Neytendablaðið - 01.06.2008, Síða 14
Gæði barnabílstóla hafa aukist verulega,
sérstaklega fyrir yngstu farþegana, en
með hækkandi aldri minnkar öryggið.
Vörn gegn hliðarárekstrum er oft
ófullnægjandi. Enn eru varhugaverðir
stólar til sölu hérlendis. Olís býður upp á
einn þeirra.
Markaðskönnunin
Í markaðskönnun Neytendablaðsins í
apríl-maí sl. reyndust vera um 50 gerðir
barnabílstóla á markaði á Íslandi. Ódýrustu
stólarnir kostuðu um 8.000 kr. en þeir
dýrustu um 50 þús. kr. Einnig fengust sjö
gerðir af bílsessum en þær eru fyrir stærri
börn, þ.e. 6-12 ára eða 22-36 kg. Margar
verslanir með barnavörur selja bílstóla en
einnig tryggingafélög. Einfaldari og ódýrari
gerðir fást oft í byggingavöruverslunum og
á bensínstöðvum.
Markaðskönnunin er birt í heild á www.ns.is
og þar koma fram ítarlegar upplýsingar um
alla stólana.
Gæðakönnunin
74 gerðir barnabílstóla voru prófaðar í
gæðakönnunum International Consumer
Research and Testing (ICRT) árin 2007 og
2008. Í maí-apríl síðastliðnum reyndust 14
af þessum stólum vera á markaði hér og eru
helstu niðurstöður um þá birtar hér í töflu.
Margar gerðir af góðum og öruggum
stólum eru seldar hér. Það kann samt að
vekja spurningar að hér fást aðeins þrjár
gerðir stóla af 35 nýjum gerðum sem ICRT
hefur prófað á þessu ári. Hinar gerðirnar 11
á íslenska markaðnum prófaði ICRT fyrri
hluta árs 2007.
Könnunin var framkvæmd í samræmi
við staðalinn ECE R44.04 en ICRT gerir
meiri kröfur en felast í honum. Varðandi
stóla sem hægt er að nota hvort heldur
er með eða án Isofix-festinga miðast
heildargæðaeinkunnin við notkun með
Isofix.
Val á stól
Æskilegasta vörnin felst í því að kaupa
þrjá bílstóla handa barninu meðan það
stækkar og þyngist. Auðvelt er að hafa
uppi á góðum stólum fyrir yngstu börnin
(0-13 kg) Allir stólarnir í þessum flokki í
gæðakönnuninni eru bakvísandi (barnið
snýr bakinu í akstursstefnu). Æskilegt er
að nota bakvísandi stóla handa börnum
upp að 18 kg, eða til tveggja eða þriggja
ára aldurs, en erfiðara verður að finna
viðeigandi stóla af því tagi eftir því sem
barnið stækkar. Árekstrapróf sýna alltaf að
rétt festir bakvísandi stólar milda hnögg á
hnakka og höfuð.
Gæðakannanir ICRT hafa sýnt að almennt
eru barnabílstólar varhugaverðari ef þeir eru
gefnir upp fyrir breitt þyngdarflokkasvið.
Þar er um málamiðlun að ræða; stóllinn
mun passa einhverjum þyngdarflokki eða
aldri betur en öðrum. Að jafnaði er æskilegt
að bílarnir séu með Isofix-festingum. Þær
eru staðalbúnaður í nýjum bílum.
Sérstaklega þarf að vera á varðbergi
gagnvart öryggisvandamálum í stólum fyrir
börn í þyngdarflokknum 9-18 kg og ekki
hvað síst varðandi högg á hliðar bílsins.
Kaupið ekki barnabílstól í snarheitum án
þess að kynna ykkur úrvalið á markaðnum
og fáið endilega leiðsögn hjá söluaðila. Ef
hann er ekki vel að sér um barnabílstóla
skuluð þið hiklaust leita annað.
Það er grundvallaratriði að auðvelt og
fljótlegt sé að festa stólinn og losa og að
hann sitji rétt. Höfuð- og hnakkastuðningur
á að vera svo hár að höfuð fái raunverulega
vörn í árekstri.
Olís með varhugaverðan stól
Í fyrra fengu átta barnabílstólar falleinkunn
hjá ICRT með umsögnunum „undir
meðallagi“ eða „lélegur“. Söluaðilar í
Danmörku tóku sex þessara stóla af markaði
í kjölfarið en haldið var áfram að selja tvær
gerðir. Í markaðskönnun Neytendablaðsins,
sem gerð var í apríl-maí sl., kom í ljós að
annan þessara varhugaverðu stóla, Mothers
Choice Midi, er enn verið að selja hérlendis,
en hann fékkst á rúmar 9.000 kr. hjá
Olís. Stóllinn hefir líka verið seldur undir
heitinu IWH Travel Basic. Falleinkunn
sína hjá ICRT hlaut hann fyrir lélega vörn
í framanákeyrslu og erfiðleika fólks við að
nota bílbeltin auk þess sem mikil hætta er á
því að stólinn sé festur rangt í bílinn.
Hættur
Flestir barnabílstólar veita slakasta vörn
gagnvart hliðarákeyrslum en slíkar
ákeyrslur eru næstalgengustu árekstrarnir.
Á þessu sviði fær meirihluti stóla fyrir yngri
Barnabílstólar
Henta best smábörnum
Besti stóllinn f. 0-13 kg.
MAXI COSI Cabriofix með Easyfix
er besti stóllinn í könnunum ICRT
bæði árin 2007 og 2008. Þegar hann
kom á markaðinn 2007 útnefndu
sumir hann besta barnabílstól sem
komið hefði fram. Hann hlaut háar
einkunnir í flestu tilliti og hæstu
heildargæðaeinkunn sem gefin hefur
verið fyrir barnabílstól hjá ICRT, 4,6
(af 5,5 mögulegum). Samt sem áður
er hann einn af ódýrari stólunum á
markaðnum, fékkst á 18.500 kr. í Fífu.
Stóllinn fær aðeins hæstu einkunnina
ef Isofix-standur er notaður en hann
þarf að kaupa aukalega.
Topp stóll f. 0-13 kg.
RÖMER Baby Safe Plus er úrvals
barnabílstóll og hlaut næsthæstu
gæðaeinkunnina (4,5 af 5,5
möguleikum). Hann fékkst hjá
Baby Sam á tæplega 17 þús. kr.
en viðskiptavinir TM fá góðan
afslátt.
14 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2008