Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2001, Síða 40

Ægir - 01.08.2001, Síða 40
40 F I S K V I N N S L A „Við erum með á boðstólum margar mismunandi útfærslur af færiböndum,“ segir Magnús Magnússon, sölumaður hjá Mar- vís ehf. í Kópavogi, sem er um- boðsaðili á Íslandi fyrir banda- ríska fyrirtækið Intralox en það hefur verið leiðandi í heiminum í framleiðslu svokallaðra plast- hlekkjafæribanda. „Intralox kom með plast- hlekkjafæribönd á markaðinn fyr- ir rúmum þrjátíu árum og þau hafa reynst mjög vel,“ segir Magnús, en nokkrir af stærstu kaupendum á slíkum færiböndum hér á Íslandi eru fyrirtæki sem framleiða vinnslulínur fyrir sjáv- arútveginn, t.d. Marel og 3X Stál. „Sú þróun hefur verið að eiga sér stað að þessi plasthlekkjafæribönd eru að koma í staðinn fyrir gömlu stálfæriböndin með gúmmí- reimunum. Plasthlekkjaböndin þykja betri kostur, ekki síst vegna viðhaldsins og þrifa. Vaxandi kröfur eru gerðar um nákvæm þrif á færiböndum og Intralox hefur haft það að leiðarljósi í hönnum á sínum framleiðsluvörum,“ segir Magnús Magnússon. Mjög góð ending Intralox-færiböndin hafa lengi verið á markaðnum á Íslandi og því eru þau orðin vel þekkt hér. Magnús segir að þessi færibönd hafi enst alveg sérstaklega vel. „Jú, það er óhætt að segja að þau hafi enst alveg ótrúlega vel. Fyrir stuttu kom ég í lítið fiskverkun- arfyrirtæki og þar voru nokkur færibönd, meðal annars eitt sextán ára gamalt færiband frá Intralox sem hafði aldrei bilað nema einu sinni höfðu tannhjólin verið end- urnýjuð. Þessi góða ending segir sína sögu,“ sagði Magnús. Mismunandi tegundir af plasti eru í Intralox-færiböndunum, allt eftir notkun. Sum færibönd þurfa að þola frost og í þau verður að nota öðruvísi plastefni en til dæmis í vinnslusal í frystihúsi. „Og í rækjuiðnaðinum er verið að nota færibönd sem þurfa að fara ofan í suðupotta og efnið í þeim þarf að þola 80-90 gráðu heitt vatn,“ sagði Magnús. Plasthlekkjafæribönd hafa líka verið að hasla sér völl um borð í bæði ísfisk- og frystitogurum. „Gúmmíreimafæriböndin um borð í fiskiskipunum eru óðum að hverfa og plasthlekkjaböndin koma í staðinn. Og maður greinir aukna samkeppni á þessum mark- aði sem segir mér að mörg þau fyrirtæki sem hafa verið að fram- leiða stálfæribönd með gúmmí- reimum eru að færa sig yfir í plastið,“ sagði Magnús. Heimsins mestu plast- hlekkjakaupendur Fyrirtækið Martvís fékk á sínum tíma umboðið fyrir framleiðslu- vörur Intralox og síðan breyttist nafn fyrirtækisins í Marvís sem hélt áfram að selja vörur frá Intra- lox. „Við erum með gríðarlegan lager af mismunandi gerðum af plasthlekkjafæriböndum og þykj- umst geta afgreitt það sem menn biðja um með stuttum fyrirvara.“ Fram að þesssu hefur Marvís eingöngu verið með sölu á vörum frá Intralox, en Magnús segir að til greina komi að breikka vöru- framboðið. „Okkar hugmyndir eru að bjóða ýmsa hluti sem tengjast færiböndunum, til dæm- is mótora, legur og ýmislegt fleira,“ segir Magnús. Íslenskur sjávarútvegur er fjöl- breyttur og notkun á þessum plasthlekkjafæriböndum er að sama skapi fjölbreytt. Magnús segir að þeir hjá Intralox segi að miðað við hina frægu höfðatölu séu Íslendingar allra manna dug- legastir að kaupa framleiðsluvörur fyrirtækisins. Marvís ehf. selur plasthlekkjafæribönd frá bandaríska fyrirtækinu Intralox: Stálið að víkja fyrir plastinu Magnús Magnússon, sölumaður hjá Marvís ehf. „Fyrir stuttu kom ég í lítið fiskverkunarfyrirtæki og þar voru nokkur færibönd, meðal annars eitt sextán ára gamalt færiband frá Intralox sem hafði aldrei bilað nema einu sinni höfðu tannhjólin ver- ið endurnýjuð. Þessi góða ending segir sína sögu,“ segir Magnús Magnússon. Myndir: Sverrir Jónsson.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.