Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2008, Qupperneq 5

Neytendablaðið - 01.06.2008, Qupperneq 5
10-11 11-11 Actavis Apótekarinn. Apótekið. Atlantsolía Bananar Bensínorkan Borgun Bónus Brimborg Búr Byko Ego. Eimskip elisabet.is. Europris Frumherji Glitnir Hagkaup Hekla Húsasmiðjan Iceland Express Icelandair IKEA Íslandspóstur Kaskó Kjarval. Krónan Landsbankinn Lyf og heilsa Lyfja Matfugl Mest MS N1 Nettó Nóatún Nói-Síríus Orkuveita Reykjavíkur Penninn Rúmfatalagerinn Samkaup-Strax Samkaup-Úrval Samskip Securitas Skeljungur Sláturfélag Suðurlands SPARISJÓÐIRNIR Tryggingamiðstöðin Vátryggingafélag Íslands Visa Ísland Vífilfell Vínbúð Vodafone Vörður tryggingar hf. Öryggismiðstöðin auðveldlega en í öðrum ekki. Það var mjög auðvelt að finna sams konar vínflöskur og seldar eru í fríhöfninni á lægra verði í Bandaríkjunum. Verðið á M&Ms og After Eight í kjörbúðinni í Bandaríkjunum þar sem foreldrar mínir versla var aðeins hærra en í fríhöfninni hér. Það var gaman að sjá hve sælgæti frá Anthon Berg var miklu dýrara í fríhöfninni í Kaupmannahöfn en á Íslandi; það var hins vegar aðeins ódýrara á mörg- um bandarískum póstverslunarvefsíðum. Fríhöfnin kom ekki eins vel út í raftækja- deildinni. Ég fann minniskubba á betra verði í Þýskalandi og rafhlöður eru miklu ódýrari í Bandaríkjunum. Erfitt er að standa í verðsamanburði þegar maður er staddur í fríhöfninni. Gott er að skoða verðskrá fríhafnarinnar á netinu áður en farið er til útlanda og bera verðið saman við búðir á Íslandi og í útlöndum. Léttari ferðatöskur Kosturinn við að versla í fríhöfninni frekar en í útlöndum er að ekki þarf að pakka vörunum niður í tösku á leiðinni heim og því telst þyngd þeirra ekki til farangurs- heimildar. Á sumum flugvöllum, t.d. í Frankfurt, er mjög strangt eftirlit með töskuþyngd og því er gott að geta keypt vörur á „útlensku verði“ eftir að komið er heim til Íslands. Bjórdósir og vínflöskur eru sérstaklega þungar og gott er að geta keypt þær eftir lendingu. Það getur verið góð hugmynd að kaupa í fríhöfninni gjafir fyrir fólk í útlöndum (íslenskt sælgæti eða áfengi). Það felst mikill sparnaður í því að kaupa íslenskt áfengi í fríhöfninni frekar en í ÁTVR og minni hætta er á því að töskur séu of þungar við innritun. Rökin fyrir því að kaupa íslenskt sælgæti í fríhöfninni á leiðinni til útlanda eru ekki eins sterk en það er að minnsta kosti ekkert tap á því að meðaltali. Annað gott ráð fyrir þá sem eru á leiðinni til útlanda og vilja versla þar er að panta vörur frá útlenskum vefverslunum. Láttu senda vörurnar til hótels eða vinafólks í útlöndum í stað þess að eyða dýrmætum ferðatíma í að hendast á milli verslana í leit að besta verðinu. Það er vinsælt og fínt að versla hjá Amazon en ekki gleyma öllum hinum (ég var t.d. nýlega mjög ánægður með kaup hjá nutsonline.com í Bandaríkjunum). Ian Watson 5 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2008

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.