðum að það yrði ár tekið í
þetta á fullu og svo slakaði ég aðeins á í þessu,“
en það er eitthvað sem Gunnar á frekar erfitt
með, að slaka á.
„Ég hefði sennilega getað verið sendur á Breiða-
vík á sínum tíma. Ég var ansi virkur skulum við
segja,“ segir Gunnar og brosir út í annað. Það
er saga að segja frá því að eftir hjartaaðgerðina
í byrjun árs ætlaði Gunnar fremur geyst úr
bælinu og ætlaði að taka endurhæfinguna á
öðru hundraðinu. Læknirinn kallaði hann inn
á teppið til sín „Hann sagði að ég þyrfti nú að
átta mig á því að ég væri ofvirkur. Ég hef alltaf
verið með góða hreyfigetu og maður er búinn
að brjóta nánast hvert bein í líkamanum á
þessu brölti í gegnum tíðina,“ en það var þó
áður en Gunnar gerðist fjölskyldumaður og
Ásdís Friðriksdóttir eiginkona hans náði að
róa hann örlítið niður.
„Maður er samt áhættufíkill, það má alveg
segja það,“ en Gunnar fékk gamlan draum
uppfylltan fyrir nokkrum árum þegar hann
sveif fram af 1000 metra klettabrún í Slóveníu
í sviffallhlíf sem stjórnað var af þaulreyndum
manni. „Við skutumst upp í miklu uppstreymi.
Það henti okkur alveg hundrað metrum ofar
og það var eitthvað það svakalegasta sem ég
hef lent í. Kikkið var draumi líkast.“ Gunnar
lætur ekki þar við sitja en hann stundar einnig
flúðasiglingar og þeystist um á mótorhjólum
hér á árum áður. „Ég slasaði mig alltaf hæfilega
mikið“, segir Gunnar og hlær.
Þríþrautin er Gunnari hugfanginn en hún
á hug hans allan um þessar mundir. „Þetta
er svo fjölskylduvænt. Þar er m.a. í boði hin
stórsniðuga fjölskylduþraut, þar sem allir fjöl-
skyldumeðlimir geta tekið þátt. Nú í ár tókum
við hjónin og barnabarn okkar þátt í þrautinni
en þá er greinunum skipt á milli fólks. Einn
hleypur, annar hjólar og sá þriðji syndir. “
Gunnar er virkilega hrifinn af fyrirkomulaginu
í þríþrautinni en þar er aðallega hugsað um
að hver einstaklingur fari á sínum hraða og
hreyfingin er það sem öllu skiptir. Þrisvar til
fjórum sinnum í viku fer Gunnar og iðkar
hreyfingu. „Mér finnst best að stunda alhliða
hreyfingu. Maður á ekki að fúlsa við neinu og
um að gera að hreyfa sig bara. Að mínu mati er
alger skömm að nýta sér það ekki til fullnustu
ef maður fæðist heilbrigður og getur stundað
hreyfingu. Ég er rosalega þakklátur fyrir að
hafa fæðst heilbrigður og geta haldið heilsunni
við með því að hreyfa mig,“ segir orkuboltinn
Gunnar.
Heilsan hefur alltaf skipt Gunnar máli og þrátt
fyrir smá bakslag þá á hann hreyfingunni og
íþróttum líf sitt að launa eins og áður segir.
„Það eru engin vandamál hjá mér í dag. Ég er
búinn að vinna bug á þessu.“ Hann segir þó
mikla vinnu að baki en hann þurfti að byrja á
núlli aftur eftir aðgerðina. „Læknarnir sögðu
að ef ég væri ekki við svona góða heilsu þá væri
ég löngu dauður,“ en eins og áður segir var
það arfgengur sjúkdómur sem er þess eðlis að
æðarnar stíflast upp af kalki sem varð til þess
að Gunnar fékk fyrir hjartað. Að öðru leyti var
hann stálsleginn.
Ellin bara hugarburður
Aldurinn er ekki að vefjast fyrir honum þótt
hann sé orðinn löggilt gamalmenni. „Ég hef
ekki gert mér grein fyrir því en ég er alltaf 20
Ofvirkur
áhættufíkill
VIÐTALIÐ
Þessa dagana er Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ. Þetta er í
fimmta skiptið sem þessi vika er haldin en markmiðið með heilsu- og
forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingur
getur staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum
með þátttöku allra bæjarbúa. Gunnar Örn Guðmundsson er
67 ára Njarðvíkingur sem hefur verið viðloðinn íþróttir og hreyfingu
nánast allt sitt líf. Hann er á því að með því að halda sér ávallt í góðu
formi hafi lífi hans verið þyrmt fyrr á þessu ári. Gunnar sem ávallt hefur
verið við hestaheilsu fékk fyrir hjartað nú fyrr í ár en þá uppgötvaðist
að hann var með erfðatengdan hjartasjúkdóm. Hann fór í hjartaaðgerð
í janúar sl. en var fljótlega kominn á ról aftur. Í maí var hann farinn að
taka þátt í hlaupum og hann hljóp svo 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu
nú í ágúst. Nú er það þríþrautin sem á hug hans allan.
Vin
sæ
lt
Mest
lesið á vf.is
Fréttir | 02. október 2012
Tapaðir þú
parketi og eld-
húsinnréttingu?
Það er fundið!
Mannlíf | 28. september 2012
Hákarl elti Ben
Stiller í Garð-
sjónum
Mannlíf | 27. september 2012
Síðasti tökudagur
hjá Ben Stiller
- myndir
Fréttir | 29. september 2012
Hafnaði upp á
hringtorgi
Vefur Víkurfrétta
var 18. mest lesni
vefurinn á Íslandi
í liðinni viku!
síðustu 7 sólarhringa
Texti og myndir: Eyþór Sæmundsson