Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.2008, Page 23

Neytendablaðið - 01.12.2008, Page 23
kaupenda í Bandaríkjunum er að greiðslu­ kortaútgefendur þar í landi virka sem eins konar smámáladómstóll. Ég hef einstaka sinnum keypt eitthvað í Bandaríkjunum og síðan einhverra hluta vegna verið ósáttur, en seljandinn neitað að endurgreiða mér eða ég ekki náð í hann. Þá má, inn an ákveðins tíma, hafa samband við bankann sem gefur út greiðslukortið og gera athugasemd við færsluna. Skilyrði fyrir svona athugasemdum eru mjög rúm í Banda ríkjunum og tilhneiging bankanna er að standa á bak við neytendur frekar en selj endur. Á Íslandi taka Visa og Mastercard hins veg ar ekki við athugasemdum vegna gall­ aðra vara heldur einungis til dæmis þegar korthafi kannast ekki við færslu eða hefur alls ekki fengið vöruna sem hann pantaði. Auðveld kortaviðskipti Greiðslukortaviðskipti eru mjög ódýr fyr ir bandaríska neytendur. Það er mikil sam ­ keppni og korthafar borga ekkert ár­, út skriftar­ eða færslugjald. Kortin eru (á yfir borðinu að minnsta kosti) ókeypis, svo framarlega sem fólk borgar skuldina sína á réttum tíma. Það virðist vera nægilegur hagnaður annars staðar í kortakerfinu til að fyrirtækin sleppa við gjöldin. Jafnvel kreditkort með talsverðar tryggingar (eins og kaskótryggingar bílaleigubíla) eru árgjaldslaus. Á Íslandi er hins vegar lágmarksárgjald um það bil 2.600 kr., útskriftargjald er 95 kr. á mánuði og það þarf að borga 20.000 kr. árgjald til að fá kort með kaskótryggingu bílaleigubíla. Bandarísk lög leggja afar ríkar skyldur á banka um að upplýsa viðskiptavini um kostnað og greiðslubyrði korta og annarra lána. Hópmálsóknir Af og til kemur bréf í pósti til foreldra minna þar sem tilkynnt er um hópmálsókn sem þau geta hugsanlega tekið þátt í. Síðasta dæmið var að hópur banka í Bandaríkjunum viðurkenndi að hafa um langt skeið ekki upplýst neytendur nægi­ lega vel um þóknunina sem bætist við greiðslukortafærslur erlendis (þóknunin er 1 – 3%, misjafnt milli banka). Bankarnir útkljáðu hópmálsókn með því að búa til tuga milljarða króna sjóð til að endurgreiða viðskiptavinum sínum vegna þessara ólöglegu þóknana. Ég ákvað að sækja um bætur sjálfur og þurfti að skila inn eyðublaði þar sem ég gerði grein fyrir greiðslukortafærslum mínum utan Bandaríkjanna frá 1996 til 2006. Svarið hefur enn ekki borist enda tekur það venjulega nokkra mánuði að fá greitt. Lögin um hópmálsókn hafa verið í gildi í núverandi formi í Bandaríkjunum síðan 1966, en hafa þó eldri rætur. Oft snúast hópmálsóknir um galla í viðskiptaháttum stórra fyrirtækja sem enginn einn aðili getur mótmælt sjálfur. Lögin leyfa lögfræðingum að hefja málsókn fyrir hönd hópsins. Lög fræðingurinn verður að reyna að hafa sam band í góðri trú við alla hópmeðlimi og gefa þeim tækifæri til að biðjast undan þátt­ töku í hópnum. Lögfræðingurinn fær síðan ákveðið hlutfall af sáttapeningunum, sem er hvatning hans til að þefa uppi hugsanleg málaferli. Einhver hætta er á misnotkun þessa kerfis, en á heildina litið hefur það verið mikið varnartól fyrir réttindi neyt­ enda. Hin Norðurlöndin hafa innleitt lög um hópmálsókn á síðustu árum og Neyt­ endasamtökin hafa kallað eftir slíkum lög um hérlendis. Greiðslufrestir Eitt dæmi að lokum. Stundum er keypt vara eða þjónusta á Íslandi og svo kemur gíróseðil frá seljandanum sem þarf að greiða í heimabankanum. Ef ekki er borgað fyrir eindagann reiknast dráttarvextir á upphæðina. Í fyrra átti ég viðskipti við tvö tengd fyrirtæki fyrir hönd húsfélags okkar. Ég fékk svo greiðsluseðla frá þeim báðum. Þeir voru (t.d.) prentaðir mánudaginn þann 1., póstlagðir fimmtudaginn þann 4., komnir til mín mánudaginn þann 8., og voru (t.d.) með eindaga upp á miðvikudaginn þann 10. Ég veit ekki hvort ég verð að borga fyrir eindagann ef ég fæ tveggja daga fyrirvara um hann, og ekki heldur hvort um ásetning eða kæruleysi var að ræða hér. Ég þekki hins vegar ekki slíka hegðun í heimalandi mínu og myndi gjarnan geta skilið samhengið á bak við hana hér. Reyndar eru til lög í Bandaríkjunum (Fair Credit Billing Act) sem banna slíkt, að minnsta kosti í sambandi við kreditkort. Ef kostnaður mun reiknast ofan á kreditkortaskuld þarf að tilkynna um greiðslufrestinn með að minnsta kosti 14 daga fyrirvara. Annars er neytandinn ekki ábyrgur fyrir viðbættum vöxtum eða kostnaði. Öflug neytendahreyfing Sumir hér á Íslandi virðast halda að allt færi til fjandans á íslenskum mörkuðum ef svona mikið vald væri fært í hendur neyt­ enda. Bandaríska efnahagskerfið virðist þó lifa ágætu lífi og neytendavörn virðist örva kerfið frekar en hamla því. Neytendahreyfingin í Bandaríkjunum er mjög öflug. Stærstu samtökin, Consumers Union, hafa sjö milljónir félagsmanna. Þau senda frá sér mjög fínt tímarit sem heitir Consumer Reports. Samtökin kaupa allar vörur í gæðakannanir sínar, þar á meðal bíla, og margir Bandaríkjamenn þekkja Consumer Reports best vegna bílakannana. Fleiri samtök og hagsmunahópar berjast fyrir réttindum neytenda á öllum mögulegum sviðum. Útgáfa fræðsluefnis blómstrar, t.d. um fjármál heimila. Við á Íslandi getum ekki búist við því að vera jafn öflug vegna smæðar okkar og eigum heldur ekkert að skammast okkar fyrir það sem við erum. Bandaríkin eru eftir sem áður dæmi um hvernig öflugt neytendastarf getur leitt til skilvirkni, réttlætis, aukinnar meðvitundar og skýrari reglna á mörkuðunum. Mikið er gefið út af fræðsluefni um fjármál heim- ilanna Þó að það megi að vísu gera athugasemdir við stríðsrekstur, dauðarefsingu og margt fleira í Bandaríkjunum má ekki gleyma því hversu fjölþætt og flókið landið er og hversu framsækið það er í sumum málum. Ég reyni alltaf að hvetja Íslendinga til að ferðast vestur um hafið, kynna sér Banda­ ríkin og upplifa landið á dýpri hátt en í gegnum einfaldaðar og staðlaðar fréttir og afþreyingarefni. Í neytendamálum eru Bandaríkin að mörgu leyti ekki ógn við litla manninn heldur hin besta fyrirmynd. Mynd: Zachary Schrag 23 NEYTENDABLA‹I‹ 4. TBL. 2008

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.