Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2008, Page 21

Neytendablaðið - 01.12.2008, Page 21
magni því MSG er í raun salt, þ.e.a.s. natríumefnasamband. Auk þess dregur það fram kryddbragð matar og getur þannig vanið mann á ofkryddað bragð. Hefur efnið verið ítarlega rannsakað af hálfu opinberra aðila? Efnið hefur verið rækilega rannsakað af mat vælastofnunum í Evrópu, Banda ríkj­ un um og af Alþjóða heilbrigðisstofnuninni, WHO, til að nefna aðeins nokkra aðila. MSG er samkvæmt íslenskri og evrópskri matvælalöggjöf flokkað sem aukefni, en það eru efni sem bætt er í matvæli til að hafa áhrif á m.a. geymsluþol, lit, lykt, bragð eða aðra eiginleika þeirra. MSG er, ásamt nokkrum af nýju gervisætuefnunum, trúlega eitt mest rannsakaða aukefnið á markaði í dag. Hvernig meta opinberar eftirlitsstofnanir hvort efni er öruggt eða ekki? Aukefni þurfa að fara í gegnum strangt matsferli þar sem skoðuð eru hugsanleg skaðleg áhrif á neytendur, svo sem eituráhrif, krabbameinsvaldandi áhrif, áhrif á erfðaefni, áhrif á fóstur o.s.frv. MSG hefur, eins og áður sagði, farið í gegnum svona ítarlegt matsferli hjá fjölmörgum stofnunum. Felst rannsókn opinberra aðila í að fara yfir þær rannsóknir sem gerðar hafa verið eða láta gera nýjar rannsóknir? Ef tengsl eru talin vera á milli ákveðinna efna og sjúkdóma geta stofnanir eins og t.d. Matvælastofnun falið óháðum aðilum að fara yfir rannsóknir, sem gerðar hafa verið, með það fyrir augum að kanna hvort nauðsynlegt sé að láta gera nýjar rannsóknir. Árið 2005 birtist til að mynda álit SKLM (DFG­Senatskommission zur Beurteilung der gesundheitlichen Unbedenklichkeit von Lebensmittel. Ísl.: Öldungaráðsnefnd þýska rannsóknarráðsins um mat á skaðleysi matvæla) á hugsanlegum tengslum milli MSG og krónískra taugahrörnunarsjúkdóma eins og MS, Parkinson eða Alzheimer. Niðurstaða álitsins er sú að ekki eru nokkur tengsl á milli þessara sjúkdóma og venjulegrar neyslu MSG. Hins vegar ályktaði nefndin að frekari rannsóknir þyrftu að fara fram til að tilgreina hugsanlega áhættuhópa. Það væri til dæmis nauðsynlegt að skoða hvort blóðvökvi (plasma) í fólki með þarmasýkingu og lifrarsjúkdóma, svo sem lifrarbólgu, hækki meira eftir neyslu á MSG en hjá heilbrigðu fólki. Þegar efni er leyft er það þá vegna þess að ekki hefur tekist að sanna að það sé skaðlegt eða er búið að sanna að það er algerlega öruggt? Þetta er flókin spurning og við henni er auðvitað ekkert einfalt svar. Þó gildir almennt að þar sem ekki hefur verið sýnt fram á skaðsemi efna eru þau talin örugg. Þetta getur þó alltaf breyst með nýjum rannsóknum. Leyfi fyrir aukefnum eru veitt með þessum fyrirvara. Eru einhverjar ráðleggingar um hámarks- neyslu MSG? Það eru engar fastar ráðleggingar um hámarksneyslu MSG til, þó að almennt sé ráðlagt að neyta þess í hófi vegna saltinnihalds þess. Bragð matvæla minnkar yfirleitt við vinnslu, þ.e.a.s. hita­, þurrk­ eða frostmeðhöndlun. Bragðaukandi efni hafa þann eiginleika að geta dregið fram eða aukið bragðeinkenni matvæla og eru því mikið notuð, sérstaklega í tilbúin og frosin matvæli. MSG er mest notaða bragðaukandi efnið í matvælaiðnaði. Eins og áður sagði eykur MSG þannig kryddbragð tilbúinna matvæla og það getur leitt til þess að fólk venjist þessu ofkryddaða bragði og tapi tilfinningunni fyrir venjulega krydduðum matvælum. Þeir sem vilja forðast MSG og telja sig verða fyrir óþægindum af neyslu þess ættu því að forðast tilbúin matvæli og venja sig frekar á að elda ferskan mat og bragðbæta hann með fersku kryddi. Erfitt að greiða upp lán Í sumar fékk ég þá flugu í höfuðið að greiða upp lánið mitt hjá LÍN. Vextirnir eru raunar ekki háir en lánið er verðtryggt og á verðbólgutímum er um að gera að losa sig við verðtryggð lán ef maður mögulega getur. Í lok júlí hafði ég samband við LÍN og fékk þær upplýsingar að þetta væri einfalt; ég þyrfti bara að hafa samband þegar ég hygðist greiða upp lánið, fá uppgefna stöðuna og síðan gæti ég greitt í gegnum heimabankann. Ekkert mál! Þegar ég átti svo nógan pening til að greiða upp lánið ákvað ég að slá á þráðinn og fá uppgefna rétta tölu. Þá kom nú aldeilis babb í bátinn. Fulltrúinn sem ég talaði við sagði mér að ég yrði að senda formlegt „erindi“ til að fá vextina reiknaða út, auk þess sem þeir voru með skráð námslok á bandvitlausum tíma og greinilega mitt – en ekki þeirra – að leiðrétta þau mistök. Þessi sparnaðarhugmynd mín var því alls ekkert svo einföld eftir allt saman. Ég fékk engar frekari leiðbeiningar eða ráð og var t.a.m. ekki bent á að ég gæti mögulega greitt hluta og gert restina upp síðar. Eftir símtalið sendi ég „erindi“ á fulltrúann sem ég talaði upphaflega við og bað góðfúslega um að fá að borga mína skuld. Viku síðar hafði ég ekkert heyrt og sendi ég þá annað „erindi“ á LÍN. Enn hefur ekkert svar borist við því erindi og á meðan safnar blessað lánið verðbótum, vöxtum og öðrum óhroða. Vantar LÍN ekki peninga? Starfar LÍN fyrir mig eða ég fyrir LÍN? Nöldrarinn Leiðrétting Í grein um morgunkorn í síðasta blaði var ranglega sagt að hafra­ grjón væru úr heilhveiti. Hafragrjón eru unnin úr höfrum sem er sérstök korntegund. Hafra grjónið sem flestir nota er valsað en þá eru grjónin flött út milli stál valsa. 21 NEYTENDABLA‹I‹ 4. TBL. 2008

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.