Víkurfréttir - 02.08.2012, Blaðsíða 9
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 2. ÁGÚST 2012 9
STEFNAN SETT Á
Ávallt þarf að passa líkamsstöðuna
og eru keppendur dæmdir eftir því
hvernig þeir bera sig.
Oft er farið erlendis að keppa en
systkinin fara að jafnaði tvisvar
til þrisvar erlendis á ári til þess að
keppa. Bæði eru þau sammála um
að dans sé sífellt vaxandi og alltaf
séu fleiri iðkendur að leggja stund á
íþróttina hérlendis.
Samband para verður oft náið og
sérstakt enda þurfa dansfélagar að
verja miklum tíma saman og nánd-
in er mikil. Kristófer segir að mikil
vinátta myndist og sambandið sé
óneitanlega sérstakt hjá dansfélög-
um.
Heimsækja áhugaverða staði
víða um heim
Aníta er á leið til Peking í Kína
nú í haust eins og áður sagði og er
hún full eftirvæntingar. „Ég hlakka
rosalega mikið til og er á fullu þessa
dagana að safna fyrir ferðinni,“
en Aníta mun dvelja í viku í Kína
á heimsmeistaramóti ungmenna
í latín-dönsum en þaðan fer hún
beint frá Salzburg í Austurríki þar
sem hún keppir á heimsmeistara-
mótinu í standard-dönsum.
Standard-dansar eru t.d. waltz,
tangó og foxtrot og þá eru pörin í
kjólfötum og síðum kjólum. Þar eru
pörin í dansstöðu allan tímann og
Mi ð stö ð s í m en ntu n ar á Suðurnesjum hefur
undanfarin 3 ár boðið upp á
námsleiðina Menntastoðir
sem er undirbúningsnám fyr-
ir Háskólabrú Keilis og frum-
greinadeildir H.R. og Bifrastar.
Yfir 200 manns hafa þegar lok-
ið þessu námi og flestir þeirra
hafa haldið áfram í annað nám.
Nemendur koma af öllu land-
inu og einn af þeim sem hafa
sótt sér menntun í Bítlabænum
er söngvarinn Bjarni Arason.
Blaðamaður hitti Bjarna og
spurði hann um ástæðu þess
að hann kom á Suðurnesin að
mennta sig.
Mig hafði lengi langað að fara
aftur í skóla og klára stúdents-
prófið en ég mátti aldrei vera að
því sökum anna í vinnunni. Ég
ætlaði reyndar að segja upp fyrir
nokkrum árum og vinda mér í
þetta verkefni en vinnuveitandi
minn lagði hart að mér að fresta
því sem ég gerði þá. En svo kom
að því að þessi sami vinnuveit-
andi rétti mér rauða spjaldið árið
2008 og þá fannst mér gráupp-
lagt að setjast á skólabekk hjá
MSS á Suðurnesjum. Eftir mikla
hvatningu frá Silju eiginkonu
minni þá fór ég að líta í kringum
mig. Ég hitti vinkonu mína Guð-
rúnu Gunnarsdóttur söngkonu á
förnum vegi og ég tjáði henni frá
þessum áhuga mínum á að feta
þessa braut og henni leist svo vel
á þessar fyrirætlanir mínar að
hún hringdi strax í góða vinkonu
sína Soffíu Waag Árnadóttur,
frábæra manneskju sem er for-
stöðumaður í Háskólabrú Keil-
is, sem ég svo fór að hitta næsta
dag. Ég var á þessum tímapunkti
að fyllast efasemd um að ég væri
nú ekki bógur í þetta, fór að
segja mér að það væri það langt
síðan ég var í skóla að ég ætti
Bjarni Ara menntar
sig í Bítlabænum
ekki séns að ljúka þessu krefjandi
námi en ég kveið mest fyrir stærð-
fræðinni. Soffía var svo jákvæð og
skemmtileg og í ofanálag hafði hún
svo mikla trú á mér að ég fór að
hafa smá trú að ég gæti kannski náð
þessu. Hún benti mér á að það væri
skynsamlegt að fara fyrst í undir-
búningsnám hjá MSS sem hét þá
Háskólastoðir eða Menntastoðir
eins og það heitir núna. Ég ákvað
eftir góða leiðsögn Soffíu að skrá
mig í undirbúningsnámið og hóf
staðnám í ágúst 2009.
En Bjarni, hvernig var að byrja
aftur í námi eftir svona langt hlé?
Mér leist ekkert á þetta í fyrstu það
verð ég að segja, en það átti fljótt
eftir að breytast. Mér varð ljóst í
upphafi að ég þyrfti að leggja hart að
mér og þá sérstaklega hvað stærð-
fræðina varðaði. Þarna voru frá-
bærir kennarar sem höfðu greini-
lega mikla ástríðu fyrir því sem
þeir voru að gera og við fundum
að þeir höfðu velgengni okkar að
leiðarljósi. Frábært að fylgjast með
þessu fólki að störfum, maður gat
ekki annað en hrifist með. Stærð-
fræðikennarinn Hanna breytti til
að mynda algjörlega viðhorfi mínu
gagnvart þessu fagi en fyrir utan að
vera frábær kennari tönglaðist hún
á því sínkt og heilagt að stærðfræði
væri skemmtilegust í heimi hér og
ég fór bara að trúa þessu. Ekki má
gleyma frábærum samnemendum,
sem hjálpuðu mikið.
Hvernig gekk þér svo í náminu?
Ótrúlega vel held ég að sé óhætt
að segja. Ég var mest hissa sjálfur á
þessum árangri, ég dúxaði ekki en
þetta var mikill sigur fyrir mig. Ég
útskrifaðist þarna í lok árs 2009
og eftir veru mína hjá MSS öðlaðist
ég sjálfstraust til að nema meira. Ég
skráði mig í áframhaldandi nám hjá
Keili á Suðurnesjum, því markmið-
ið var að ljúka stúdentsprófi. Ég hóf
nám í janúar 2010 hjá Keili og við
tók enn meira krefjandi verkefni.
Hjá Keili eru frábærir kennarar og
hreyfast mun meira um gólfið en í
öðrum dönsum. Suður-amerískir
(latin) dansar sem eru t.d. jive, cha-
cha, samba og fleira. Vínarvals er
í sérstöku uppáhaldi hjá Kristófer
en það þarf mikið þol og styrk til
þess að dansa þann dans vel. Aníta
segir foxtrot vera í sérstöku upp-
áhaldi af standard-dönsum en svo
er það rúmba sem heilli hana mest
í Suður-amerískum dönsum en það
er rómantískur og fallegur dans
þar sem þarf að hafa fulla stjórn á
hverjum einasta vöðva líkamans.
Markmið þessara ungu dansara
eru háleit og ætlar Aníta sér ekk-
ert annað en sigur á heimsmeist-
aramóti í framtíðinni og stefnir að
því að verða topp dansari eins og
hún orðar það. Bæði ætla þau sér að
verða atvinnudansarar en báðir for-
eldrar þeirra eru atvinnudansarar
eins og áður sagði og því verður það
að teljast ansi raunhæft.
Hvernig er það, finnst vinum ykk-
ar eitthvað skrýtið að þið séuð að
æfa dans?
„Þeim fannst það fyrst skrýtið en
það vandist fljótt,“ segja þau bæði
í kór. Þau segja þetta líka stundum
erfitt vegna þess hve mikill tími fer
í æfingar. Þau æfa á hverjum degi
í a.m.k. tvo klukkutíma og svo eru
það allar aukaæfingarnar. „Við vor-
um að reikna þetta um daginn og
þetta eru um 20 tímar sem ég æfi á
viku,“ segir Aníta og segir það vera
lítið mál.
námið hentaði mér fullkomlega.
Þetta var afar krefjandi og mjög
erfitt á köflum en með hjálp góðs
fólks í kringum mig, Silju konunnar
minnar og dætra var þetta mögu-
legt. Svo var ég bara mjög duglegur,
sat nánast öllum stundum og lærði.
Ég útskrifaðist frá Keili með ígildi
stúdentsprófs í mars 2011. Það var
mikil ánægju- og sigurstund að
taka við prófskírteininu úr hendi
rektors á þessum degi.
Hefur þetta breytt lífi þínu á ein-
hvern hátt?
Þetta ferðalag hefur gert það að
verkum að ég hef nú lykil að nánast
hvaða háskóla sem er og svo gefur
þetta bara lífinu svo allt annað gildi.
Viðhorf mitt er gjörbreytt og það er
auðvitað hverjum manni hollt að
ögra sér aðeins og fara út úr þæg-
indahringnum og prófa eitthvað
alveg nýtt. Ég er ánægður með
að geta nú aðstoðað stelpurnar
mínar við sinn lærdóm en það
hefði ég ekki getað hér áður og
sérstaklega í stærðfræðinni. Að
fá að skyggnast inn í bókmennta-
arf þjóðarinnar með frábærum
leiðbeinendum hefur verið mér
hollt og það hefur gert það að
verkum að bækur og bókabúð-
ir eru gersemar í mínum huga
og hvatt mig til að lesa meira og
fræðast enn frekar.
Svona að lokum, nú er einhver
þarna úti að lesa þetta og það
kviknar á einhverjum neista.
Hvað viltu segja við þá einstak-
linga?
Ekki spurning í mínum huga,
bara að skrá sig strax án þess að
hugsa og ekki að hugsa of mikið
fram í tímann, heldur að taka
einungis einn dag í einu og njóta
ferðarinnar því þetta eru forrétt-
indi að fá tækifæri til að nema,
það eru ekki allir í þeim spor-
um í heiminum. Viðkomandi á
að hafa trú á sér og hafa hugfast
að við mannfólkið getum miklu
meira en við oft höldum. Þessi
andlega næring sem námið gefur
manni, eykur lífshamingjuna til
muna, gefur lífinu lit og aukinn
innblástur til enn betri verka.
Við þökkum Bjarna fyrir spjallið
og óskum honum velfarnaðar í
framtíðinni. Þeir sem hafa áhuga
á að kynna sér Menntastoðir er
bent á að vera í sambandi við Sæ-
rúnu Rósu Ástþórsdóttur verk-
efnastjóra hjá MSS í síma 421-
7500 eða skrifa henni á netfangið
saerunrosa@mss.is
Anna Lóa Ólafsdóttir
Bjarni Arason ásamt Særúnu Rósu
Ástþórsdóttur, verkefnastjóra hjá MSS.
Líkamsstaðan er
mikilvæg í dans-
íþróttinni.