Neytendablaðið - 01.06.2008, Qupperneq 6
Á heimasíðu Sjóvá forvarnahúss má
finna góðar leiðbeiningar um val og
notkun á hjólahjálmum og er gott að
hafa þær í huga.
• Hjálmurinn skal vera CE merktur, þar á
einnig framleiðsludagur að sjást.
• Líftími hjálma er um 5 ár; vegna tær-
ingar í plasti eru eldri hjálmar ekki taldir
fyllilega öruggir.
• Mælið ummál á höfði barnsins. Í hjálm-
inum eru merkingar sem sýna lágmarks-
og hámarksummál höfuðs þess sem
ætlar að nota hjálminn. Veljið hjálm
sem passar.
• Oftast nær fylgja svampar hjálmunum.
Því er gott að fá hjálm sem er við efri
mörkin og nota svamp til að hjálmurinn
sitji þétt við höfuðið.
• Hjálmurinn á að sitja beint ofan á höfði;
ekki of aftarlega eða of framarlega. Aft-
ara bandið á að koma aftan við eyrað
og fremra bandið framan við eyrað og
saman eiga þessi bönd að mynda V utan
um eyrað. Lesið vel leiðbeiningarnar
sem fylgja hjálminum.
• Hökubandið á að vera nokkuð vel
strengt, ekki lausara en að fingur kom-
ist á milli. Spennan á að vera til hliðar,
ekki á sjálfri hökunni.
• Límmiðar eða tússlitir geta skemmt
eiginleika hjálmsins.
• Hjálmurinn er ekki leikfang. Barnið á
að taka hann af sér þegar það er ekki
á reiðhjóli, línuskautum eða hlaupahjóli.
Hann gæti skaðað barnið ef það fer að
leika sér í leiktækjum þar sem hann get-
ur krækst í.
• Verði hjálmurinn fyrir höggi hefur hann
lokið hlutverki sínu og það ætti að
henda honum.
• Hjálminn þarf að stilla reglulega, þar
sem barnið vex. Einnig ef barnið notar
lambhúshettu undir hann (ekki nota
húfur).
• Sumir hjálmar hafa græna spennu. Hún
er sérstök öryggisspenna og er á hjálm-
um sem ætlaðir eru fyrir börn yngri en
6 ára. Hún á að losna ef barnið festir
höfuðið einhvers staðar á milli.
Hjólreiðahjálmar
við allra hæfi
Neytendasamtökin gerðu markaðskönnun á reiðhjólahjálmum í apríl. Úrvalið er
ágætt bæði á barna- og fullorðinshjálmum og verðið er á bilinu 2.000 kr. til 5.600
kr. á barnahjálmum og frá 3.400 kr. til 23.900 kr. á fullorðinshjálmum. Það ættu því
allir að geta fundið hjálm við sitt hæfi.
Íslenskir hjólreiðamenn eru upp til hópa duglegir
að nota hjálma, a.m.k. ef við berum okkur saman
við Dani sem hjóla mikið en vilja helst sleppa
þessum nauðsynlega öryggisbúnaði.