Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.2001, Side 46

Ægir - 01.08.2001, Side 46
46 N Ý F I S K I S K I P Happasæll KE-94 er 246 brúttó- lestir að stærð og tekur 155 660 lítra kör í lest. Skipið er 28,95 metrar að lengd. Milli lóðlína eru 26,50 metrar. Breidd skipsins er 9 metrar og dýpt að aðalþilfari 4,25 metrar. Í skipinu eru 70 rúmmetra olíugeymar, 20 rúmmetra ferskvatnsgeymar og 20 rúmmetra ballestartankar fyrir vatn eða sjó. Íbúðir eru í skipinu fyrir þrettán manna áhöfn og klefarnir tveir eins manns, þrír tveggja manna og einn fjögurra manna auk íbúðar fyrir skipstjóra. Bakborðsmegin miðskips eru eldhús, borðsalur og matvælageymslur. Það var Skipatækni, Borgartúni 30 í Reykjavík, sem hannaði skip- ið, en umboðsaðili Huangpu skipasmíðastöðvarinnar hér á landi er ÍsBú Ltd. Vélbúnaður Ýmiskonar vélbúnaður í Happasæl er frá Marafli ehf., en meðal þess búnaðar sem fyrirtækið hefur á boðstólum er rafalar, stýrisvélar, skipstjórastólar, skiptiskrúfubún- aður, gluggar, landgangar og loft- ræstikerfi. Í skipinu er Caterpillar aðalvél, en Hekla hf. er umboðsaðili Ca- terpillar á Íslandi. Vélin er af gerð- inni Caterpillar 3512B. Afköst eru 821 kW við 1200 snúninga á mínútu. Niðurfærslugír með aflúrtökum fyrir ásrafal og vökva- dælur er frá Heimdal Propulsion AS. Sömuleiðis er skiptiskrúfa með snúningshraðann 250 snún- inga á mínútu frá Heimdal. 160 kW ásrafall er frá Newage Stam- ford. Hjálparvélar skipsins eru einnig frá Caterpillar. Sú stærri er 160 kW af gerðinni 3306TA en sú minni 85 kW af gerðinni 3304T. Stýri er af gerðinni Rolls Royce Marine. Stýrisvél er af gerðinni Ulstein Tenfjord SR 562. Aðvör- unarkerfi fyrir vélarrúm er Scana Moland en lofthreinsibúnaður frá Miljoteknikk A/S. Ballestar og brunadælur eru frá Azcue S.A. Skilvindur, þar með taldar olíu- skilvindur, eru frá Westfalia. Mið- stöðvarketill til upphitunar á vatni um borð er frá Rafhitun. Utan- borðskælar eru af gerðinni R.W. Fernstrum. Þilfarsbúnaður Happasæll er tveggja þilfara skip þar sem öll vinnuaðstaða fyrir áhöfn er undir þiljum. Fyrst og fremst er Happasæll netaveiðiskip þó svo gert sé ráð fyrir þeim möguleika að skipið verði gert út á dragnótar- eða togveiðar. Neta- spilið í skipinu er frá DNG-Sjó- vélum en aðgerðar- og blóðgunar- kerfi frá 3X Stáli ehf. á Ísafirði. Háþrýstiþvottabúnaður er hins vegar frá Karcher. Flapsastýri er frá Ulstein af gerðinni HLR 1500x2400 og stýrisvélabúnaður- inn er Ulstein-Tenefjord SR562. Umboðsaðili er Héðinn hf. Stoc- kless-akkeri, hvort um sig rúm 700 kíló að þyngd, eru í skipinu frá Marafli en akkerisvindan er frá Ósey hf. Þilfarskranarnir koma einnig frá Marafli, annars vegar Sormec T12000 M19 og hins veg- ar Sormec T2000 M24/1S. Enn- fremur er netaniðurleggjari frá Marafli, af gerðinni Bornholmer Jumbo. Lestarrými í Happasæli er 200 rúmmetrar. Kælibúnaður í lest er frá Bitzer. Siglinga-, fiskileitar- og fjarskiptatæki frá Brim- rúnu Bróðurpartur af búnaði í brú Happasæls er af gerðinni Furuno sem Brimrún ehf. hefur umboð fyrir. Þessi búnaður er í stórum dráttum eftirfarandi: Furuno FR-1510 MK3 X-band ratsjá með innbyggðum 17 tommu skjá og ARP-10. Furuno FR-7062 X-band ratsjá með inn- byggðum ARP-10. Furuno AD- 100 gýróbreytir. Furuno RP 17, radarplotter fyrri FR-15010 ratsjá. Furuno sjókort fyrir radarplotter. Furuno GPS staðsetningartæki með litaplotter af gerðinni GP- 1650. Furuno GPS leiðréttingar- tæki með GR-80 sendi. SG-Brown gýróattaviti. Furuno FAP-330 sjálfstýring. Furuno FCV-1500 litadýptarmælir - 28 og 88 kHz. Furuno FCV-291 litadýptarmælir - 88 kHz. Furuno sjávarhitamælir (T-2000). Furuno GMDSS fjar- Happasæll KE-94 Happasæll KE-94 kom til heimahafnar í Kefla- vík viku af september eftir sjö mánaða siglingu frá Huangpu skipasmíðastöðinni í Guangzhou í Kína. Kaupandi skipsins er útgerðarfyrirtækið Happi ehf. í Keflavík. Mynd: Víkurfréttir

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.