Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.08.2012, Page 12

Víkurfréttir - 02.08.2012, Page 12
FIMMTUDAGURINN 2. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR12 2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0000 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS D.IBSEN ehf. bÍlastofa davÍÐs ALLAR ALMENNAR BÍLAVIÐGERÐIR Grófin 7 e-mail: dibsen@mitt.is Sími: 421-1415 SUÐURNES Helguvík - Berghólabraut 27 Komdu með öll raftæki, brotajárn og málma til okkar í Helguvík! Við borgum þér fyrir flesta málma. - Skilum betur til baka Fáðu pening fyrir gamla bílinn þinn. Farðu með hann til Bílastofu Davíðs, Grófinni 7 eða hringdu í 421-1415 og við sækjum hann. Hringrás smáauglýsing 1a.indd 1 5/30/12 2:36:11 PM TIL SÖLU Til sölu 120 fm fokhelt raðhús í Njarðvíkum. Söluaðili lánar 20 prósent af söluverði Upplýsingar í síma 899 3761. HE- verk ehf. Öll almenn trésmíðavinna Nýsmíði – viðhaldsvinna Höfum mót og krana til uppsteypu Hannes sími 861 5599 Ellert sími 696 9638 TIL LEIGU Einbýlishús í Sandgerði Einbýlishús til leigu, 126 fm. Leiguverð 110.000 auk rafmagns og hita. Óskað eftir 3 mánaða bankaábyrgðar. Upplýsingar í síma 896-6866. Verðum með lokað dagana 6. til 10. ágúst. Helgi Biering Smáratúni 36, 230 Reykjanesbær Sími 660-4424 póstfang: hjolabud@gmail.com Hjóla- og sláttuvélaviðgerðir Vegna sérstakra aðstæðna fæst Skyndibitinn á góðu verði. Tilboð Se n n i l e g a kannast ein- hverjir við það í fe r ð a l ö g u m að lenda í smá v a n d r æ ð u m með meltinguna eftir misjafnlega skynsamlegt val á mat á ferð um landið. Framundan er stærsta ferðahelgi ársins og bráðsniðugt að pakka einhverju hollu með í för eins og trefjaríku og næring- arríku hrökkbrauði sem gott er að grípa í í staðinn fyrir hefð- bundið samlokubrauð. Hug- myndir að góðu áleggi væri t.d. hummus, soðin egg, hrein lifr- arkæfa, reyktur lax, grænmeti, lífrænt hnetusmjör, möndlusm- jör, avokadó, kotasæla eða ostur. Svo er þetta gott líka eitt og sér sem snarl. Um að gera að hafa smá hollustu með í fríið í bland við allt hitt. Heilsu hrökk- brauð: 1 dl haframjöl 1 dl hörfræ 1 dl sesamfræ 1 dl graskersfræ 1 dl sólblómafræ 3½ dl spelt/heil- hveiti 1 dl sólblómaolía 1 tsk vínsteinslyftiduft 2 tsk salt (má minnka) 2 dl vatn -blandið öllum þurrefnum sam- an, síðan olíu og vatni -skiptið deiginu í tvo hluta, fletjið út á milli tveggja bökunarpapp- írsarka -hvor hluti passar á eina bökunar- plötu, þegar deigið er komið á plötuna farið á yfir deigið með pizzahjóli eða hníf og skerið i hæfilegar kexkökur -bakið í 15-20 mín við 200°C Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is Heilsu hrökkbrauð með í ferðalagið ATVINNA ÓSKAST 24 ára hraustur og duglegur strákur villl komast a sjó. Er fljótur að læra. Er búinn að skrá mig í Slysavarnaskóla sjómanna. S: 894 0509 Kæru viðskiptavinir! Það verður lokað frá 4. til 20. ágúst vegna sumarleyfa. Sjáumst hress eftir sumarfrí Ásdís Rósa Gunn- arsdóttir er stödd í Bandaríkjunum um verslunar- mannahelgi þar sem hún stundar hnefaleika. Hún minnist versl- unarmannahelga með sérstakri hlýju og finnst einhvern veginn alltaf vera gleði og gott veður um þessa miklu ferðamannahelgi. Hvað á að gera um verslunarmanna- helgina og hvert á að fara? Þessari verslunarmannahelgi eyði ég í Las Vegas með góðu fólki við æfingar og keppni í hnefaleikum. Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Ég man alltaf sérstaklega eftir ferð- unum sem farnar voru með fjöl- skyldunni þegar ég var yngri. Hvort sem það var útilega, berjatínsla eða veiðiferð. Það var einhvern veginn alltaf gott veður og nóg af gleði. Hvað finnst þér einkenna góða versl- unarmanahelgi og finnst þér eitthvað vera ómissandi um þessa helgi? Útilega, ullarpeysa, grillmatur, varðeldur og gott fólk. Í ár læt ég mér nægja góða fólkið *** Laufey Kristjáns- dóttir rekur umboðsskrifstofu fyrir Happdrætti Háskólans, SÍBS, Heimsferðir og Úrval Útsýn og bætti nýlega við upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn á Hafnargötu. „Við þurfum að stækka kökuna hérna og fá ferða- menn til að staldra lengur við hér. Við höfum svo margt áhugavert fram að færa en þurfum að standa saman til þess. Ekki að horfa á sam- keppnina heldur hvernig við getum bætt þjónustuna við ferðamenn og boðið upp á fjölbreyttari afþrey- ingu,“ sagði Laufey en hún ætlar að hafa það náðugt um helgina. Hvað á svo að gera um helgina? Við hjónin ætlum að drífa okkur vestur um verlunarmannahelgina. Vera þar í góðu yfirlæti hjá ætt- ingjum. Förum svo til Aðalvíkur á þriðjudeginum og verðum þar í viku. Við ætlum að leggja af stað á laugardagsmorgninum og sleppa þannig við mestu umferðina. Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Fórum lengi vel með strákana okkar í Galtalæk, en að öðru leyti höfum við haft það rólegt og notið kyrrðarinnar í góðu Keflavík um þessa helgi. *** Ragnheiður Theodórsdóttir fyrirsæta ætlar að vera í Eyjum um helgina en þaðan á hún yndislegar minningar þegar hún steig á svið með Hreimi og félögum árið 2009. Ragnheiður er nýflutt heim frá Danmörku þar sem hún var í námi í Óðinsvéum og hyggur hún á Há- skóla Reykjavíkur(HR) í haust, svo er planið að byrja aftur í körfunni en þar hefur hún verið í góðu fríi. Hvað á að gera um verslunarmanna- helgina og hvert á að fara? Ég ætla að skella mér á Þjóðhátíð í Eyjum, ég er virkilega spennt fyrir því! Er einhver verslunarmannahelgi sem er eftirminnilegri en aðrar hjá þér? Það eru tvær verslunarmannahelg- ar sem standa upp úr; árið 2002 og 2009. Verslunarmannahelgin 2002 var mjög skemmtileg en þá fórum við körfuboltastelpurnar í Keflavík á Unglingalandsmót UMFÍ í Stykk- ishólmi, þar sem við unnum gull- verðlaun, að sjálfsögðu! Einhver plataði mig og Hrönn vinkonu til að keppa líka í spretthlaupi, þar sem ég flaug fram fyrir mig beint á andlitið fyrir framan fjölda manns, flottust! Það verður gaman að skapa nýjar minningar með þessum frábæra hópi í Eyjum þetta árið. En verslunarmannahelgin 2009 er sú eftirminnilegasta. Þá fór ég í fyrsta skiptið á Þjóðhátíð sem er upplifun út af fyrir sig og ég end- aði meðal annars uppi á stóra svið- inu með vinkonu minni að syngja „Lífið er yndislegt“ með Hreimi og félögum. Hvað finnst þér einkenna góða versl- unarmannahelgi? Það sem mestu skiptir er að vera í góðra vina hópi og vera tilbúin að lenda í ævintýrum. Það er alltaf skemmtilegra að hafa gott veður en mér finnst rigningin góð. Þetta snýst allt um hugarfar! Mér finnst góð íslensk tónlist ómiss- andi þessa helgi og nauðsynlegt að komast í útilegu eða ferðalag, ég er ekki mikill innipúki. Get ekki beint sagt að mér finnist ómissandi að fara á Þjóðhátíð þar sem ég hef bara farið einu sinni áður, en mikið er ég spennt. Lífið er yndislegt! Á FERÐ OG FLUGI UM HELGINA

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.