Víkurfréttir - 02.08.2012, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGURINN 2. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR10
Þórunn sagði í samtali við Vík-
urfréttir að Bragi B. Steingrímsson
hafi leitað til hennar og óskað eftir
því að hún málaði mynd af atburði
sem hafi birst honum í draumi.
Draumurinn hafi verið á þann
veg að hann hafi verið á ferðalagi
á Ströndum þegar honum birtist
í draumnum maður og kona við
skúta eða helli þar sem var dáið
barn. Tveimur árum eftir að Braga
birtist þessi sýn í draumi hittir hann
á Valgeir Benediktsson, sem rekur
handverks- og minjahúsið Kört í
Norðurfirði. Bragi ræðir drauminn
við Valgeir og kemur þá í ljós að
draumurinn á sér stoð í raunveru-
leikanum. Þarna eiga í hlut Fjalla-
Eyvindur og Halla. Halla hafði alið
Eyvindi son sem lést en lík hans
fannst þegar bústaður þeirra í
Drangavík var jafnaður við jörðu
eftir að þau hjú höfðu verið tekin
höndum. Við réttarhöld yfir þeim
Fjalla-Eyvindi og Höllu kom í ljós
að drengurinn hafði fengið nafn-
ið Bjarni en aðeins lifað tvo sólar-
hringa.
Úr varð að myndlistarkonan Þór-
unn Guðmundsdóttir málaði
mynd af þeim Fjalla-Eyvindi og
Höllu við hellisskútann þar sem sjá
má sveinbarnið reifað fyrir innan.
Mynd Þórunnar hefur verið sett
á skilti sem fest er á stóran stein
framan við Handverks- og minja-
húsið Kört í Norðurfirði. Minn-
inngarsteinninn var afhjúpaður nú
í júlímánuði. Þórunn sagði að það
hafi verið ánægjulegt að fá að taka
þátt í þessu verkefni og að koma
þessum atburði í mynd.
Á skiltinu með myndinni er ítarlega
sagt frá atburðinum á íslensku en
einnig eru styttri útgáfur af frá-
sögninni á ensku og þýsku.
›› FRÉTTIR ‹‹
Hraðakstur á
brautinni
Tveir karlmenn um þrítugt voru teknir fyrir of hraðan
akstur á Reykjanesbraut á tíunda
tímanum á þriðjudag. Annar
þeirra ók á 118 kílómetra hraða
á klukkustund, hinn á 132 kíló-
metra hraða, en þarna er 90 km
hámarkshraði á klukkustund.
Sá sem hraðar ók, má búast við því
að fá 90.000 króna sekt, auk þriggja
refsipunkta í ökuferilsskrá. Sá sem
ók á 118 km hraða þarf að greiða
50.000 krónur í sekt og fær einn
refsipunkt.
Of Monsters And
Men tilnefnd til
MTV verðlauna
Hljómsveitin vinsæla, Of Mon-sters And Men heldur áfram
sigurgöngu sinni um heiminn en
nú hefur sveitin verið tilnefnd
til verðlauna á bandarísku MTV
tónlistarstöðinni. MTV mun
halda sína árlegu verðlaunahátíð
nú í haust og meðal þeirra sem
tilnefnd eru til verðlauna á há-
tíðinni er einmitt íslenska hljóm-
sveitin.
Tilnefningin er fyrir bestu listrænu
stjórnun í myndbandinu við lagið
Little Talks en það lag hefur notið
mikilla vinsælda eins og flestum er
kunnugt. Aðrir sem eru tilnefndir í
sama flokki eru m.a. Lana Del Rey,
rapparinn Drake og Katy Perry.
Hundar í óskilum
Töluvert er um að hundar séu í lausagangi í Reykjanesbæ
og þarf lögreglan oftar en ekki að
hýsa þessa hunda sem sakna eig-
enda sinna. Þegar Víkurfréttir leit-
uðu til lögreglunnar fengust þau
svör að það væri þó ekki meira um
það að hundar gengu lausir núna
en venjulega. Lögreglan nýtir sér
samskiptavefinn Facebook vel og
þar eru settar inn myndir af hund-
um sem hafa fundist á vappi um
bæinn og fólk er duglegt að deila
þessum myndum. Samkvæmt lög-
reglunni er þetta að virka vel og
oftar en ekki eru eigendur búnir
að vitja hundanna innan skamms
og því þarf ekki að senda hundana
á K9 á Iðavöllum þar sem borga
þarf væna summu til þess að leysa
hundana út.
Hundaeigendur eru þó vinsamleg-
ast beðnir um að tryggja að hund-
arnir sínir gangi ekki lausir.
Myndlistarkonan Þórunn Guðmundsdóttir:
Málaði drauMsýn seM reyndist
eiga stoð í raunveruleikanuM
Myndlistarkonan Þórunn Guðmundsdóttir fékk nýverið í hend-urnar nokkuð sérstakt verkefni. Henni var falið að mála mynd
eftir draumi. Það kom síðar í ljós að draumsýnin átti sér stað í raun-
veruleikanum og draumurinn var í raun atburður sem átti sér stað í
Drangavík á Ströndum.
Myndlistarkonan Þóra Jónsdóttir mun halda sýningu í húsnæði Kaffitárs í Innri-Njarðvík í ágústmánuði.
Þar mun Þóra sýna myndir sem hún málaði í vetur en að
hennar sögn eru verkin flest abstrakt en einnig er hún að
vinna með blóm í verkum sínum. Verkin eru unnin í olíu
en hún leitaði til þriggja mismunandi kennara við vinnu
verkanna.
Þóra byrjaði fyrst að mála í Amager malerier – tegninger skól-
anum í Danmörku 1985 en eftir að hún flutti heim árið 1989
hefur hún sótt fjölda námskeiða. Hún hefur haldið fjölda sýn-
inga hér um slóðir í gegnum tíðina.
Þóra Jónsdóttir
sýnir í Kaffitári
Bragi B. Steingrímsson ásamt Þórunni
Guðmundsdóttur við listaverkið.