Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2001, Blaðsíða 31

Ægir - 01.08.2001, Blaðsíða 31
31 E F T I R L I T Lög þessi og reglugerðir, sem síð- ar tengdust þeim, tóku mið af lögum og reglugerðum Evrópu- sambandsins, en Íslendingar höfðu með undirritun EES-samn- ingsins skuldbundið sig til þess að uppfylla kröfur ESB á þessu sviði. Ég mun hér á eftir gera grein fyrir í hverju þessar breytingar fólust og reyna í ljósi reynslunnar að meta kosti og galla breyting- anna. Opinbert fiskmat lagt niður Lög um eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum voru lögð niður með tilkomu nýju laganna. Þetta þýddi að mat á ferskum fiski og fiskafurðum var ekki lengur í höndum opinberra fiskmats- manna. Ábyrgðin á því að meta hvort hráefnið væri hæft eða óhæft til neyslu var flutt yfir á vinnsluleyfishafa og var honum gert skylt að meta fiskinn sam- kvæmt matsreglum í reglugerð og skrá niðurstöður matsins hverju sinni. Að öðru leyti kemur hið opinbera ekki að fiskmatinu heldur er það alfarið í höndum kaupanda og seljanda að skil- greina gæði afurðanna. Margir hafa orðið til að segja að þarna hafi verið stigið skref til baka, sérstaklega með því að leggja niður opinbert ferskfisk- mat. Þessir aðilar telja að gæðum íslenskra sjávarafurða hafi farið hrakandi á undanförnum árum og að orsakanna sé að leita í ofan- greindum kerfisbreytingum. Sé það rétt að gæðum sjávarafurða hafi farið hrakandi vil ég benda á aðra hugsanlega orsakavalda s.s. breytingar sem orðið hafa á við- skiptum með fisk með tilkomu fiskmarkaða svo og að sölusamtök hafa stórlega dregið úr beinu gæðaeftirliti með framleiðendum sínum með tilkomu opinberra krafna um innra eftirlit. Það að gera framleiðanda ábyrgan fyrir gæðum og heilnæmi framleiðslu sinnar er tvímælalaust skref í rétta átt. Ef það er ásetn- ingur hans að framleiða lélegar af- urðir getur ekkert eftirlit hversu strangt sem það er komið í veg fyrir það. Það þarf því ávallt að ganga út frá því sem vísu að allir framleiðendur vilji framleiða góða afurðir. Takist það ekki er um að kenna vankunnáttu ábyrgðarmanns vinnslu á góðum framleiðsluháttum. Aðrar orsakir geta verið tæknilegs eðlis s.s. að húsnæði og búnaður sé í óhæfu ástandi. Stjórnvöld tryggi heilnæmi íslenskra sjávarafurða Mikilvægt er að gera sér grein fyr- ir því hvort verið sé að tala um heilnæmi eða gæði. Heilnæmi af- urðarinnar snýr að því hvort neysla hennar orsaki að neytand- inn fái matarsýkingu, eitrun eða einhver önnur veikindi. Gæði af- urðarinnar snúa hins vegar að því hvort hún uppfylli einhverjar fyr- irfram skilgreindar gæðakröfur eða væntingar. Það er skylda stjórnvalda að viðhafa ráðstafanir til að tryggja að óheilnæm matvæli berist ekki á borð neytandans. Í 1. gr. laga um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða stendur að tilgangur laganna sé að tryggja neytendum að íslenskrar sjávarafurðir séu heilnæmar, standist settar kröfur um gæði, séu unnar við fullnægj- Eftirlit með íslenskum sjávarafurðum Með tilkomu nýrra laga um meðferð vinnslu og dreifingu sjávarafurða í ársbyrjun 1993 urðu miklar breytingar á gæðaeftirliti með sjávaraf- urðum á Íslandi. „Að mínu mati hefur nýja kerfið einungis kosti samanborið við það gamla ef miðað er við að markmiðið með opinberu eftiliti sé einungis að tryggja heilnæmi íslenskra sjávarafurða,“ segir dr. Róbert Hlöðversson m.a. í greininni. Höfundur er dr. Róbert Hlöðversson, framkvæmda- stjóri Nýju skoðunarstof- unnar ehf.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.