Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.08.2012, Qupperneq 9

Víkurfréttir - 02.08.2012, Qupperneq 9
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 2. ÁGÚST 2012 9 STEFNAN SETT Á Ávallt þarf að passa líkamsstöðuna og eru keppendur dæmdir eftir því hvernig þeir bera sig. Oft er farið erlendis að keppa en systkinin fara að jafnaði tvisvar til þrisvar erlendis á ári til þess að keppa. Bæði eru þau sammála um að dans sé sífellt vaxandi og alltaf séu fleiri iðkendur að leggja stund á íþróttina hérlendis. Samband para verður oft náið og sérstakt enda þurfa dansfélagar að verja miklum tíma saman og nánd- in er mikil. Kristófer segir að mikil vinátta myndist og sambandið sé óneitanlega sérstakt hjá dansfélög- um. Heimsækja áhugaverða staði víða um heim Aníta er á leið til Peking í Kína nú í haust eins og áður sagði og er hún full eftirvæntingar. „Ég hlakka rosalega mikið til og er á fullu þessa dagana að safna fyrir ferðinni,“ en Aníta mun dvelja í viku í Kína á heimsmeistaramóti ungmenna í latín-dönsum en þaðan fer hún beint frá Salzburg í Austurríki þar sem hún keppir á heimsmeistara- mótinu í standard-dönsum. Standard-dansar eru t.d. waltz, tangó og foxtrot og þá eru pörin í kjólfötum og síðum kjólum. Þar eru pörin í dansstöðu allan tímann og Mi ð stö ð s í m en ntu n ar á Suðurnesjum hefur undanfarin 3 ár boðið upp á námsleiðina Menntastoðir sem er undirbúningsnám fyr- ir Háskólabrú Keilis og frum- greinadeildir H.R. og Bifrastar. Yfir 200 manns hafa þegar lok- ið þessu námi og flestir þeirra hafa haldið áfram í annað nám. Nemendur koma af öllu land- inu og einn af þeim sem hafa sótt sér menntun í Bítlabænum er söngvarinn Bjarni Arason. Blaðamaður hitti Bjarna og spurði hann um ástæðu þess að hann kom á Suðurnesin að mennta sig. Mig hafði lengi langað að fara aftur í skóla og klára stúdents- prófið en ég mátti aldrei vera að því sökum anna í vinnunni. Ég ætlaði reyndar að segja upp fyrir nokkrum árum og vinda mér í þetta verkefni en vinnuveitandi minn lagði hart að mér að fresta því sem ég gerði þá. En svo kom að því að þessi sami vinnuveit- andi rétti mér rauða spjaldið árið 2008 og þá fannst mér gráupp- lagt að setjast á skólabekk hjá MSS á Suðurnesjum. Eftir mikla hvatningu frá Silju eiginkonu minni þá fór ég að líta í kringum mig. Ég hitti vinkonu mína Guð- rúnu Gunnarsdóttur söngkonu á förnum vegi og ég tjáði henni frá þessum áhuga mínum á að feta þessa braut og henni leist svo vel á þessar fyrirætlanir mínar að hún hringdi strax í góða vinkonu sína Soffíu Waag Árnadóttur, frábæra manneskju sem er for- stöðumaður í Háskólabrú Keil- is, sem ég svo fór að hitta næsta dag. Ég var á þessum tímapunkti að fyllast efasemd um að ég væri nú ekki bógur í þetta, fór að segja mér að það væri það langt síðan ég var í skóla að ég ætti Bjarni Ara menntar sig í Bítlabænum ekki séns að ljúka þessu krefjandi námi en ég kveið mest fyrir stærð- fræðinni. Soffía var svo jákvæð og skemmtileg og í ofanálag hafði hún svo mikla trú á mér að ég fór að hafa smá trú að ég gæti kannski náð þessu. Hún benti mér á að það væri skynsamlegt að fara fyrst í undir- búningsnám hjá MSS sem hét þá Háskólastoðir eða Menntastoðir eins og það heitir núna. Ég ákvað eftir góða leiðsögn Soffíu að skrá mig í undirbúningsnámið og hóf staðnám í ágúst 2009. En Bjarni, hvernig var að byrja aftur í námi eftir svona langt hlé? Mér leist ekkert á þetta í fyrstu það verð ég að segja, en það átti fljótt eftir að breytast. Mér varð ljóst í upphafi að ég þyrfti að leggja hart að mér og þá sérstaklega hvað stærð- fræðina varðaði. Þarna voru frá- bærir kennarar sem höfðu greini- lega mikla ástríðu fyrir því sem þeir voru að gera og við fundum að þeir höfðu velgengni okkar að leiðarljósi. Frábært að fylgjast með þessu fólki að störfum, maður gat ekki annað en hrifist með. Stærð- fræðikennarinn Hanna breytti til að mynda algjörlega viðhorfi mínu gagnvart þessu fagi en fyrir utan að vera frábær kennari tönglaðist hún á því sínkt og heilagt að stærðfræði væri skemmtilegust í heimi hér og ég fór bara að trúa þessu. Ekki má gleyma frábærum samnemendum, sem hjálpuðu mikið. Hvernig gekk þér svo í náminu? Ótrúlega vel held ég að sé óhætt að segja. Ég var mest hissa sjálfur á þessum árangri, ég dúxaði ekki en þetta var mikill sigur fyrir mig. Ég útskrifaðist þarna í lok árs 2009 og eftir veru mína hjá MSS öðlaðist ég sjálfstraust til að nema meira. Ég skráði mig í áframhaldandi nám hjá Keili á Suðurnesjum, því markmið- ið var að ljúka stúdentsprófi. Ég hóf nám í janúar 2010 hjá Keili og við tók enn meira krefjandi verkefni. Hjá Keili eru frábærir kennarar og hreyfast mun meira um gólfið en í öðrum dönsum. Suður-amerískir (latin) dansar sem eru t.d. jive, cha- cha, samba og fleira. Vínarvals er í sérstöku uppáhaldi hjá Kristófer en það þarf mikið þol og styrk til þess að dansa þann dans vel. Aníta segir foxtrot vera í sérstöku upp- áhaldi af standard-dönsum en svo er það rúmba sem heilli hana mest í Suður-amerískum dönsum en það er rómantískur og fallegur dans þar sem þarf að hafa fulla stjórn á hverjum einasta vöðva líkamans. Markmið þessara ungu dansara eru háleit og ætlar Aníta sér ekk- ert annað en sigur á heimsmeist- aramóti í framtíðinni og stefnir að því að verða topp dansari eins og hún orðar það. Bæði ætla þau sér að verða atvinnudansarar en báðir for- eldrar þeirra eru atvinnudansarar eins og áður sagði og því verður það að teljast ansi raunhæft. Hvernig er það, finnst vinum ykk- ar eitthvað skrýtið að þið séuð að æfa dans? „Þeim fannst það fyrst skrýtið en það vandist fljótt,“ segja þau bæði í kór. Þau segja þetta líka stundum erfitt vegna þess hve mikill tími fer í æfingar. Þau æfa á hverjum degi í a.m.k. tvo klukkutíma og svo eru það allar aukaæfingarnar. „Við vor- um að reikna þetta um daginn og þetta eru um 20 tímar sem ég æfi á viku,“ segir Aníta og segir það vera lítið mál. námið hentaði mér fullkomlega. Þetta var afar krefjandi og mjög erfitt á köflum en með hjálp góðs fólks í kringum mig, Silju konunnar minnar og dætra var þetta mögu- legt. Svo var ég bara mjög duglegur, sat nánast öllum stundum og lærði. Ég útskrifaðist frá Keili með ígildi stúdentsprófs í mars 2011. Það var mikil ánægju- og sigurstund að taka við prófskírteininu úr hendi rektors á þessum degi. Hefur þetta breytt lífi þínu á ein- hvern hátt? Þetta ferðalag hefur gert það að verkum að ég hef nú lykil að nánast hvaða háskóla sem er og svo gefur þetta bara lífinu svo allt annað gildi. Viðhorf mitt er gjörbreytt og það er auðvitað hverjum manni hollt að ögra sér aðeins og fara út úr þæg- indahringnum og prófa eitthvað alveg nýtt. Ég er ánægður með að geta nú aðstoðað stelpurnar mínar við sinn lærdóm en það hefði ég ekki getað hér áður og sérstaklega í stærðfræðinni. Að fá að skyggnast inn í bókmennta- arf þjóðarinnar með frábærum leiðbeinendum hefur verið mér hollt og það hefur gert það að verkum að bækur og bókabúð- ir eru gersemar í mínum huga og hvatt mig til að lesa meira og fræðast enn frekar. Svona að lokum, nú er einhver þarna úti að lesa þetta og það kviknar á einhverjum neista. Hvað viltu segja við þá einstak- linga? Ekki spurning í mínum huga, bara að skrá sig strax án þess að hugsa og ekki að hugsa of mikið fram í tímann, heldur að taka einungis einn dag í einu og njóta ferðarinnar því þetta eru forrétt- indi að fá tækifæri til að nema, það eru ekki allir í þeim spor- um í heiminum. Viðkomandi á að hafa trú á sér og hafa hugfast að við mannfólkið getum miklu meira en við oft höldum. Þessi andlega næring sem námið gefur manni, eykur lífshamingjuna til muna, gefur lífinu lit og aukinn innblástur til enn betri verka. Við þökkum Bjarna fyrir spjallið og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér Menntastoðir er bent á að vera í sambandi við Sæ- rúnu Rósu Ástþórsdóttur verk- efnastjóra hjá MSS í síma 421- 7500 eða skrifa henni á netfangið saerunrosa@mss.is Anna Lóa Ólafsdóttir Bjarni Arason ásamt Særúnu Rósu Ástþórsdóttur, verkefnastjóra hjá MSS. Líkamsstaðan er mikilvæg í dans- íþróttinni.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.