Neytendablaðið - 01.10.2009, Síða 21
Það hlýtur að vera draumur allra neytenda að geta keypt vöru
sem aldrei þarf að skipta út; vöru sem bilar aldrei, eyðist ekki
og virkar alltaf eins. En um leið er það martröð framleiðandans.
Það er ekkert viðskiptavit í því að framleiða eitthvað sem ekki
þarfnast viðhalds eða endurnýjunar. Þegar markaðurinn er
mettur er ekkert eftir annað en að slökkva á færibandinu og loka
verksmiðjunni!
Það eru nokkrar vörutegundir sem vekja nostalgíu hjá neytendum
einmitt vegna gæða og langs endingartíma vörunnar:
Klossar úr plasti
Crocsskórnir vinsælu slógu í gegn þvert gegn vilja þeirra sem telja
sig vera sjálfskipaðar tískulöggur. Fyrir utan það að skórnir eru
óslítandi, er notagildi Crocs þeirra sterkasta hlið en þeir nýtast sem
vaðskór, strandskór, götuskór, inniskór og allt þar á milli. Þeir eru
þægilegir fyrir alla aldursflokka og bæði kynin þó það megi kannski
deila um fagurfræðilegt gildi þeirra. Skórnir komu fyrst á markað
árið 2002 og eru uppgötvun þriggja vina frá Boulder í Colorado.
Fyrirtækið þandist út til að koma til móts við hina gífurlegu
eftirspurn en nú er Crocs í miklum vandræðum. 2000 starfsmönnum
var sagt upp störfum nýlega og verðmæti fyrirtækisins hefur fallið
um 76% milli ára. Framleiðandinn situr nú uppi með stórar birgðar
af skónum sem sumir elska að hata.
Kubbarnir góðu
Hver á ekki kassa af LEGOkubbum í geymslunni? Kubbar þessir
ganga milli kynslóða en það er þó aldrei svo að ekki sé hægt að
bæta í safnið. LEGOkubbar teljast kannski ekki ódýrir en gæðin eru
líka eftir því. Þetta danska fyrirtæki var stofnað árið 1932 og varð
fljótt stórveldi á leikfangamarkaðinum. LEGOkubbar eru vinsælasta
leikfang allra tíma og var kosið besta leikfang tuttugustu aldarinnar.
LEGO hefur þó mætt alvarlegum fjárhagserfiðleikum og rambað
á barmi gjaldþrots. Ódýrar eftirlíkingar og slæmar ákvarðanir í
uppbyggingu fyrirtækisins voru LEGO erfiðar. Með nýjum afurðum
og endurskipulagningu í rekstri hefur fyrirtækinu tekist að snúa
aftur við blaðinu undir forystu barnabarns stofnandans, Ole Kirk
Christiansen.
Öruggasti bíllinn
Sænski bílaframleiðandi Volvo haslaði sér völl sem framleiðandi
sterkra og endingargóðra bíla úr sænsku gæðastáli. Samkvæmt
staðalímyndinni er það yfirleitt ekki fólk sem tekur mikla áhættu
sem velur Volvo heldur vel upplýstar millistéttaffjölskyldur sem
setja öryggið á oddinn. Þriggja punkta bílbeltið kom fyrst fram
í Volvo árið 1959 og er nú staðalbúnaður í öllum bifreiðum sem
framleiddar eru í heiminum. Fyrsti Volvoinn kom á markað árið
1927 og fyrirtækið átti mjög mikilli velgengni að fagna í hálfa
öld. Um og upp úr aldamótum lenti Volvo hins vegar í miklum
rekstrarerfiðleikum eins og margir aðrir bílaframleiðendur. Volvo
er nú ekki lengur í höndum sænskra eigenda og eldri tegundir hafa
orð á sér fyrir að hafa verið endingarbetri og sterkari en þær nýrri.
Heimagerður gosdrykkur
Að setja kolsýru í vatn er einföld aðgerð, ef þú átt Soda Stream.
Soda Stream á sér sögu allt frá 1903 en fyrir 25 árum hélt tækið
innreið sína á íslensk heimili og sló rækilega í gegn. Skyndilega
minnkaði þó eftirspurnin eftir tækjunum, svona um það leyti sem
gosdrykkir urðu ódýrari en mjólkin. En Soda Stream hefur aldrei
horfið af markaði og á sína föstu aðdáendur. Margir hafa tekið
tækin fram aftur eða fjárfest í nýjum enda þó nokkuð hægt að spara
á heimilum þar sem mikið er drukkið af kolsýrðu vatni. Tækin sjálf
eru svo einstaklega endingargóð og í öll þau ár sem þau hafa verið
á markaði hafa Neytendasamtökin ekki fengið eitt einasta mál sem
snýr að lélegum gæðum þeirra. Tækin hafa þróast og gömlu tækin
nota aðra gerðir af flöskum og kolsýruhylkjum en þau nýju. Svo
framarlega sem tækin eru notuð mikið og hægt er að fá flöskur og
hylki er gosframleiðsla í heimahúsum ágætis búbót.
Eins og fram kemur á bls. 3 verða fylgihlutir í gömlu tækin áfram
fáanleg.
ÞH
Hlutir sem endast
og endast
1 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2009