Víkurfréttir - 04.10.2012, Síða 21
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 4. október 2012 21
GRINDAVÍK
Notaðu inniröddina kona!
É g veit að ég á það til að tala hátt og mikið og þegar mér er mikið niðri
fyrir þarf ég að passa mig sérstaklega því
ég á það til að beita útiröddinni minni
ótæpilega. Vinur minn segir að þegar ég
er í þessum ham þá haldi hann símanum
langt frá eyranu og ef hann er innan um
fólk þá er ég í beinni útsendingu með það
sem mér liggur á hjarta. En þetta hefur
sína kosti. Ég get talað fyrir fullum sal af
fólki án þess að þurfa míkrófón
og nemendur mínir sofna yfir-
leitt ekki í tímum því það er nán-
ast líffræðilega ómögulegt. En
ég hef fengið gagnrýni fyrir að
vera of hávær og verið beðin um
að nota inniröddina oftar. Jú,
jú, ég á líka mína innirödd sem
ég nota við aðstæður þar sem
reiknað er með lágstemmdari
stemningu. Yfirleitt gengur mér
vel að greina slíkar aðstæður en
það hefur alveg komið fyrir að
ég hafi farið raddvillt og lent í
aðstæðum þar sem ég hefði átt
að hrópa upp yfir mig en beitti
í staðinn hljóðlátu, ljúfu inniröddinni
sem átti engan veginn við!
Ég var í sundi í gamla heimabænum og var
að fækka klæðum inni í búningsklefanum.
Það var nýbúið að skipta um klefa þannig
að nú var ég stödd í gamla karlaklefanum
sem var mun rúmbetri en sá sem konur
höfðu til afnota áður og karlpeningurinn
sat uppi með „litla“ klefann okkar. Þessi
breyting var vel kynnt því allir gerðu sér
grein fyrir því að manneskjan er einn vani
og ekki ólíklegt að einhverjir strunsi inn í
sama klefa og gert hafi verið árin á undan.
Þar sem ég er orðin fáklædd þarna í klef-
anum og á leið í sturtuna heyri ég söng úr
sturtunni og það var engin kvenmanns-
rödd þar á ferðinni. Ég geri mér strax grein
fyrir að einhver karlinn hafði ruglast og
stóð nú undir bununni í kvennaklefanum.
Ég hljóp fram til að finna starfsmann sem
var ekki sjáanlegur og rauk aftur inn í
klefa. Labbaði að sturtunum, stóð á bak
við skáp og með minni ofur ljúfu og lágu
inniröddu segi ég „afsakið, afsakið, en
þú ert eitthvað að villast“. Karlmanns-
röddin tók nýjar hæðir í söng og greinilegt
að þar voru engar áhyggjustunur á ferð.
Ég reyndi hóstið, ofur kvenmannslega
hóstið, en áfram söng minn maður. Ég
hélt áfram að hósta pent og segja „afsakið,
þú ert í vitlausum klefa“ en orðin runnu í
niðurfallið með vatninu. Ef það var ein-
hvern tímann ástæða til að nota víðfrægu,
djúpu útiröddina og hrópa „HEI, ÞÚ
ERT Í KVENNAKLEFANUM KARLINN
MINN“ þá var það þarna. Það næsta sem
gerðist var að maðurinn kom úr sturtunni
og auðvitað setti hann ekki handklæði
um sig miðjan þegar hann var búinn að
þurrka sér – hann skellti því um hálsinn
og labbaði að skápunum ennþá raulandi
fyrir munni sér. Það var einmitt þá sem ég
ákvað að koma úr „felum“ !
Ég geri mér svo vel grein fyrir því að það
er ekki mér að þakka að vesalings mað-
urinn (sem var örugglega á níræðisaldri)
skyldi komast eins vel frá þessu og raun
bar vitni. Viðbrögðin þegar hann sá mig
minntu einna helst á afrískan bongódans.
Honum brá svo að hann ætlaði að hlaupa
allsnakinn út úr klefanum með mig og
mína innirödd á hælunum „þetta er allt
í lagi sko, þetta er allt í lagi“. En af hverju
notaði ég ekki útiröddina og gerði honum
grein fyrir aðstæðum mun fyrr? Jú, því ég
hafði áhyggjur af því að manninum mundi
bregða svo mikið – og hugsunin var sú að
það væri örugglega þægilegra fyrir hann
að koma labbandi inn í búningsklefann
á sprellanum og svo á réttu augnabliki
mundi ég stökkva fram og segja ofur ljúf-
lega „úps, þú ert í kvennaklefanum“.
Niðurstaðan – inniröddin er klárlega of-
metin !
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa
Fylgstu með mér
www.facebook.com/Hamingjuhornid
ANNA LÓA
ÓLAFSDÓTTIR
SKRIFAR
HamIngjUHoRnIð
Að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ,
húsið opnar kl. 10:00.
Safnað verður í Reykajnesbæ, Garði, Sandgerði og Vogum.
J Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Marargata 7. Eigendur
Vilhelm Þór Þórarinsson og Vigdís Viggósdóttir. Nefndinni fannst
garðurinn afar óvenjulegur og skemmtilegur, þar er mikið af fjöl-
ærum plöntum, skemmtileg tjörn og frumleg útfærsla á mörgu.
J Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Staðarvör 8. Eigendur
Halla Kristín Sveinsdóttir og Þórarinn Kr. Ólafsson. Nefndin var
sammála um að garðurinn væri einstaklega glæsilegur, vel hirtur
og skipulagður og eigendum sínum til mikils sóma.Umhverf-
isverðlaun
Grindavíkur
afhent
Umhverfisverðlaun Grinda-víkurbæjar 2012 voru afhent
við hátíðlega athöfn á dögunum
að viðstöddum bæjarstjórn,
gestum frá Svíþjóð og fleiri góðum
gestum. Líkt og undanfarin ár
var óskað eftir tilnefningum frá
bæjarbúum og bárust fjölmargar
ábendingar.
Farið var í vettvangsferðir um ýmsa
garða í ágúst og í framhaldi af því
voru fegurstu garðarnir valdir. Við
athöfnina tilkynnti Róbert Ragn-
arsson bæjarstjóri um verðlaunin
en Marta Sigurðardóttir formaður
skipulags- og umhverfisnefndar sá
um að afhenda þau.
Grindavíkurbær þakkar margar
góðar ábendingar frá bæjarbúum.
Jafnframt vill bærinn þakka sér-
staklega Guðbjörgu Eyjólfsdóttur
fyrir að halda utan um um-
hverfisverðlaunin undanfarin ár
með miklum myndarbrag.
J Verðlaun fyrir snyrtilegasta
fyrirtækið: Ice-West ehf. Kristín
og Ingvar frá Ice-West ásamt
Mörtu formanni skipulags- og
umhverfisnefndar. Húsnæðið
hefur verið tekið í gegn bæði
að innan og utan undanfarin
misseri svo eftir er tekið. Húsið
er sem nýtt og ásýnd þess
glæsileg í hvívetna.
J Verðlaun fyrir vel heppnaða
viðgerð á gömlu húsi: Húsið
hefur tekið algjörum stakka-
skiptum eftir að það var tekið í
gegn af Oddgeiri Arnari og hans
mönnum í Sparra og er orðið
að bæjarprýði í gamla bænum
okkar.
Féll úr stiga og
handarbrotnaði
Vinnuslys varð í Grindarvík í síðustu viku er maður féll
úr fimm þrepa álstiga og handar-
brotnaði. Verið var að klæða loft
í nýju húsnæði þegar óhappið
varð. Óskað var eftir aðstoð
lögreglunnar á Suðurnesjum
og var maðurinn svo fluttur
á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja. Þaðan var hann fluttur á
slysadeild Landspítala, þar sem
gert var að meiðslum hans.
Þar sem ég er orðin
fáklædd þarna í
klefanum og á leið í
sturtuna heyri ég söng
úr sturtunni og það
var engin kvenmanns-
rödd þar á ferðinni.
Anna Lóa