Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2001, Blaðsíða 10

Ægir - 01.08.2001, Blaðsíða 10
10 B Á T A V I Ð G E R Ð I R Nýverið lauk Ragnar viðgerð á árabátnum Mjóna, sem verður fundinn staður í Ófeigsfirði á Ströndum, en sá bátur er sömu gerðar og hákarlaskipið Ófeigur í byggðasafninu á Reykjum í Hrútafirði. Þegar einu verkefni lýkur tekur annað við hjá Ragn- ari. Hann er þegar byrjaður að gera upp bringingarbátinn Frið- þjóf, sem hefur lengi legið undir skemmdum á bænum Miðhúsum í Reykhólasveit. Strax í æsku kynntist Ragnar viðgerðum og smíði árabáta. „Ég er fæddur með þetta í höndunum. Ég byrjaði á þessu ungur strákur norður í Reykjarfirði á Ströndum og smíðaði fyrsta sjóferðabátinn tólf ára gamall. Ég lærði réttu handbrögðin af eldri bræðrum mínum og afi minn, Benedikt Hermannsson, var mikill báta- smiður. Það má því segja að þessi kunnátta hafi lifað frá einum ætt- lið til annars í Reykjarfjarðarætt- inni.“ Ragnar hefur smíðað fjölmarga báta frá grunni, bæði trillur og „litlar jullur“. Hann segist ekki hafa próf í þessum fræðum upp á vasann. „Nei, ég á enga pappíra til að sanna að ég kunni þessar smíðar. Við lærðum þetta hver af öðrum. Pabbi var fjárglöggur maður en ekki er hægt að segja að hann hafi verið handlaginn. Mamma var hins vegar lagin í höndunum eins og móðurafi minn, Benedikt bátasmiður.“ Mjóni var illa farinn Tekist hafði að safna mörgum gömlum árabátum, sem síðan urðu eldi að bráð í geymsluhús- næði í Kópavogi. Þrátt fyrir það áfall hélt leitin að dæmigerðum gömlum árabátum áfram og fannst einn 120 ára gamall bátur, Ögri að nafni, sem hafði ekki ver- ið notaður í fimmtíu ár. „Þennan bát hafði Þjóðminjasafnið hug á að gera upp og safnið fékk síðan ábendingu um að ég gæti tekið slíkt að mér. Ég var sem sagt fenginn til að gera upp þennan gamla bát frá Ögri og síðustu fjögur árin hef ég annast viðgerð- ir á bátum fyrir Þjóðminjasafnið. Ögri hefur verið inni í skemmu í tvö ár og lengi hefur staðið til að hann færi suður, en nú skilst mér að ákveðið sé að báturinn fari aft- ur inn í Ögur og þar verði honum komið fyrir í skemmu, fólki til sýnis. Mjóni, báturinn sem ég lauk nýverið við að að endursmíða, fór heim í Ófeigsfjörð. Reyndar var búið að afhenda hann Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna og var honum ætlað plássið þar sem Ófeigur er núna. Til stóð að byggt yrði yfir Ófeig, en af því varð ekki. Mjóni var geymdur í Ragnar Jakobsson í Bolungarvík gerir upp gamla sögufræga árabáta: Sé eftir því að hafa ekki byrjað á þessu fyrir tuttugu árum síðan Hagleiksmaðurinn Ragnar Jakobsson í Bolungarvík er einn örfárra manna hér á landi sem kann réttu handbrögðin við endurgerð gamalla árabáta og hefur Þjóðminjasafnið falið honum að gera upp nokkra báta. Mér er ekki kunnugt um hversu gamall Frið- þjófur er, en samkvæmt þeim pappírum sem ég hef fengið er talið að hann sé á bilinu 80 til 100 ára gamall. Það reynir vissulega á þolinmæðina að gera upp gamla árabáta, en Ragnar kann vel þessari vinnu enda sé verið að bjarga ákveðnum menningarverðmætum. Mynd: BB/Halldór Sveinbjörnsson.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.