Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.10.2012, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 04.10.2012, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 4. október 2012 21 GRINDAVÍK Notaðu inniröddina kona! É g veit að ég á það til að tala hátt og mikið og þegar mér er mikið niðri fyrir þarf ég að passa mig sérstaklega því ég á það til að beita útiröddinni minni ótæpilega. Vinur minn segir að þegar ég er í þessum ham þá haldi hann símanum langt frá eyranu og ef hann er innan um fólk þá er ég í beinni útsendingu með það sem mér liggur á hjarta. En þetta hefur sína kosti. Ég get talað fyrir fullum sal af fólki án þess að þurfa míkrófón og nemendur mínir sofna yfir- leitt ekki í tímum því það er nán- ast líffræðilega ómögulegt. En ég hef fengið gagnrýni fyrir að vera of hávær og verið beðin um að nota inniröddina oftar. Jú, jú, ég á líka mína innirödd sem ég nota við aðstæður þar sem reiknað er með lágstemmdari stemningu. Yfirleitt gengur mér vel að greina slíkar aðstæður en það hefur alveg komið fyrir að ég hafi farið raddvillt og lent í aðstæðum þar sem ég hefði átt að hrópa upp yfir mig en beitti í staðinn hljóðlátu, ljúfu inniröddinni sem átti engan veginn við! Ég var í sundi í gamla heimabænum og var að fækka klæðum inni í búningsklefanum. Það var nýbúið að skipta um klefa þannig að nú var ég stödd í gamla karlaklefanum sem var mun rúmbetri en sá sem konur höfðu til afnota áður og karlpeningurinn sat uppi með „litla“ klefann okkar. Þessi breyting var vel kynnt því allir gerðu sér grein fyrir því að manneskjan er einn vani og ekki ólíklegt að einhverjir strunsi inn í sama klefa og gert hafi verið árin á undan. Þar sem ég er orðin fáklædd þarna í klef- anum og á leið í sturtuna heyri ég söng úr sturtunni og það var engin kvenmanns- rödd þar á ferðinni. Ég geri mér strax grein fyrir að einhver karlinn hafði ruglast og stóð nú undir bununni í kvennaklefanum. Ég hljóp fram til að finna starfsmann sem var ekki sjáanlegur og rauk aftur inn í klefa. Labbaði að sturtunum, stóð á bak við skáp og með minni ofur ljúfu og lágu inniröddu segi ég „afsakið, afsakið, en þú ert eitthvað að villast“. Karlmanns- röddin tók nýjar hæðir í söng og greinilegt að þar voru engar áhyggjustunur á ferð. Ég reyndi hóstið, ofur kvenmannslega hóstið, en áfram söng minn maður. Ég hélt áfram að hósta pent og segja „afsakið, þú ert í vitlausum klefa“ en orðin runnu í niðurfallið með vatninu. Ef það var ein- hvern tímann ástæða til að nota víðfrægu, djúpu útiröddina og hrópa „HEI, ÞÚ ERT Í KVENNAKLEFANUM KARLINN MINN“ þá var það þarna. Það næsta sem gerðist var að maðurinn kom úr sturtunni og auðvitað setti hann ekki handklæði um sig miðjan þegar hann var búinn að þurrka sér – hann skellti því um hálsinn og labbaði að skápunum ennþá raulandi fyrir munni sér. Það var einmitt þá sem ég ákvað að koma úr „felum“ ! Ég geri mér svo vel grein fyrir því að það er ekki mér að þakka að vesalings mað- urinn (sem var örugglega á níræðisaldri) skyldi komast eins vel frá þessu og raun bar vitni. Viðbrögðin þegar hann sá mig minntu einna helst á afrískan bongódans. Honum brá svo að hann ætlaði að hlaupa allsnakinn út úr klefanum með mig og mína innirödd á hælunum „þetta er allt í lagi sko, þetta er allt í lagi“. En af hverju notaði ég ekki útiröddina og gerði honum grein fyrir aðstæðum mun fyrr? Jú, því ég hafði áhyggjur af því að manninum mundi bregða svo mikið – og hugsunin var sú að það væri örugglega þægilegra fyrir hann að koma labbandi inn í búningsklefann á sprellanum og svo á réttu augnabliki mundi ég stökkva fram og segja ofur ljúf- lega „úps, þú ert í kvennaklefanum“. Niðurstaðan – inniröddin er klárlega of- metin ! Þangað til næst – gangi þér vel. Anna Lóa Fylgstu með mér www.facebook.com/Hamingjuhornid ANNA LÓA ÓLAFSDÓTTIR SKRIFAR HamIngjUHoRnIð Að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ, húsið opnar kl. 10:00. Safnað verður í Reykajnesbæ, Garði, Sandgerði og Vogum. J Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Marargata 7. Eigendur Vilhelm Þór Þórarinsson og Vigdís Viggósdóttir. Nefndinni fannst garðurinn afar óvenjulegur og skemmtilegur, þar er mikið af fjöl- ærum plöntum, skemmtileg tjörn og frumleg útfærsla á mörgu. J Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Staðarvör 8. Eigendur Halla Kristín Sveinsdóttir og Þórarinn Kr. Ólafsson. Nefndin var sammála um að garðurinn væri einstaklega glæsilegur, vel hirtur og skipulagður og eigendum sínum til mikils sóma.Umhverf- isverðlaun Grindavíkur afhent Umhverfisverðlaun Grinda-víkurbæjar 2012 voru afhent við hátíðlega athöfn á dögunum að viðstöddum bæjarstjórn, gestum frá Svíþjóð og fleiri góðum gestum. Líkt og undanfarin ár var óskað eftir tilnefningum frá bæjarbúum og bárust fjölmargar ábendingar. Farið var í vettvangsferðir um ýmsa garða í ágúst og í framhaldi af því voru fegurstu garðarnir valdir. Við athöfnina tilkynnti Róbert Ragn- arsson bæjarstjóri um verðlaunin en Marta Sigurðardóttir formaður skipulags- og umhverfisnefndar sá um að afhenda þau. Grindavíkurbær þakkar margar góðar ábendingar frá bæjarbúum. Jafnframt vill bærinn þakka sér- staklega Guðbjörgu Eyjólfsdóttur fyrir að halda utan um um- hverfisverðlaunin undanfarin ár með miklum myndarbrag. J Verðlaun fyrir snyrtilegasta fyrirtækið: Ice-West ehf. Kristín og Ingvar frá Ice-West ásamt Mörtu formanni skipulags- og umhverfisnefndar. Húsnæðið hefur verið tekið í gegn bæði að innan og utan undanfarin misseri svo eftir er tekið. Húsið er sem nýtt og ásýnd þess glæsileg í hvívetna. J Verðlaun fyrir vel heppnaða viðgerð á gömlu húsi: Húsið hefur tekið algjörum stakka- skiptum eftir að það var tekið í gegn af Oddgeiri Arnari og hans mönnum í Sparra og er orðið að bæjarprýði í gamla bænum okkar. Féll úr stiga og handarbrotnaði Vinnuslys varð í Grindarvík í síðustu viku er maður féll úr fimm þrepa álstiga og handar- brotnaði. Verið var að klæða loft í nýju húsnæði þegar óhappið varð. Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum og var maðurinn svo fluttur á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja. Þaðan var hann fluttur á slysadeild Landspítala, þar sem gert var að meiðslum hans. Þar sem ég er orðin fáklædd þarna í klefanum og á leið í sturtuna heyri ég söng úr sturtunni og það var engin kvenmanns- rödd þar á ferðinni. Anna Lóa

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.