Neytendablaðið - 01.10.2009, Síða 11
0
Fjárfestu í endurhlaðanlegum rafhlöðum. Ég hef alltaf keypt þær í
útlöndum. Verðið er miklu lægra þar og þær taka ekki mikið pláss
í töskunni. Sanyo Eneloop hleðslutæki, sem hleður fjórar AA eða
AAA rafhlöður, kostar $22 (2750 kr.) hjá amazon.com. Fjórar AA
rafhlöður eru innifaldar. Fyrir fólk sem notar endurhlaðanlegar
rafhlöður mikið mæli ég með BC-900 hleðslutæki frá LaCrosse
Technology (um það bil €45 hjá amazon.de eða $40 hjá amazon.
com).
Kauptu notaðan bíl. Það er vissulega skemmtilegt að kaupa
nýjan bíl en það borgar sig sjaldan. Við hjónin keyptum fimm ára
gamlan Subaru fyrir fimm árum síðan. Við borguðum 500.000
kr. Viðgerðarkostnaður síðan hefur kannski verið 50.000 kr. á ári.
Samanlagt hefur bíllinn kostað 150.000 kr. á ári en hann gengur
enn.
Fáðu þér dælulykil. Fyrirtækin Atlantsolía, Orkan og Ódýrt bensín
bjóða öll upp á dælulykil sem veitir 2 króna afslátt á eldsneyti. Í
gegnum Félag íslenskra bifreiðaeigenda er hægt að fá dælulykil frá
Atlantsolíu sem býður upp á 4 til 6 króna afslátt. Þeir sem taka 25
lítra á viku á lyklinum spara sem nemur félagsgjaldi FÍB á ári. Nei,
það er ekki svo mikið, en það sparar tíma líka. Kvittun kemur til þín
í tölvupósti.
Lestu ókeypis bækur. Bókasöfn landsins taka mjög vægt gjald
fyrir útlánaskírteini og skrá yfir allar bækur má finna á gegnir.is.
Auk þess eru margar góðar bækur á ensku gefins í rafrænu formi
á vefsíðum eins og archive.org og gutenberg.org. Yfirleitt er um að
ræða eldri bækur sem höfundarréttur nær ekki yfir.
Notaðu ókeypis hugbúnað. Það er hægt að gera næstum því allt
sem þú þarft í tölvunni án þess að borga fyrir hugbúnaðinn. Hér eru
nokkur dæmi um forrit sem hægt er að skipta út: Fyrir Microsoft
Office: Open Office. Fyrir Internet Explorer: Firefox eða Opera. Fyrir
Adobe Photoshop: IrfanView eða Gimp. Fyrir Norton vírusvörn:
AVG. Fyrir Real Player eða Windows Media Player: VideoLAN.
Fyrir Microsoft Windows stýrikerfið: Ubuntu. Meðal annarra
ókeypis forrita eru Thunderbird (tölvupóstur), FileZilla (skráafærsla),
Karen’s Replicator (öryggisafrit), Audacity (hljóðvinnsla),
Arachnophilia (HTMLritstjórn), FastStone (ljósmyndaskoðun) og 7
zip (samanþjöppun). Vefsíðusmíðaforritið Joomla, sem einnig fæst
ókeypis, hefur haslað sér völl á Íslandi (joomlis.net) en Drupal er
annar svipaður valkostur. Einnig er hægt að nota ókeypis forrit á
netinu, t.d. Google Docs.
Prófaðu Skype eða önnur sambærileg forrit. Þeir sem hringja oft
til útlanda eiga endilega að hlaða niður Skypeforritinu og hvetja
vini sína í útlöndum til að gera það sama. Símtöl á milli tveggja
tölva sem báðar eru með Skype eru ókeypis (fyrir utan kostnað
við það að vera með nettengingu). Það er líka hægt að hringja í
fólk í útlöndum á miklu lægra mínútuverði en býðst hjá íslenskum
símafyrirtækjum með því að skrá sig í „SkypeOut“ og kaupa inneign
með kreditkorti. Þeir sem nota Skype mikið kvarta undan því að
þurfa að tengja og aftengja heyrnartól og hljóðnema við fartölvur
aftur og aftur. Það sama gildir ef maður kaupir USBsíma sérstaklega
fyrir Skypesímtöl. Góð lausn er að kaupa þráðlausan Skypesíma
sem tengist inní beinirinn (routerinn) en ekki beint í tölvuna. Það er
jafnvel hægt að kaupa síma sem er með tvöfaldar tengingar; annars
vegar sem Skypesími og hins vegar sem venjulegur fastlínusími.
DualPhone 3088 (www.dualphone.net) er slíkur sími, framleiddur
af dönsku fyrirtæki, og kostar um það bil €120. Ekki er hægt að
kaupa þennan síma á Íslandi en hann fæst í flestum Evrópulöndum
í gegnum skype.com eða Amazon.
Hugsaðu símaþjónustu þína upp á nýtt. Þarftu hröðustu ADSL
tenginguna í raun og veru? Ég ákvað að vera með þá hægustu og
ódýrustu (1 Mbps) og hef aldrei séð eftir því. Ertu að borga fast
mánaðarlegt gjald fyrir ákveðinn fjölda mínútna í farsímanum? Ef
þú ferð í þrjá mánuði til Spánar á veturna þá er það tapað fé og það
er sennilega skynsamlegra að skipta yfir í fyrirkomulag þar sem þú
borgar bara fyrir raunverulega notkun.
Lækkaðu hitann. Þó að heitt vatn sé frekar ódýrt á Íslandi er samt
auðvelt að spara nokkur þúsund króna á ári án þess að skjálfa af
kulda. Passaðu sérstaklega upp á að lækka á ofnunum áður en þú
ferð í ferðalag.
Bakaðu eigið brauð. Brauðvélar eru ekki dýrar og það er frábært að
vakna við ferskan ilminn.
Sparaðu í kreppunni
Ian Watson deilir nokkrum sparnaðarráðum með lesendum
Góður bíll þarf ekki að koma beint úr kassanum
11 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2009