Neytendablaðið - 01.12.2008, Qupperneq 9
Fyrir 50 árum gáfu Neytendasamtökin út bækling sem ber nafnið
Hyggindi sem í hag koma og er byggður á útvarpserindi sem Sveinn
Ásgeirsson, þáverandi formaður Neyt endasamtakanna, flutti. Tilefni
erind is ins voru víðtækar verðhækkanir sem dundu yfir þjóðina á
þessum tíma. Sveinn bendir á að hver og einn geti litið í eigin barm
og skoðað hvort ekki sé hægt að sýna meiri fyrirhyggju í útgjöldum
heimilanna. Hann segir eftirfarandi:
„Það mun óhætt að fullyrða, að það sé fremur fágætt hérlendis,
að fólk skrái niður útgjöld sín. Okkur virðist vera heldur ósýnt
um slíka nákvæmni að hafa bókhald yfir dagleg útgjöld, stór og
smá. Þeirri dyggð hefur lítt verið hampað, og ef til vill eru menn
hræddir um það, að slíkt myndi þykja smámunasemi og gert yrði
grín að því. En það ætti þó að vera hægt að hafa slíkt bókhald
með leynd – aðeins fyrir sjálfan sig. Enda er aðalatriðið, að menn
fái með því sem gleggst yfirlit yfir útgjöldin og hina einstöku
liði þeirra, en alls ekki það að geta lagt það fram fyrir einhvern
dómara. Hér er ekki ætlunin að hvetja menn til að skrifa niður
útgjöld sín seint og snemma allt árið um kring, heldur ætti
mönnum að leika nægileg forvitni á því að kynnast sínum eigin
útgjöldum og samsetningu þeirra, að þeir hefðu úthald til að skrá
þau niður eitthvert ákveðið tímabil, t.d. einn mánuð. Það gæti
orðið þeim mikils virði.
... Það er ekki nema eðlilegt að þeir sem aldrei gera sér far um
að kynnast nánar sínum eigin búskap, botni oft lítið í því, hve
fljótir peningarnir séu að fara og hvert þeir fara. En hafi menn
bókhald yfir útgjöld sín t.d. í mánaðartíma, þá þurfa þeir ekki
að spyrja sjálfa sig, hvert peningarnir hafi farið, heldur hvort
þeir hafi þangað farið, sem þeim var bezt varið. Og þá eru menn
farnir að spyrja skynsamlega.“
Orð Sveins eiga ekki síður við í dag, hálfri öld eftir að þau voru
rituð. Í bæklingnum voru auðir dálkar til útfyllingar svo félagsmenn
gætu skráð niður útgjöld sín. Var þetta í raun vísir að fyrsta heim
ilisbókhaldi Neytendasamtakanna.
Opna úr bæklingnum góða. Félagsmenn voru hvattir til að skrá útgjöld
sín í dálkana og halda þannig utan um heimilisreksturinn. Nokkuð
var um auglýsingar í fyrstu bæklingum Neytendasamtakanna og
ekki var óalgengt að orðum væri sérstaklega beint að hús mæðrum.
Hyggindi sem í hag koma
– heimilisbókhald í hálfa öld
Í októberhefti sænska Neytendablaðsins
Råd och Rön er viðtal við Mathildu Tham
sem gengur með þá hugmynd í mag anum
að opna fataleigu (klädbibliotek). Hún
vinn ur nú að rannsókn á þessu við fangs
efni. Það eru til fyrirtæki sem leigja út
við hafnarklæðnað, kvöldkjóla, smókinga
og auðvitað brúðarkjóla, auk þess sem víða
er hægt að leigja dýrar handtöskur. Lítið
fer þó fyrir leigu á venjulegum hvers dags
klæðum. Mathilda bendir á að ávinningur
fyrir umhverfið sé mikill enda hafi margir
sankað að sér fötum, skóm og fylgihlutum
og sumt sé einungis notað nokkrum sinnum
en liggi svo óhreyft inni í skáp. Mathilda
sér fyrir sér að 10% af þeim fötum sem við
göngum í séu leigð og barnaföt eru þar ekki
undanskilin.
Leikföngin nýtt
Lory Pops er amerísk móðir sem blöskraði
leikfangahrúgan heima hjá sér og ákvað
að stofna fyrirtækið Babyplays sem leigir
út leikföng fyrir börn á aldrinum 05 ára.
Í dag fá um 200 félagar „ný“ leikföng
send heim að dyrum einu sinni í mánuði.
Leikföngin eru framleidd án skaðlegra efna
og standast gæða og öryggiskröfur. Þá eru
þau hreinsuð með umhverfisvænum hrein
gerningarefnum eftir að leigutíma hvers
viðskiptavinar lýkur. Slíkar leigur þekkjast
einnig í Bretlandi og Ástralíu og á Nýja
Sjálandi.
Leikfangaleiga er kannski það sem koma skal
Hundar til leigu
Það getur verið bindandi að eiga hund en
nú er hægt að leigja hund í nokkra tíma
eða jafnvel í nokkra daga hjá fyrirtækinu
Flexpets.com. Þessi þjónusta er þó aðeins í
boði í nokkrum borgum í Bandaríkjunum
og í London og París. Hundarnir eru þrifa
legir að sögn fyrirtækisins og hafa allir
farið í gegnum hundaskóla þess.
Ýmislegt annað er til leigu úti í hinum stóra
heimi, svo sem vínekrur, fatnaður fyrir
þungaðar konur, smábarnaföt úr líf rænt
ræktaðri bómull, bátar og stafrænar mynda
vélar.
Þess er kannski ekki langt að bíða að hægt verði að
leigja hund hér á landi
Eigðu eða leigðu
9 NEYTENDABLA‹I‹ 4. TBL. 2008