Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2008, Qupperneq 22

Neytendablaðið - 01.06.2008, Qupperneq 22
Fullyrðingar sem þessar eru algengar þegar snyrtivörur og megrunarvörur eru aug lýstar. Þá virðist aukaatriði hvort stað hæfingarnar eru réttar eða ekki en sam kvæmt lögum mega auglýsingar hvorki vera rangar eða villandi né veita ófull nægjandi upplýsingar. Peningarnir hverfa en ekki auka- kílóin Fyrir nokkrum árum tóku dönsku neyt- endasamtökin sig til og keyptu 42 vörur sem allar lofuðu „grennandi áhrifum“. Sérfræðingar samtakanna kröfðust þess að fá þau rannsóknargögn í hendur sem full- yrðingarnar byggðu á. Til að gera langa sögu stutta var niðurstaða sérfræðinganna sú að verið væri að gabba neytendur og að það eina sem hyrfi væru peningarnir. Í framhaldinu kærðu samtökin 38 vörur til matvælaeftirlitsins sem fjarlægði fjölda vara úr hillum verslana. Nokkrum mánuðum síðar höfðu margar varanna hins vegar ratað aftur í verslanir og því virðist þurfa stanslaust eftirlit með markaðinum. Maskari sem lengir augnhárin Ef einhver fer yfir strikið er það snyrti- vörubransinn. Ef marka má auglýsingu frá L´Oreal getur maskarinn Telescopic, sem hin íðilfagra Penelope Cruz notar, lengt augnhárin um 60%. Fram kemur að þennan undraverða árangur megi þakka sveigjanlegum bursta en sú skýring virð- ist heldur ótrúverðug. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að Penelope er með gerviaugnhár í auglýsingunni svo það er ekki að undra að hárin séu þétt og löng og augnaráðið seiðandi. Konu nokkurri í Bretlandi var nóg boðið og kærði hún auglýsinguna til Advertising Standards Authorities eða ASA, sem er opinber eftirlitsstofnun sem sér um að lög- um um auglýsingar sé framfylgt. Hér á landi fer Neytendastofa með þetta eftirlit. Breska eftirlitsstofnunin úrskurðaði að auglýsingin væri villandi og fór fram á að auglýsingarnar væru teknar úr umferð. Hrukkukrem sem virka ekki Árið 2005 úrskurðaði ASA að auglýsingar um hrukkukrem, með Claudiu Schiffer í aðalhlutverki, væru villandi. Í þessum auglýsingum var fullyrt að 76% segðust merkja sjáanlegan árangur í baráttu við hrukkurnar en að mati sérfræðinga ASA gat fyrirtækið ekki lagt fram nægjanleg gögn til að rökstyðja þessa fullyrðingu. Í fyrra úrskurðaði svo ASA að snyrtivöru- framleiðandanum Avon væri ekki heimilt að auglýsa krem á þann hátt að um væri að ræða andlitslyftingu í krukku. Taldi stofn- unin ekki sannað að kremið gerði meira gagn en venjulegt rakakrem. Of gott til að vera satt! Hér fyrir neðan má sjá dæmi úr auglýs- ingum sem birst hafa á Íslandi. Ef kremin virka eins og lofað er má spyrja hvort fegrunaraðgerðir heyri ekki brátt sögunni til. • Grenningarkrem sem virkar hratt og örugglega • Fyrir konur sem ætla að grenna sig á örskömmum tíma • Ein áhrifamesta aðferðin til að grennast og í baráttunni við appelsínuhúð • Þéttir og vinnur gegn öldrun • Háþróuð tækni sem örvar framleiðslu kollagens í húðinni • Losaðu þig við 3 cm og endurmótaðu línurnar á ákveðnum stöðum! • Vinnur á virkan hátt gegn appelsínuhúð • 80% kvenna voru sannfærð um að varan hefði megrunaráhrif Grennri á tíu dögum - lengri augnhár - silkimjúk húð 22 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2008

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.