Ægir - 01.08.2001, Qupperneq 5
Við vinnum þegar þarf að vinna
Gunnlaugur K. Hreinsson stýrir GPG hf., öflugu og
vaxandi sjávarútvegsfyrirtæki á Húsavík. Fyrirtækið er
ekki nema fjögurra ára gamalt, en hefur engu að síður
náð sterkri stöðu á saltfiskmörkuðum í m.a. Portúgal,
á Spáni og Ítalíu. Saltfiskurinn er mjög eftirsótt vara um þessar mundir og fyrir hann er
greitt hátt verð. Og á meðan svo er gengur saltfiskvinnslan hér heima vel.
Gunnlaugur framkvæmdastjóri GPG er í Ægisviðtali að þessu sinni.
Lítill heimur
Í pistli mánaðarins veltir Friðrik Pálsson, stjórnarformaður SÍF, fyrir sér stöðu íslensks
sjávarútvegs í umróti heimsviðburða.
Sé eftir því að hafa ekki byrjað á þessu fyrir tuttugu árum síðan
Vestur í Bolungarvík býr hagleiksmaðurinn Ragnar Jakobsson sem kann öðrum mönnum
betur að gera við gamla árabáta. Ragnar er nýlega byrjaður að gera við árabátinn Friðþjóf
sem áratugum saman hefur legið undir skemmdum.
Þessir blessaðir Kínverjar eiga margt ólært
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, útgerðarmaður Happasæls KE-94, er að sumu leyti sáttur
við nýja skipið sitt, sem var smíðað austur í Kína, en að öðru leyti alls ekki. Guðmundur
Rúnar telur að Kínverjar eigi ýmislegt ólært í skipasmíðum.
Nokkur orð um stöðugleika skipa
Páll Ægir Pétursson, skipstjóri á olíuflutningaskipinu Kyndli, fjallar um stöðugleika skipa
frá ýmsum hliðum í fróðlegri grein.
Alltaf mikil stemning í kringum síldarvertíðina
Þó svo að hið eina sanna síldarævintýri sé löngu liðið er alltaf mikil stemning sem fylgir
þeim tíma ársins þegar síldin veiðist. Nokkrar verstöðvar fyrir austan skipta um ham á
haustdögum og síldin tekur völdin. Ægir fjallar um síldveiðar og -vinnslu frá ýmsum hlið-
um og ræðir meðal annars við Aðalstein Ingólfsson, framkvæmdastjóra Skinneyjar-Þinga-
ness hf. á Höfn í Hornafirði.
Eftirlit með íslenskum sjávarafurðum
Dr. Róbert Hlöðversson, framkvæmdastjóri Nýju skoðunarstofunnar, setur fram þá skoðun í
grein í Ægi að til þess að íslenskar sjávarafurðir standist væntingar viðskiptavina sinna
ætti seljandi og/eða kaupandi í ríkari mæli að fela óháðum matsaðilum að meta gæði af-
urðanna áður en þær eru sendar úr landi.
5
Í B L A Ð I N U
Útgefandi: Athygli ehf.
ISSN 0001-9038
Ritstjórn: Athygli ehf.
Hafnarstræti 82, Akureyri
Sími 461-5151
Bréfasími 461-5159
Ritstjóri: Jóhann Ólafur Halldórsson (ábm.)
Auglýsingar: Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 14, Reykjavík,
Sími 588-5200,
Bréfasími 588-5211
Auglýsingastjóri:
Inga Ágústsdóttir
Sími 898 8022
Hönnun & Umbrot:
Fjölmynd ehf.
Kaupvangsstræti 1, Akureyri
Sími 461 2515
Prentun: Steindórsprent-Gutenberg ehf.
Áskrift: Ársárskrift Ægis kostar 6200 kr.
með 14% vsk.
Áskriftarsími 461-5151
Forsíðumynd Ægis tók Sigurður Mar Halldórsson í
síldarvinnslu Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn í
Hornafirði.
ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári. Eftirprentun og
ívitnun er heimil, sé heimildar getið.
6
16
10
22
12
26
31