Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.08.2001, Qupperneq 19

Ægir - 01.08.2001, Qupperneq 19
19 Æ G I S V I Ð T A L I Ð ekki að fara út í viðbótarfjárfestingu til þess að þurrka saltfisk,“ sagði Gunnlaugur. Í góðu sambandi við kaupendur Til þessa hefur GPG eingöngu unnið svokallaðan blautfisk. „Portúgal er okkar stærsti markaður fyrir blautverkaðan saltfisk. Einnig framleiðum við tölu- vert inn á Spán, Ítalíu, og Grikkland. Þurrkaða hryggi og hausa seljum við hins vegar til Nígeríu,“ sagði Gunnlaugur. Hann orðar það svo að fyrirtækið hafi ekki „bundið sig við ákveðin fyrirtæki“ varðandi sölumálin. „Við erum að kaupa fisk á frjálsum mark- aði og að sama skapi seljum við fisk á frjálsum mark- aði. Sölunni högum við töluvert eftir því hver borgar best í hverjum tíma. Stundum tökum við ákvörðun um að selja ekki frá okkur fisk en safna þess í stað birgðum. Til þeirra ráða grípum við þegar aðstæður á markaðnum eru þannig að salan er lítil og verðið á fiskinum af þeim sökum lágt. Til dæmis er yfirleitt lítil sala yfir sumarmánuðina og afurðaverð lágt, en á haustin, í október og nóvember, eykst salan jafnt og þétt og afurðaverð hækkar,“ segir Gunnlaugur. „Ég er í beinu tölvu- eða faxsambandi við okkar kaupend- ur og sömuleiðis fylgist ég með gangi mála í gegnum þá umboðsaðila sem hafa ákveðna kaupendur á sínum snærum, sem ég hef hins vegar ekki náð beinum við- skiptum við. Ég geri töluvert af því að fara sjálfur þarna niðureftir og heilsa upp á kaupendur. Slík per- sónuleg tengsl eru afar mikilvæg.“ Gunnlaugur á ekki von á frekari verðhækkunum á saltfiski. „Stóri saltfiskurinn, sem veitingahúsamark- aðurinn kaupir fyrst og fremst, er mjög dýr og ég tel útilokað að verð á honum muni hækka enn frekar. Reyndar berast fregnir af því að sum veitingahús hafi tekið þessa vöru af matseðlum vegna þess að gestir kaupa hana ekki af þeirri ástæðu að hún sé of dýr. Þessar verðhækkanir á saltfiski eru að einhverju leyti komnar til af því að þorskveiðin hefur verið að drag- ast saman, til dæmis í Barentshafi, og einkanlega hef- ur framboðið á stórum fiski minnkað verulega. Stærri saltfiskurinn hefur sem sagt verið mest seldur á veit- ingahúsum en hinn almenni neytandi kaupir smærri saltfisk út í búð fyrir töluvert lægra verð.“ Engin óþarfa yfirbygging Það væri synd að segja að mikil yfirbygging sé í GPG ehf. Á morgnana er Gunnlaugur einn á skrifstofunni og sér um daglega stjórnun, hráefnisöflun og drjúgan hluta af sölumálunum. Seinni part dags leggur bók- ari Gunnlaugi lið við bókhaldsmálin. Það er því von að spurt sé hvort framkvæmdastjórinn sé ekki frá morgni til kvölds á kontórnum? „Jú, óneitanlega eru vinnudagarnir oft langir. Ég hef ekki viljað mikla yfirbyggingu í fyrirtækinu á meðan við erum enn að byggja það upp. Í upphafi settum við okkur það markmið að ná fram ákveðinni veltutölu, en reyndar höfum við alltaf farið fram úr okkar áætlunum. Á þeim fjórum árum sem fyrirtækið hefur starfað hefur veltan tífaldast. Það er því óneitanlega mikill vöxtur í fyrirtækinu og kannski verður einhvern tímann svigrúm til þess að ráða annan mann á skrifstofu!“ Gunnlaugur segist ekki geta annað en verið sáttur við uppbyggingu og gang GPG til þessa. „Markmið- ið hefur verið frá upphafi að fyrirtækið sé fyrir ofan núllið en ekki fyrir neðan það og það hefur tekist. Við fórum upphaflega af stað til þess að skapa ný störf á Húsavík og það hefur líka gengið eftir. Við höfum vel þjálfað starfsfólk sem að hluta hefur verið hér hjá okkur frá byrjun og það býr því yfir mikilli verk- kunnáttu,“ sagði Gunnlaugur. Almennt má segja um rekstur GPG að þar er gætt hagkvæmni og engin óþarfa áhætta tekin. Gunnlaug- ur segir ekkert launungarmál að menn hafi ógjarnan viljað fara í fjárfestingar nema að eiga fyrir þeim á heftinu. „Við höfum leitast við að halda öllum kostn- aði í rekstri fyrirtækisins niðri eins og mögulegt er. Félagið er óverulega skuldsett og því kom gengissig- ið fyrr á árinu hverfandi lítið við okkur nema til hækkunar á afurðaverði. Ég tel að staða fyrirtækisins sé sterk og ef okkur tekst að halda rétt á spilunum á næstu misserum er ég viss um að við eigum ýmis sóknarfæri,“ sagði Gunnlaugur K. Hreinsson. Tveir öflugir í salt- fiskvinnslunni; Nikola Nikic (t.v.) og Grétar Björnsson. Viðtal og ljósmyndir: Óskar Halldórsson

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.